Fréttir
Fréttir
2F 2026/27: Sterkur rekstur og hækkuð afkomuspá - verðlækkanir til viðskiptavina
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2026/27 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 15. október 2026. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2026. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum
Hagar hafa í dag lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2% og gildir lækkunin til áramóta. Um er að ræða stóran hluta eigin innflutnings Haga, fjölbreytt úrval af dagvöru fyrir heimili í nánast öllum vöruflokkum: almenn hilluvara, frystivara, kælivara, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur.
Fleiri valkostir í Bónus með Salling
Um 600 vörur frá danska smásölufyrirtækinu Salling Group hafa bæst í hillur Bónus á síðustu mánuðum. Vörurnar tilheyra fimm ólíkum vörulínum sem spanna allt frá einföldum grunnvörum yfir í lífrænar vörur og sælkeravörur. Innkaupasamstarf Haga við Salling gefur Bónus aukin tækifæri til að auka vöruúrval og bjóða fleiri valkosti á góðu verði.
Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup
Vildarkerfi Takk hefur nú tekið breytingum sem gefa vildarvinum tækifæri til að fá meira til baka þegar þeir versla í Bónus og Hagkaup. Með breytingunum fjölgar bæði þeim vörum og vöruflokkum sem gefa Takk krónur til baka og þar með tækifærum vildarvina til að fá meira til baka þegar þeir versla.
Lægra verð hjá Bónus og Hagkaup vegna innkaupasamstarfs við Salling
Yfir 600 vörur frá danska smásölufyrirtækinu Salling Group eru nú komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup, en úrvalið mun halda áfram að aukast og verður fljótlega komið yfir 1.000 vörur.
1F 2026/27: Sterkur rekstur í byrjun árs þar sem starfsemi allra rekstrareininga gengur vel
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2026/27 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. júní 2026. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2026. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Bónus og Olís taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi
Hagar hf. og dótturfélög þess, Bónus og Olís, hafa staðfest áform um uppbyggingu nýrrar starfsemi í Þorlákshöfn á næstu misserum. Fyrirhugað er að opna nýja Bónus matvöruverslun og Olís sjálfsafgreiðslustöð á svæðinu, í takt við hraða þróun og vöxt í sveitarfélaginu.
Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu
Níu íslensk frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu hafa hlotið styrki frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, til að vinna að nýsköpun í matvælaiðnaði.
Húsfylli á fyrsta viðburði Haga miðla
200 manns mættu á viðburð Haga miðla, Í augsýn viðskiptavina í verslun, sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík.
Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins.