Yfir 600 vörur frá danska smásölufyrirtækinu Salling Group eru nú komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup, en úrvalið mun halda áfram að aukast og verður fljótlega komið yfir 1.000 vörur. Vörurnar sem um ræðir eru m.a. undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget - vörulínur sem eru þekktar fyrir gott verð, fjölbreytt úrval, og mikil gæði.
Salling Group er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku, en félagið rekur yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku rekur félagið þekktar verslunarkeðjur, svo sem Netto, føtex og Bilka, auk þess að reka Netto víðar í Evrópu og Rimi í Eystrasaltslöndunum.
Innkaupasamstarf við Salling Group gerir verslunum Haga kleift að bjóða landsmönnum upp á enn lægra verð, aukið vöruúrval og betri gæði.
„Það hefur ávallt verið keppikefli okkar að ná sem bestum árangri í innkaupum og tryggja þannig viðskiptavinum sem allra lægst vöruverð. Það er því ánægjulegt að geta sagt frá því að nýtt innkaupasamband við Salling kemur mjög vel út fyrir fyrir viðskiptavini okkar.
Við sjáum þetta m.a. á því að vörur frá Salling hafa að meðaltali komið inn á yfir 15% lægra verði en sambærilegar vörur sem fyrir voru, og í mörgum tilfellum er munurinn töluvert meiri en það. Þá eru gæðin á nýju vörunum oft og tíðum meiri en á þeim sem fyrir voru. Því til viðbótar höfum við bætt vöruval okkar í ákveðnum flokkum, m.a. lífrænum og umhverfismerktum vörum, sem eru almennt ódýrari en í öðrum verslunum.
Fyrir íslenska neytendur þýðir þetta ekki bara lægra verð heldur líka aukið úrval af vörum af miklum gæðum. Við erum því afar stolt af þeim ávinningi sem samstarfið við Salling er að skila neytendum og því aðhaldi sem nýtt vöruval og verð skapar á dagvörumarkaði – þannig leggjum við okkar af mörkum í baráttunni við verðbólgu. Vörum frá Salling heldur áfram að fjölga í verslunum Bónus og Hagkaups næstu mánuðina og við erum bjartsýn á að það skili neytendum áframhaldandi ávinningi, í formi betra verðs og aukins úrvals“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.