Hagar hafa í dag lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2% og gildir lækkunin til áramóta. Um er að ræða stóran hluta eigin innflutnings Haga, fjölbreytt úrval af dagvöru fyrir heimili í nánast öllum vöruflokkum: almenn hilluvara, frystivara, kælivara, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur. Í Bónus tekur lækkunin til á bilinu 15 til 20% af vöruúrvali verslana. Verð þessara vara verður ekki hækkað á tímabilinu en getur lækkað frekar, t.d. ef innkaupsverð lækkar.
Lægri verðbólga og lægri vextir eru hagsmunamál sem snertir samfélagið allt, frá heimilum til fyrirtækja landsins. Hátt vaxtastig þyngir m.a. fjármagnskostnað, dregur úr fjárfestingargetu og veikir kaupmátt landsmanna. Eitt stærsta hagsmunamál samfélagsins um þessar mundir er að ná niður vöxtum og verðbólgu og hefur þörfin á samstilltu átaki sjaldan verið meiri.
Lágt vöruverð er kjarninn í rekstri Bónus og hefur verið allt frá stofnun. Bónus býður hagkvæmustu vörukörfuna um allt land, en það gerir félagið með áherslu á hagkvæm innkaup, lágan rekstrarkostnað og lága álagningu. Allt skiptir þetta máli, en stærsti einstaki þátturinn sem ræður verði út úr búð er verð inn í búð. Af þeirri ástæðu gengu Hagar á árinu til innkaupasamstarfs við danska verslunarfélagið Salling Group, sem gefur verslunum félagsins aðgang að lægri innkaupsverðum en áður hafa staðið til boða. Á þeim grunni hafa um 650 nýjar vörur bæst í hillur hjá Bónus og Hagkaup á árinu, að stærstum hluta í stað sambærilegra vara þar sem verð er að meðaltali ríflega 15% lægra. Áhrifin ná út fyrir verslanir Haga, en verð á sambærilegum vörum hefur víða lækkað hjá samkeppnisaðilum í kjölfarið og verðaðhald á dagvörumarkaði almennt aukist. Frá því í mars hefur matarliður vísitölu neysluverðs aðeins hækkað um 0,58%, sem er fjarri þróun almenns verðlags á tímabilinu. Hagar telja að aðgerðir félagsins eigi þar hlut að máli.
Tímabundin lækkun til áramóta tekur til eigin innflutnings Haga á vörum sem seldar eru í Bónus og Hagkaup, en þar ber hæst þrjú vörumerki:
-
Euroshopper, sem að jafnaði er ódýrasti kosturinn í sínum vöruflokki.
-
Salling vörulínurnar, sem spanna breitt úrval og eru að jafnaði ódýrasti kosturinn í hverjum gæðaflokki.
-
Santa Maria, vörur sem spanna breitt svið og henta m.a. til mexíkóskrar matargerðar.
„Lægri verðbólga og lægri vextir eru allra hagur. Við erum yfir höfuð ekki hrifin af stuttum átaksverkefnum í vöruverði, þar sem lágt vöruverð er það sem rekstur Bónus gengur út á alla daga, alltaf. Þegar við ráðumst í sérstakar aðgerðir eru þær almennt varanlegar, eins og nýtt samstarf við Salling er ágætt dæmi um. Rekstur Bónus er og verður okkar mikilvægasta framlag í baráttunni gegn verðbólgu í matvöru. Staðan nú er þó óvenjuleg og það skiptir miklu að samstaða náist milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um að verja forsendur kjarasamninga. Við viljum leggja sérstaklega af mörkum til þess. Þess vegna lækkum við nú verð á stórum hluta vöruúrvals okkar og tryggjum að það hækki ekki fram að áramótum." segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.
Að ná tökum á verðbólgu er sameiginlegt verkefni. Viðræður um forsendur kjarasamninga fara fram á vettvangi Samtaka atvinnulífsins og viðsemjenda þeirra og í því þríhliða samtali ríkisins, ASÍ og SA sem hafið var í vor. Fyrr í þessum mánuði beindu Samtök atvinnulífsins þeim tilmælum til aðildarfyrirtækja sinna að halda aftur af verðhækkunum og kölluðu um leið eftir því að ríki og sveitarfélög stilltu hækkunum á gjaldskrám í samræmi við verðbólgumarkmið. Hagar taka þau tilmæli til sín. Til að árangur náist þurfa allir að leggja sitt af mörkum, atvinnulíf, launþegahreyfing, ríki og sveitarfélög.
„Þar verða stjórnvöld að ganga á undan með góðu fordæmi. Hagar skorast ekki undan ábyrgð, og ég treysti því að aðgerð okkar verði öðrum hvatning til dáða og að hún stuðli þannig að verðstöðugleika, friði á vinnumarkaði og lækkun vaxta, öllum til hagsbóta," segir Finnur.