Stjórnendur rekstrareininga
Lárus Óskarsson (f. 1960)
Netfang: larus@adfong.is
Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðsstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988.
Jóhanna Þ. Jónsdóttir (f. 1970)
Netfang: johanna@bananar.is
Jóhanna er framkvæmdastjóri Banana ehf. en hún hóf störf í september 2021. Jóhanna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Tækniháskóla Íslands. Jóhanna hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf., innkaupastjóri Distica hf., sem innkaupa- og birgðastjóri hjá Bláa Lóninu hf. og Össuri hf.
Björgvin Víkingsson (f. 1983)
Netfang: bjorgvin@bonus.is
Björgvin er framkvæmdastjóri Bónus. Hann hóf störf hjá Bónus 1. maí 2023 og tók við starfi framkvæmdastjóra þann 1. janúar 2024. Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin starfaði sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020 en hann hefur auk þess víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík.
Oddur Örnólfsson (f. 1987)
Netfang: oddur@eldumrett.is
Oddur er framkvæmdastjóri Eldum rétt en hann tók við starfinu vorið 2024. Hann hóf störf hjá félaginu í nóvember 2015 en þar áður stundaði hann nám í læknisfræði við Jessenius Faculty of Medicine. Oddur hefur áralanga reynslu og víðtæka þekkingu á matvælaframleiðslu, vöruþróun og rekstri og hefur gegnt lykilhlutverki í framleiðslu og vöruþróun Eldum rétt frá því að hann hóf störf hjá félaginu.
Sigurður Reynaldsson (f. 1966)
Netfang: sr@hagkaup.is
Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999.
Ingunn Svala Leifsdóttir (f. 1976)
Netfang: isl@olis.is
Ingunn Svala er framkvæmdastjóri Olís en hún tók við starfinu 1. janúar 2024. Ingunn Svala er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á reikningshald og fjármál, og lauk Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Auk þess lauk Ingunn Svala AMP prógrammi frá IESE Business School í New York árið 2018. Ingunn Svala starfaði áður sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dohop og þar áður sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík í sjö ár. Ingunn Svala hefur auk þess viðamikla reynslu af stjórnunarstörfum og hefur t.a.m. starfað fyrir Kaupþing, skilanefnd Kaupþings og Actavis Group PTC.
Niels Mortensen
Netfang: niels@sms.fo
Niels er forstjóri SMS í Færeyjum en hann hefur sinnt því starfi frá árinu 2006. Hann hóf störf hjá SMS árið 1992 og tók við stjórnunarstarfi hjá félaginu árið 1996. Niels er menntaður í viðskipta- og bankafræðum frá Danmörku og starfaði hjá Danske Bank áður en hann sneri aftur til Færeyja og hóf störf hjá SMS. Niels hefur áratuga reynslu af verslunarrekstri og hefur gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum í færeysku atvinnulífi. Hann hefur meðal annars setið í stjórn Atlantic Airways, þar sem hann gegndi formennsku, auk stjórnarsetu í ýmsum öðrum félögum.
Árni Ingvarsson (f. 1966)
Netfang: ai@storkaup.is
Árni er rekstrarstjóri Stórkaups og hefur sinnt því starfi frá stofnun fyrirtækisins árið 2022. Árni er menntaður kjötiðnaðarmeistari frá Iðnskólanum í Reykjavík. Á árunum 2019-2022 starfaði Árni á fyrirtækjasviði Olís en hann sinnti eigin rekstri á árunum 2017-2019. Árni var framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ÍSAM á árunum 2002-2016 en starfaði þar áður lengst af við innkaup á ferskvörum hjá Hagkaup og Nýkaup.
Eiður Eiðsson (f. 1968)
Netfang: eidure@hagar.is
Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafrænni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafrænni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS.
Ingibjörg Sverrisdóttir (f. 1960)
Netfang: is@hbu.is
Ingibjörg er rekstrarstjóri Zara á Íslandi en hún tók við starfinu í febrúar 2011. Ingibjörg er með B.Sc. gráðu í sálfræði og með sveinspróf í prentiðn. Hún hefur starfað við smásölu og þjónustu frá árinu 1997 sem verslunar- og rekstrarstjóri þar sem hún hefur m.a. haft umsjón með þjálfun starfsmanna og innleiðingu þjónustumarkmiða. Áður starfaði Ingibjörg í prentiðnaði við framleiðslu, þjónustu og sölu á prentverki.