Framkvæmdastjórn Haga
Finnur Oddsson (f. 1970)
Netfang: fo@hagar.is
Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Noron ehf., Eldum rétt ehf., Stórkaup ehf., P/F SMS, Klasi ehf., Mynto ehf. og Norðurver ehf. Auk þess situr Finnur í stjórn Samtaka Atvinnulífsins og er formaður í stjórn Vinnudeilusjóðs SA. Finnur á 255.000 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Finnur á kauprétt að 2.841.572 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Magnús Magnússon (f. 1988)
Netfang: magnus@hagar.is
Magnús er framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum og aðstoðarforstjóri. Magnús hóf störf þann 1. febrúar 2021 sem framkvæmdastjóri en tók einnig við stöðu aðstoðarforstjóra í mars 2024. Magnús er með M.Eng. gráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley í Kaliforníu, og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Magnús hefur mikla reynslu af stefnumótun og almennum rekstri, bæði hérlendis og erlendis. Á árinu 2020 starfaði hann sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Þar áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann aðstoðaði fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús situr í stjórnum 2M ehf., Djús ehf., Frumtaks Ventures ehf., Stórkaups ehf. og P/F SMS, auk þess sem hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Magnús á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Magnús á kauprétt að 2.841.572 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.
Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)
Netfang: geg@hagar.is
Guðrún Eva er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskra kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvörusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005. Guðrún Eva situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Stórkaup ehf., P/F SMS, Olís ehf. (varamaður), Eldum rétt ehf. (varamaður) og Record Records ehf. (varamaður). Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Guðrún Eva á kauprétt að 2.288.358 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.