Fréttir
Fréttir

ANTON BIRKIR SIGFÚSSON HEFUR VERIÐ RÁÐINN FORSTÖÐUMAÐUR SJÁLFBÆRNI OG SAMFÉLAGSLEGRAR ÁBYRGÐAR HJÁ HÖGUM
Anton Birkir Sigfússon hefur verið ráðinn í nýja stöðu forstöðumanns sjálfbærni og samfélagsábyrgðar hjá Högum hf. Í starfinu mun hann halda áfram að móta og innleiða stefnur, markmið og aðgerðaráætlanir félagsins tengdum málaflokknum ásamt því að hafa umsjón með sjálfbærniuppgjöri Haga.

OPNAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í UPPSPRETTUNA 2023
Hagar hafa opnað fyrir umsóknir í nýsköpunarsjóðinn Uppsprettan. Þetta er í þriðja sinn sem Uppsprettan auglýsir úthlutun og eru um 20 milljónir til úthlutunar úr sjóðnum í ár. Umsóknarfrestur er til og með 27. september. Hlutverk sjóðsins er að virkja og styðja við frumkvöðla til nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu og sérstakt tillit er tekið til sjálfbærni verkefna sem styðja við þróun, minnkun matarsóunar og hagræðingu í íslenskri matvælaframleiðslu.

Ný verslun Bónus opnar í Holtagörðum
Bónus opnar nýja matvöruverslun í Holtagörðum laugardaginn 22. júlí. Nýja verslunin er um 2.500 fm að stærð eða 40% stærri en gamla verslunin sem nú hefur verið lokað. Verslun Bónus hefur verið í Holtagörðum frá árinu 1994. Nýja verslunin verður á sömu hæð en í hinum enda hússins, á móti tveggja hæða bílastæðahúsi og því eru næg bílastæði að finna.

Vörusala á 1F jókst um 8,6% og hagnaður nam 653 m.kr.
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2023/24 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. júní 2023. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2023. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Hagkaup opnar glæsilega veisluþjónustu
Veisluréttir er ný þjónusta sem Hagkaup kynnir til leiks en um er að ræða nýja veisluþjónustu þar sem boðið er upp á bragðmikla og gómsæta veislurétti.

Bónus opnar verslun í Norðlingaholti
Ný matvöruverslun Bónus opnaði 3. júní sl að Norðlingabraut 2 í Norðlingaholti. Verslunin er rúmlega 1.800 fermetrar og er byggð á grænum grunni eins og allar nýjar og endurbættar Bónus verslanir.

Árs- og samfélagsskýrsla Haga 2022/23 er komin út
Árs- og samfélagsskýrsla Haga fyrir árið 2022/23 er komin út.

GRIPIÐ & GREITT - ný sjálfafgreiðslulausn í Bónus
Bónus kynnti á dögunum GRIPIÐ & GREITT, nýja og þægilega sjálfsafgreiðslulausn. Flest erum við orðin vön sjálfsafgreiðslukössum við útgang verslana, en GRIPIÐ & GREITT gengur skrefinu lengra.

Sterkur rekstur í krefjandi umhverfi
Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2022/23 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. apríl 2023. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2022 til 28. febrúar 2023. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Hagar kaupa heildverslunina Dista ehf
Hagar hf. og eigendur Dista ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á öllu hlutafé Dista, en Dista er heildverslun með áfengar og óáfengar drykkjarvörur.