Fara á efnissvæði
Til baka

Bónus og Olís taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi

Hagar hf. og dótturfélög þess, Bónus og Olís, hafa staðfest áform um uppbyggingu nýrrar starfsemi í Þorlákshöfn á næstu misserum. Fyrirhugað er að opna nýja Bónus matvöruverslun og Olís sjálfsafgreiðslustöð á svæðinu, í takt við hraða þróun og vöxt í sveitarfélaginu.

Bónus mun opna nýja matvöruverslun miðsvæðis í Ölfusi, nærri nýrri íbúabyggð við gatnamót Ölfusbrautar og Hafnarvegar. Verslunin verður í samræmi við nýjustu verslanir keðjunnar að útliti og vöruúrvali og mun þjóna ört vaxandi hópi íbúa á svæðinu. Ný verslun mun bjóða upp á lágt verðlag og gott vöruúrval eins Bónus eru þekkt fyrir um allt land.

Þá mun Olís opna nýja sjálfsafgreiðslustöð í Þorlákshöfn, með það að markmiði að þjóna bæði einstaklingum og vaxandi starfsemi í iðnaði og þungaflutningum á svæðinu. Þorlákshöfn hefur þróast í eina helstu þjónustu- og iðnaðarmiðstöð á suðvesturhorni landsins og er eftirspurn eftir faglegri þjónustu við atvinnurekstur á svæðinu vaxandi.

Sveitarfélagið Ölfus hefur verið í örum vexti á undanförnum árum og hefur íbúum fjölgað um tæp 30% frá árinu 2018. Samhliða þessari þróun hefur atvinnustarfsemi á svæðinu aukist verulega og hafnarstarfsemi styrkst, en nú eru um 320 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn samhliða öflugri atvinnuuppbyggingu. Eftirspurn eftir fjölbreyttari þjónustu hefur því farið vaxandi.

Finnur Oddsson, forstjóri Haga hf.:

"Uppbygging í Þorlákshöfn og Ölfusi hefur verið kröftug og farsæl og við gerum ráð fyrir að svo verði áfram. Hjá Högum sjáum við mikil tækifæri í að þjóna ört vaxandi hópi íbúa bæjarins og nágrannasveita um dagvöru og eldsneyti í heimabyggð og að sama skapi erum við spennt fyrir því að styðja við farsæla uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu."

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss:

"Aukin þjónusta er lykilatriði fyrir ört vaxandi samfélag í Þorlákshöfn. Ný dagvöruverslun mun bæta verulega aðgengi íbúa að daglegum nauðsynjum og styðja við áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Á næstu misserum mun miðbærinn einnig taka á sig skýrari mynd með aukinni þjónustu. Þorlákshöfn er því að taka skref úr þorpi í bæ."

Nánari upplýsingar um tímasetningar verða kynntar síðar.

 

Frekari upplýsingar veita:

Finnur Oddsson, forstjóri Haga (fo@hagar.is / 862 0310)

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss (ellidi@olfus.is / 690 1599)