200 manns mættu á viðburð Haga miðla, Í augsýn viðskiptavina í verslun, sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík.
Viðburðurinn var sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Á viðburðinum var fjallað um smásölumiðlun (e. retail media), einn hraðast vaxandi auglýsingamiðil heims. Á dagskrá voru fjölbreytt erindi og pallborðsumræður þar sem sérfræðingar úr smásölu- og markaðsgeiranum miðluðu reynslu sinni og þekkingu. Meðal fyrirlesara var Kathrine Rønhof Karstensen, framkvæmdastjóri Matas Media í Danmörku, sem fjallaði um uppbyggingu og árangur smásölumiðla hjá Matas. Þá fór Finnur Oddsson, forstjóri Haga, yfir þróun og tækifæri smásölumiðlunar á íslenskum markaði og Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður Haga miðla, kynnti nýja þjónustu Haga miðla. Að erindum loknum fóru fram líflegar pallborðsumræður.
Við þökkum kærlega fyrir komuna og vonum að erindin og umræður hafi veitt gestum gagnlega innsýn í þau fjölmörgu tækifæri sem felast í smásölumiðlun. Áhugasamir geta kynnt sér málið nánar á hagarmidlar.is eða haft samband á midlar@hagar.is