Níu íslensk frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu hafa hlotið styrki frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, til að vinna að nýsköpun í matvælaiðnaði.
Þetta er í fimmta sinn sem styrkjum er úthlutað úr Uppsprettunni, en alls hefur sjóðurinn styrkt 50 verkefni fyrir um 70 milljónir króna frá stofnun hans árið 2021. Auk fjárhagslegs stuðnings fá styrkhafar jafnframt ráðgjöf og aðstoð frá starfsfólki Haga og dótturfélaga.
Alls bárust 40 umsóknir um styrk í sjóðinn þetta árið og valdi sérstök matsnefnd níu verkefni til styrkveitingar. Afhending styrkja fór fram á nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week sem haldin var í Grósku þann 28. apríl 2026.
Styrkhafar Uppsprettunar 2026 eru:
Stökkfiskur - Framleiðsla og markaðssetning á snakkvörum í nýjum og nútímalegum búningi. Teymið á bakvið Stökkfisk samanstendur af Sölva Steini Helgasyni, Sigrúnu Finnu Snædal, Zöru Gerson og Magnúsi V. Snædal.
GABRÍELA – Framleiðsla og markaðssetning á hágæða majónesi sem notast við avókadóolíu í stað hefðbundinnar repjuolíu. Að baki verkefninu stendur Helga Gabríela Sigurðardóttir.
Oatme – Framleiðsla og markaðssetning á hollum og prótínbættum hafragraut. Hafragrauturinn er bragðbættur með frostþurrkuðum berjum og ávöxtum. Sölvi Ólason fer fyrir verkefninu.
Helga Magga – Framleiðsla og markaðssetning á próteinríku pizzadeigi sem byggir á vinsælustu uppskrift Helgu Margrétar Gunnarsdóttur frá upphafi.
R8iant – Framleiðsla og markaðssetning á steinefna- og saltdrykkjum í nýjum búningi. Að baki R8iant standa þau Aron Gultekin Can og Erna María Björnsdóttir.
Neskja – Framleiðsla og markaðssetning á íslensku handgerðu hágæðakonfekti. Að baki Neskju standa konfektgerðarmeistararnir Ívar Kjartansson og Chidapha Kruasaeng.
Icelandic Gourmet Foods – Framleiðsla og markaðssetning á íslenskum sjávarréttum, unnum úr fersku hráefni og varðveittum með hefðbundinni niðursuðu. Að baki verkefninu standa Sigurlaugur Þorkelsson og Einar Víglundsson.
North Tropics – Framleiðsla og markaðssetning á hágæða mat- og heilsuvörum úr sveppum. Teymið á bakvið North Tropics samanstendur af þeim Adami Karli Helgassyni, Ragnari Raul Cardona, Álfgeiri Alejandro Önnusyni og Robert Cardona.
Norr Energy Gum – Framleiðsla og markaðssetning á sykurlausu tyggjói með virkni. Að baki verkefninu standa þau Hörður Jens Guðmundsson og Lena Rut Kristjánsdóttir.