Fara á efnissvæði
Til baka

Þorvaldur Þorláksson ráðinn forstöðumaður fasteigna- og þróunar hjá Högum.

Þorvaldur Þorláksson hefur verið ráðinn forstöðumaður fasteigna- og þróunar hjá Högum og hefur hafið störf. Helstu verkefni Þorvaldar verða þríþætt, þ.e. ábyrgð á rekstri fasteigna og lóða í eigu Haga, umsjón með leigumálum samstæðu og fasteignaþróun á breiðum grunni.

Þorvaldur hefur mikla reynslu af rekstri, stýringu og uppbyggingu fasteignaverkefna, m.a. við uppbyggingu og rekstur Smáralindar, Turnsins í Kópavogi, Smáratorgs, Glerártorgs og fleiri verkefna. Þá hefur Þorvaldur töluverða reynslu af smásölurekstri í gegnum árin. Nú síðast starfaði Þorvaldur sem framkvæmdastjóri Stjörnunnar ehf sem rekur Subway á Íslandi. Þar áður starfaði Þorvaldur hjá Origo og Nýherja, m.a. sem framkvæmdastjóri heildsölu og dreifingar. Þorvaldur er rekstrarfræðingur að mennt.

“Þorvaldur hefur dýrmæta reynslu af rekstri og uppbyggingu fasteignaverkefna. Fasteignaumsvif Haga eru umtalsverð og sífelld áskorun að tryggja að fjárfestingar séu í takt við þarfir félagsins og viðskiptavina hverju sinni. Reynsla Þorvaldar mun nýtast Högum vel í verkefnum sem framundan eru og við bjóðum hann sérstaklega velkomin í hópinn“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.