Fara á efnissvæði
Til baka

Zara hefur opnað vefverslun á Íslandi

Fataverslunarkeðjan Zara hefur opnað vefverslun sína á Íslandi. Með opnuninni er Zara að marka viss þáttaskil í alþjóðlegri sókn sinni þegar kemur að netverslun á þeim svæðum þar sem Inditex, móðurfélag Zara, er á markaði. Á vefsíðunni zara.com/is geta viðskiptavinir á Íslandi nálgast allan fatnað og varning fyrir dömur, herra og börn sem fáanlegur er á því markaðssvæði sem Zara á Íslandi starfar á.

Netverslunin hefur verið hönnuð til að veita notendavæna upplifun við netkaupin en viðmót hennar er á ensku. Auk heimasíðu Zara, geta viðskiptavinir notast við snjallforrit Zara sem fáanlegt er fyrir bæði iOS og Android

Viðskiptavinir geta valið að fá pantanir sínar heim að dyrum gegn gjaldi eða sótt í verslun Zara, þeim að kostnaðarlausu. Stöðluð heimsending kostar 795 krónur og er hún ókeypis ef verslað er fyrir meira en 9.995 krónur. Áætlaður sendingartími er 5-8 virkir dagar. Til að skila eða skipta vöru, hafa viðskiptavinir möguleika á að senda vörur til baka eða skila í verslun innan 30 daga.

Hagar fagna því að geta nú boðið Íslendingum upp á breiðara úrval en gengur og gerist í verslun Zara í Smáralind og á sama tíma gera viðskiptavinum á landsbyggðinni kleift að fá vörur Zara heim að dyrum. Að sama skapi hefur eftirspurn eftir netverslun Zara verið mikil, þá sérstaklega á krefjandi veirutímum sem þessum þar sem samkomutakmarkanir í verslanir hafa haft töluverð áhrif.

Zara er hluti af Inditex Group og var stofnuð á Spáni árið 1975. Tískuvörur Zara eru seldar bæði í verslunum og á netinu sem ná yfir fleiri en 200 markaðssvæði. Auk Zara, rekur Inditex verslanir undir vörumerkjunum Pull&Bear, Massimo Dutti, Bershka, Stradivarius, Oysho og Zara Home. Félagið starfrækir í dag 7.337 verslanir um allan heim og er ein af þeim staðsett í Smáralind.

Fyrsta verslun Zara opnaði á Íslandi árið 2001 og í dag starfrækja Hagar eina verslun undir merki Zara með sérleyfissamningi frá Inditex á Spáni.