Hagar miðlar standa fyrir viðburðinum Í augsýn viðskiptavina í verslun þann 17. apríl næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík. Mikill áhugi hefur verið á viðburðinum og er hann nú fullbókaður. Áhugasamir geta skráð sig á biðlista á vefsíðunni hagarmidlar.is.
Viðburðurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi og fjallar um smásölumiðlun (e.retail media), einn hraðast vaxandi auglýsingamiðil heims. Á dagskrá eru fjölbreytt erindi og pallborðsumræður þar sem sérfræðingar úr smásölu- og markaðsgeiranum miðla reynslu sinni og þekkingu. Einnig munu Hagar kynna sérstaklega nýja þjónustu Haga miðla.
Meðal fyrirlesara er Kathrine Rønhof Karstensen framkvæmdastjóri Matas Media í Danmörku og einn fremsti sérfræðingur Norðurlanda á sviði smásölumiðlunar. Hún mun fara yfir vegferð Matas frá uppbyggingu smásölumiðlaþjónustu þeirra árið 2019 til þess árangurs sem náðst hefur í dag.
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, mun fjalla almennt um smásölumiðlun sem nýjung á íslenskum markaði og Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður Haga miðla, kynnir svo nýja þjónustu Haga miðla og þau tækifæri sem hún skapar fyrir auglýsendur.
Að erindum loknum fara fram pallborðsumræður þar sem reynslumiklir aðilar úr íslensku smásölu- og markaðsumhverfi ræða hvernig best sé að ná til viðskiptavina, á réttum stað og á réttum tíma.
Viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og hefst klukkan 13:00 þann 17. apríl á Grand Hótel Reykjavík.