Fara á efnissvæði
Til baka

Saman til stuðnings við íbúa Úkraínu

Bónus, Hagkaup og Olís bjóða nú viðskiptavinum sínum upp á að styrkja íbúa Úkraínu með framlagi til hjálparstarfs Rauða krossins þegar þeir versla. Viðskiptavinir geta bætt við 500 krónum við innkaup sín og Hagar greiða mótframlag að sömu upphæð fyrir verslanir Bónus, Hagkaups og Olís allt að 15 milljónum króna.

Heimurinn er harmi slegin yfir ástandinu í Úkraínu og er fyrirséð að neyð almennra borgara þar í landi muni aukast dag frá degi. Rauði krossinn leggur áherslu á að hjálpa fólki á svæðinu við að fá aðgengi að vatni, matvælum og öðrum nauðsynjum.  

Hægt er að sjá nánar um hjálparstarf Rauða krossins á www.raudikrossinn.is