Fara á efnissvæði
Til baka

Hagar bætast við bakland Grænvangs

Hagar hafa gerst bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir. Grænvangur leiðir saman íslensk fyrirtæki og stjórnvöld til að vinna að sameiginlegu markmiði um kolefnishlutlaust Ísland 2040 og sér um verkefnisstjórn Loftslagsvegvísis atvinnulífsins sem er gefinn út annaðhvert ár í samvinnu sex atvinnugreinafélaga og Bændasamtakanna. Auk þess kynnir Grænvangur íslenskar grænar lausnir erlendis í samstarfi við Íslandsstofu undir merkjum Green by Iceland.

„Við hjá Högum hlökkum til að taka þátt í starfi Grænvangs. Aðgerðir í losun gróðurhúsalofttegunda er eitt af meginþáttum í sjálfbærnimálum Haga. Við höfum farið í viðamiklar innviða aðgerðir til að draga úr losun í okkar starfsemi og munum halda áfram að leggja mikla áherslu á þessi verkefni. Stefna okkar er að Hagar verði áfram leiðandi fyrirtæki á Íslandi þegar kemur að umhverfis- og samfélagslegum málefnum” segir Finnur Oddsson forstjóri Haga.

Bakland Grænvangs er víðtækt og telur nú yfir 40 aðila, þeirra á meðal ráðuneyti, orkufyrirtæki, verkfræðistofur og banka sem öll láta sig loftslagsmálin varða. Birta Kristín Helgadóttir starfandi forstöðumaður Grænvangs fagnar því að fá Haga í hópinn, „loftslagsmálin verða ekki leyst án aðkomu íslensks atvinnulífs og Grænvangur styrkist við að bjóða velkominn jafn öflugan aðila og Haga, sem starfa á mörgum þeim mörkuðum sem mestu máli skipta í baráttunni framundan og hafa sett sjálfbærni á oddinn í sinni starfsemi undanfarin ár”.