Fara á efnissvæði
Til baka

Elísabet Austmann ráðin forstöðumaður nýsköpunar- og markaðsmála hjá Högum

Elísabet Austmann hefur verið ráðin forstöðumaður nýsköpunar- og markaðsmála hjá Högum hf. Til viðbótar við störf tengdum nýsköpunar- og markaðsmálum mun Elísabet einnig bera ábyrgð á vörumerkja- og sam­skipta­mál­um Haga á breiðum grunni. 

Elísabet kemur til Haga frá BIOEFFECT þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðssviðs og leiddi m.a. markaðs- og vörumerkjauppbyggingu á húðvörulínu BIOEFFECT á innlendum og erlendum mörkuðum. Elísa­bet hef­ur áratuga reynslu af markaðsmá­l­um og vörumerkj­a­stýr­ingu, m.a. við markaðssetningu ís­lenskr­a vara og þjón­ustu á innlendum og er­lend­um mörkuðum. Áður starfaði Elísabet fyrir Marel á Íslandi og í Danmörku þar sem hún m.a. vann að endurmörkun, sem og upp­bygg­ingu og inn­leiðingu á sýn­ing­ar- og þjálf­un­ar­hús­næði fyrirtækisins. Þar áður starfaði Elísabet hjá Glitni og Ölgerðinni.

Elísa­bet, sem er alþjóðamarkaðsfræðing­ur með MBA frá Há­skól­an­um í Reykja­vík, mun hefja störf fyrir Haga í apríl næstkomandi. 

Finnur Oddsson, forstjóri Haga:

Það er fengur af því að fá Elísabetu til liðs við okkur hjá Högum. Víðtæk reynsla hennar á sviði vörumerkja-, markaðs- og kynningarmála mun nýtast okkur til að efla samtal við viðskiptavini og aðra hagaðila og stuðla að því að þjónustuframboð félaga samstæðunnar uppfylli þarfir neytenda á hverjum tíma sem best. Við bjóðum hana sérstaklega velkomna í teymið.”

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, fo@hagar.is, forstjóri Haga hf.