Fara á efnissvæði

Olís

Olís
Olís
Olís
Olís
  • Stofnað 1927
  • Þjónustustöðvar 22
  • ÓB stöðvar 43
  • Fjöldi starfsmanna 430+
Sjálfbærniskýrsla Olís 2024

Olís ehf. var stofnað árið 1927 og er því elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Olís sérhæfir sig í sölu og þjónustu á eldsneyti og öðrum olíuvörum, auk sölu veitinga og ýmissa nauðsynjavara fyrir bílaeigendur. Olís sinnir einnig fjölþættri sölu og þjónustu gagnvart stórnotendum um land allt, m.a. sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtækjum.

Grunnrekstur Olís hefur ávallt verið eldsneytissala, en með nýtingu á dreifineti fyrirtækisins og sérfræðiþekkingu hefur vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins verið víkkað, m.a. með samstarfi við Dropp og Wolt. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. en Olíudreifing sér m.a. um birgðahald og dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olís.

Hlutverk Olís er að vera verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum góðar vörur á samkeppnishæfu verði, ásamt sveigjanlegu sölu- og þjónustukerfi um land allt. Þá leggur Olís áherslu á umhverfisvernd og mannúðarmál í allri sinni starfsemi.

Olís rekur 22 þjónustustöðvar vítt og breitt um landið undir vörumerki Olís, þar af 8 á höfuðborgarsvæðinu. Markmið þjónustustöðva Olís er að vera „vinir við veginn“ og vera áfangastaður viðskiptavina á ferðinni um landið. Á stærstu þjónustustöðvum sínum rekur Olís skyndibitamerkin Grill 66 og Lemon mini.

Olís hefur frá haustinu 2022 átt í samstarfi við Ísorku um uppbyggingu á neti hraðhleðslustöðva, vítt og breitt um landið. Síðan þá hefur stöðvunum fjölgað jafnt og þétt og hafa í dag 17 hraðhleðslustöðvar verið settar upp á Olís og ÓB stöðvum.

Fyrsta ÓB-sjálfsafgreiðslustöðin var opnuð árið 1996 í Hafnarfirði en þær eru nú orðnar 43 talsins um land allt, þar af níu á höfuðborgarsvæðinu og 34 á landsbyggðinni.

Olís hefur í gegnum tíðina hugað vel að umhverfismálum og leggja áherslu á stuðning við félagasamtök og íþróttastarfsemi. Olís leggur jafnframt áherslu á að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og starfsánægja eru höfð a ð leiðarljósi.

Olís