Bónus
- Stofnað 1989
- Fjöldi verslana 33
- Fjöldi starfsmanna 1.000+
- Fjöldi vörunúmera 3.000+
Bónus opnaði sína fyrstu verslun árið 1989 við Skútuvog 13 í Reykjavík. Viðtökur landsmanna við hinni nýju verslun voru frábærar enda vöruverð mun lægra en þá þekktist. Frá þessum tíma hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt, með 33 verslanir í lok árs 2024/25 - 20 á höfuðborgarsvæðinu og 13 á helstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni.
Frá upphafi hefur markmið Bónus verið skýrt; að tryggja neytendum um land allt lægsta mögulega vöruverð hverju sinni, auk þess sem Bónus hefur ávallt boðið sama verð í öllum sínum verslunum. Lykillinn að markmiðinu hefur verið lágur rekstrarkostnaður, íburður í lágmarki, takmarkað vöruúrval sem spannar þó allar þarfir heimilisins, stöðugt kostnaðaraðhald og mikill veltuhraði. Leiðarljós fyrirtækisins hefur ávallt verið að láta viðskiptavini njóta ávinnings af hagstæðum innkaupum og hagkvæmum rekstri.
Sjálfbærni og stuðningur við samfélagið hefur verið grunnstef í starfsemi Bónus allt frá upphafi. Fyrirtækið flokkar til dæmis plast, pappa og annan úrgang í öllum verslunum og hefur gert um margra árabil.

- Framkvæmdastjóri Björgvin Víkingsson
- Heimilisfang Skútuvogi 13
- Sími 527-9000
- Hafa samband https://bonus.is/hafa-samband/
- Veffang http://www.bonus.is/