Um Haga
Hagar eru fjölskylda af fyrirtækjum með starfsemi á Íslandi, í Færeyjum og í Hollandi en kjarnastarfsemi Haga er á sviði dagvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu. Öll fyrirtæki Haga hafa það markmið að veita framúrskarandi þjónustu, selja gæða vörur á sanngjörnu verði og hafa um leið eins jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og mögulegt er.
Á vegum Haga eru reknar níu sjálfstæðar rekstrareiningar með ólík rekstrarform og menningu, auk netverslunar með áfengi í Hollandi. Allar einingarnar leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu, sjálfbærni og virðisaukningu fyrir eigendur félagsins. Rekstrareiningar Haga búa yfir áralangri þekkingu á viðskiptum og smásölu og byggja á trausti viðskiptavina sem áunnist hefur um langt árabil.
STERKARI SAMAN
Þó svo að allar rekstrareiningar hjá Högum séu reknar sem sjálfstæðar einingar þá trúum við því að við séum sterkari saman, m.a. með því að byggja á sameiginlegum innviðum og deila þekkingu. Hjá félögum Haga, bæði á Íslandi og í Færeyjum, starfa um 3.500 starfsmenn í 1.800 stöðugildum sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks með sínum störfum. Starfsfólk félagsins býr yfir áralangri þekkingu á verslun, bæði á Íslandi og í Færeyjum, og hefur byggt upp viðskiptatengsl um allan heim við birgja og framleiðendur.
HÖFUM JÁKVÆÐ ÁHRIF
Hagar og dótturfélög leggja áherslu á sjálfbærni í allri sinni starfsemi og hafa lagt metnað sinn frá upphafi í að þjóna neytendum með ábyrgum hætti. Hagar taka virkan þátt í samfélagslegum verkefnum og starfsfólk og stjórnendur félagsins trúa því að það sé ekkert "plan B" og nálgast því öll verkefni með það fyrir augum að þau hafi jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.
HLUTVERK HAGA
Hlutverk Haga er að veita rekstrareiningum félagsins stuðning og aðhald í rekstri ásamt því að virkja rekstrar-, markaðs-, tækni- og viðskiptalega samlegð fyrirtækjanna til aukins hagræðis fyrir viðskiptavini og eigendur félagsins.
Allar rekstrareiningar Haga leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu, sjálfbærni og virðisaukningu fyrir eigendur félagsins. Lögð er áhersla á getu allra eininga til þess að hreyfa sig hratt og flækja ekki einfalda hluti.
Gildi Haga eru Þjónustulund, Samvinna, Hagkvæmni og Framsækni.
REKSTRAREININGAR HAGA
Innan þeirra átta rekstrareininga sem Hagar starfrækja á Íslandi í lok rekstrarárs eru 40 dagvöruverslanir, ein netverslun með matarpakka, 22 Olís þjónustustöðvar og 43 ÓB-stöðvar um allt land. Einnig rekur félagið tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Í Færeyjum starfrækja Hagar verslunarfélagið SMS sem er leiðandi á færeyska markaðinum en SMS rekur m.a. 13 dagvöruverslanir, sex veitingastaði og þrjár sérvöruverslanir. Í Hollandi starfrækja Hagar eina netverslun með áfengi.
Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland með auðkenninu HAGA. Höfuðstöðvar félagsins eru á Holtavegi 10 í Reykjavík.
Dótturfélög í samstæðu Haga, þar sem rekstrareiningar félagsins eru starfræktar, eru Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Eldum rétt ehf., Bananar ehf., Stórkaup ehf., Noron ehf., P/F SMS og Hagar Wine B.V.
Undir hatti Haga verslana eru fyrirtækin Bónus, Hagkaup og Aðföng. Bónus og Hagkaup eru tvær af stærstu matvöruverslunarkeðjum landsins og sinnir vöruhúsið Aðföng innflutningi, innkaupum og dreifingu fyrir matvörukeðjurnar og Olís. Olís sérhæfir sig í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist, auk sölu skyndibita og ýmissa nauðsynjavara.
Eldum rétt er netverslun með matarpakka og ein stærsta netverslun landsins með dagvöru. Bananar er stærsti dreifingaraðili á fersku grænmeti og ávöxtum á Íslandi. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með rekstrarvörur, hreinlætisvörur og heilbrigðisvörur. Noron rekur tískuvöruverslunina Zara í Smáralind sem selur fatnað og fylgihluti fyrir alla aldurshópa. SMS er verslunarfélag í Færeyjum en starfsemi þess er í dagvöru, sérvöru og veitingastaðarekstri. Starfsemi Haga Wine felst í rekstri netverslunar með áfengi.
Hlutdeildarfélög Haga eru Klasi ehf. og Djús ehf. Hagar eiga 1/3 hlut í Klasa en félagið er fasteignaþróunarfélag sem unnið hefur að fjölmörgum þróunarverkefnum í tæp 20 ár. Djús rekur veitingastaði undir merkjum Lemon en Hagar eiga 49% hlut í félaginu. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. og á auk þessi hluti í fleiri smærri félögum.