Framkvæmdastjórar rekstrareininga
Björgvin Víkingsson (f. 1983)
Netfang: bjorgvin@bonus.is
Björgvin er framkvæmdastjóri Bónus. Hann hóf störf hjá Bónus 1. maí 2023 og tók við starfi framkvæmdastjóra þann 1. janúar 2024. Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin starfaði sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020 en hann hefur auk þess víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík.
Eiður Eiðsson (f. 1968)
Netfang: eidure@hagar.is
Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafrænni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafrænni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS.
Ingunn Svala Leifsdóttir (f. 1976)
Netfang: isl@olis.is
Ingunn Svala er framkvæmdastjóri Olís en hún tók við starfinu 1. janúar 2024. Ingunn Svala er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á reikningshald og fjármál, og lauk Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Auk þess lauk Ingunn Svala AMP prógrammi frá IESE Business School í New York árið 2018. Ingunn Svala starfaði áður sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dohop og þar áður sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík í sjö ár. Ingunn Svala hefur auk þess viðamikla reynslu af stjórnunarstörfum og hefur t.a.m. starfað fyrir Kaupþing, skilanefnd Kaupþings og Actavis Group PTC.
Jóhanna Þ. Jónsdóttir (f. 1970)
Netfang: johanna@bananar.is
Jóhanna er framkvæmdastjóri Banana ehf. en hún hóf störf í september 2021. Jóhanna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Tækniháskóla Íslands. Jóhanna hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf., innkaupastjóri Distica hf., sem innkaupa- og birgðastjóri hjá Bláa Lóninu hf. og Össuri hf.
Lárus Óskarsson (f. 1960)
Netfang: larus@adfong.is
Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðsstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988.
Sigurður Reynaldsson (f. 1966)
Netfang: sr@hagkaup.is
Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999.