Fara á efnissvæði

Aðföng

Aðföng
Aðföng
Aðföng
Aðföng
  • Stofnað 1993
  • Fjöldi starfsmanna 170+
  • Viðskiptalönd 29
Sjálfbærniskýrsla Aðfanga 2024

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði en starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups og Olís auk heildverslunar Stórkaups. Sögu Aðfanga má rekja aftur til ársins 1993 þegar Bónus og Hagkaup stofnuðu sameiginlegt innkaupafyrirtæki undir nafninu Baugur ehf. Fyrirtækið hóf starfsemi í Suðurhrauni í Garðabæ og fékk nafnið Aðföng fimm árum síðar en þá um haustið, árið 1998, flutti fyrirtækið í Skútuvog 7. Alla tíð síðan hefur Aðföng þróað þar starfsemi sína fyrir þurrvörulager. Auk þurrvörulagers í Skútuvogi rekur Aðföng kæli- og frystivörugeymslu í Korngörðum 1 og starfsemi Ferskra kjötvara í Síðumúla 34. Ferskar kjötvörur eru einn af stærstu kjötverkendum landsins og býður neytendum upp á það besta í nauti og lambi frá íslenskum bændum. Ferskar kjötvörur leggja mikla áherslu á ferskleika, gæði og rekjanleika vara og sjá öllum matvöruverslunum Bónus og Hagkaups fyrir kjöti.

Innkaup Aðfanga felast annars vegar í viðskiptum við innlenda birgja og hins vegar innflutningi, þar á meðal eigin vörumerkja. Aðföng vinnur að vöruþróun eigin merkja í samstarfi við matvörukeðjurnar en þar ber hæst vörumerkin Himneskt og Heima. Aðföng flytur einnig inn léttvín frá helstu vínræktarhéruðum heims sem selt er í netverslun Haga Wine og í vínbúðum ÁTVR.

Stærðarhagkvæmni er lykilstef í allri starfsemi Aðfanga en um 15.000 vörunúmer, sem koma frá 30 viðskiptalöndum, fara í gegnum vöruhús fyrirtækisins, sem svo er dreift í um 70 verslanir. Nýjasta tækni er nýtt við rekstur fyrirtækisins hvar sem því verður við komið. Til þess að Aðföng geti sinnt kjarnahlutverki sínu, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli.

Aðföng leggja áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar en með skilvirkum verkferlum og umhverfisvænum lausnum leggur Aðföng sitt á vogarskálarnar. 

Aðföng