Fara á efnissvæði

Stjórn Haga

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur er formaður stjórnar en hann var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 18. janúar 2019. Hann er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði hann stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University á árunum 1992-1994. Eiríkur er forstjóri Kaldbaks ehf. Þar áður var Eiríkur forstjóri Slippsins á Akureyri 2015 til loka árs 2021 ásamt því að sinna starfi stjórnarformanns Samherja, en því starfi sinnti hann 2005-2023. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og vann fyrir skilanefnd bankans til 2014. Þar áður var hann forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur hann starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur á að baki stjórnarsetu í ýmsum félögum á Íslandi sem og erlendis. Eiríkur er í dag stjórnarformaður Optimar AS og Knattspyrnufélags Akureyrar auk félaga innan samstæðu Kaldbaks, einnig er hann varaformaður stjórnar Jarðborana. Hann er í stjórn Hrólfsskers ehf., auk fjölskyldutengdra félaga. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Kaldbaki ehf. sem á 90.000.000 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisaðila.

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Eva er varaformaður stjórnar. Hún var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMG slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. og Kassetta ehf. auk þess sem hún hefur setið í stjórn Viðskiptaráðs Íslands frá árinu 2022. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Einar Örn Einarsson (f. 1977)

Einar Örn Einarsson (f. 1977)

Einar Örn var kjörinn í stjórn Haga hf. þann 27. maí 2025. Hann er með B.A.-gráðu í hagfræði frá Northwestern University. Einar Örn er frumkvöðull og framkvæmdastjóri með þekkingu á heildsölu, veitingarekstri, tæknimálum og markaðssetningu. Hann stofnaði Stockholm City Food Hall og alþjóðlegu keðjuna Zócalo, sem rekur 22 mexíkóska veitingastaði í Evrópu. Einar Örn er einnig meðstofnandi Vår Pizza í Stokkhólmi og stofnaði Serrano á Íslandi. Hann hefur setið í stjórnum Zócalo Holding og Keflavíkurflugvallar ohf. Einar Örn situr í stjórnum Serrano Nordics ehf., Burrito Island ehf., Götgatan ehf., Wok to Walk Iceland ehf. og er í aðalstjórn íþróttafélagsins Þróttar. Hvorki Einar Örn né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er með MBA-gráðu frá University of San Diego, með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc.-gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína hefur verið framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf. frá 2020. Áður var hún Associate Partner hjá Valcon consulting frá 2019 – 2020. Jensína var framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sölu á einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (síðar Capacent) 2001-2004. Jensína situr í stjórn Íslandssjóða hf. og Vinnvinn ehf. og er auk þess stjórnarformaður hjá Sunnuvegi 13 ehf. Jensína er formaður tilnefningarnefnda Símans og Skaga. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Jensína á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengd Sunnuvegi 13 ehf. sem á 60.000 hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960)

Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960)

Sigríður var kjörin í stjórn Haga hf. þann 1. júní 2022. Hún er með AMP gráðu frá Harvard Business School, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, rekstar- og viðskiptanám hjá Endurmenntun HÍ og kerfisfræði frá EDB-skolen í Danmörku. Sigríður hefur verið stjórnandi í hugbúnaðar- og hátæknigeiranum og Íslandsbanka. Var sviðsstjóri þjónustu hjá Völku ehf. 2019-2021, framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka 2010-2019, sjálfstætt starfandi og í stjórnarstörfum 2008-2010, forstjóri Humac ehf. (Apple umboðið á Íslandi auk 4 dótturfélaga á Norðurlöndunum) 2007-2008, framkvæmdastjóri Skipta/Símans 2006-2007 og áður framkvæmdastjóri hjá Ax hugbúnaðarhúsi, Ax Business Intelligence AS og Tæknival hf. Sigríður er stjórnarformaður Nova og DTE ehf., stjórnarmaður og meðeigandi Magnavita ehf. og situr í tilnefningarnefnd Sjóvá. Sigríður á 35.000 hluti í Högum hf. Engir aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.