Fara á efnissvæði

Fréttir

Fréttir

Frosti Ólafsson ráðinn framkvæmdastjóri Olís
31. ágú. 2021 Tilkynningar

Frosti Ólafsson ráðinn framkvæmdastjóri Olís

Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf þann 3. september næstkomandi. Frosti býr að víðtækri reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi, hérlendis og erlendis, og hefur á síðustu árum m.a starfað sem forstjóri ORF líftækni og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Jóhanna Þ. Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf.
20. ágú. 2021 Tilkynningar

Jóhanna Þ. Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf.

Jóhanna Þ. Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf., dótturfélags Haga hf., en líkt og fram kom í tilkynningu þann 2. júlí sl. hefur Kjartan Már Friðsteinsson beðist lausnar úr starfi eftir langan og farsælan feril. Jóhanna hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa.

Nýsköpunarsjóður Haga styrkir átta nýsköpunarverkefni í matvælaiðnaði
9. júl. 2021 Samfélagsmál

Nýsköpunarsjóður Haga styrkir átta nýsköpunarverkefni í matvælaiðnaði

Hagar veita átta frumkvöðlafyrirtækjum styrk að verðmæti 11 milljóna króna til að vinna að nýsköpunarverkefnum í matvælaiðnaði. Hagar stofnuðu í apríl nýsköpunarsjóðinn Uppsprettuna sem ætlaður er til stuðnings við frumkvöðla til þróunar og nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á að verkefnin sem að hljóta styrkveitingu taki tillit til sjálfbærni og styðji innlenda framleiðslu.

Tekjuaukning á 1F og bætt afkoma milli ára
25. jún. 2021 Tilkynningar

Tekjuaukning á 1F og bætt afkoma milli ára

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2021/22 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 25. júní 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Ársskýrsla Haga 2020/21 er komin út
2. jún. 2021 Tilkynningar

Ársskýrsla Haga 2020/21 er komin út

Ársskýrsla Haga fyrir rekstrarárið 2020/21 er komin út.

Hagar kaupa helmings hlut í Lemon
26. maí 2021 Almennar fréttir

Hagar kaupa helmings hlut í Lemon

Hagar hf. og eigendur Djús ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga hf. á helmings hlut í Djús ehf., sem á og rekur veitingastaði undir merkjum Lemon.

Veltuaukning og bætt afkoma á 4F
10. maí 2021 Tilkynningar

Veltuaukning og bætt afkoma á 4F

Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2020/21 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 10. maí 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2020 til 28. febrúar 2021. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Nýsköpunardagur Haga haldinn í fyrsta sinn
26. apr. 2021 Almennar fréttir

Nýsköpunardagur Haga haldinn í fyrsta sinn

Hagar hafa stofnað styrktarsjóðinn Uppsprettu sem að verður kynntur á Nýsköpunardegi Haga sem ber yfirskriftina Virkjum kraftinn, frá hugmynd á diskinn þinn. Markmið og tilgangur Nýsköpunardagsins er að hvetja til nýsköpunar og aukinnar sjálfbærni í matvælaiðnaði. Átta frumkvöðlar og sérfræðingar í matvælaiðnaði munu halda erindi á viðburðinum sem streymt verður miðvikudaginn 28. apríl kl.12:00.

Hagar selja Reykjavíkur Apótek
20. apr. 2021 Tilkynningar

Hagar selja Reykjavíkur Apótek

Hagar selja Reykjavíkur Apótek og rekstur tveggja verslana. Ólafur Adólfsson sem áður var eigandi Reykjavíkur Apóteks hefur keypt 90% hlut, sem að seldur var til Haga árið 2019, og tekið yfir rekstur apóteksins við Seljaveg 2. Lyfja hefur keypt rekstur apóteksins í Skeifunni 11b og eru kaupin með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins.

Hagar selja Útilíf
9. apr. 2021 Tilkynningar

Hagar selja Útilíf

Íslensk fjárfesting og J.S. Gunnarsson hafa í sameiningu keypt Útilíf af Högum. Eftir kaupin er Íslensk fjárfesting 60% hluthafi en J.S. Gunnarsson heldur á 40% hlut í félaginu.