Styrkhafar 2022

Styrkhafar 2022
Alls bárust tugir umsókna um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd 12 verkefni til styrkveitingar að heildarverðmæti 16 milljón króna. Styrkirnir voru kynntir á sérstökum viðburði á lokadegi Nýsköpunarvikunnar.
Hops
Hops er ný gerð áfengislausra drykkja sem framleiddir verða á Íslandi. Drykkirnir eru bruggaðir eftir nýstárlegum aðferðum sem þróuð hefur verið með Álfi Brugghúsi. Hops er án aukaefna, sykurlaus og áfengislaus.
Smjer
Smjer er allt sem þú þarft í einu smjörstykki til þess að gera dýrindis sósu á örskammri stundu. Fyrsta vara Smjer er bearnaise og ættu allir landsmenn að geta eldað ljúffenga bearnaise með steikinni í sumar.
Baða
Baða framleiðir íslenskar sápur úr íslenskum hráefnum. Baða hefur fengið styrk til framleiðslu og þróunar á þremur nýjum vörum sem að nota íslensk hráefni sem að hafa græðandi og róandi áhrif.
Svepparíkið
Svepparíkið vinnur að þróun og ræktun á sælkeramatsveppum úr lífrænum úrgangi frá matvælaiðnaði. Sjálfbær ræktun sælkerasveppa er ný á Íslandi.
Sifmar
Sifmar er sprotafyrirtæki sem að vinnur að framleiðslu á hollum íslenskum barnamat. Hugmyndafræði fyrirtækisins er að nýta íslenskt grænmeti og ávexti sem annars færu til spillis og vinna það áfram með íslenskum orku- og vatnsauðlindum.
Úr sveitinni
Úr sveitinni er sprotafyrirtæki sem að vinnur að ræktun á gulrætum í öllum regnbogans litum. Litríkar gulrætur gera meðlætið og nestið skemmtilegra.
Máltíð á mettíma
Máltíð á mettíma er vörulína frostþurrkaðra rétta. Fyrsti rétturinn sem kemur á markað er Kjöt í karrý.
Bökum saman
Bökum saman er fjölskyldufyrirtæki sem að auðveldar fjölskyldum að skapa saman gæðastundir við bakstur. Bökum saman hefur fengið styrk til þróunar á þremur nýjum vörum frá fyrirtækinu.
Krispa fiskisnakk
Krispa fiskisnakk eru kryddaðar snakkflögur sem innihalda íslensk hráefni og þurrkaðan íslenskan fisk. Krispa verður fáanlegt í fjórum bragðtegundum .
Mijita
Mijita er sprotafyrirtæki sem að framleiðir matvæli byggð á Kólumbískri matargerð. Arepa sem eru vegan flatbökur úr maís verða fyrstu vörur Mijita.
Anna Marta
Anna Marta er sprotafyrirtæki sem að framleiðir heilsuvörur úr íslenskum hráefnum. Anna Marta hefur fengið styrk til að þróunar og framleiðslu á þremur nýjum vörum, Pestó Spæsí, Pestó Sól og einstöku súkkulaði.
Ella Stína
Ella Stína er sprotafyrirtæki sem að framleiðir eingöngu vörur úr hráefni úr plönturíkinu. Ella Stína hefur fengið styrk til þróunar á nýjum vegan vörum.