Fara á efnissvæði

2026

Aðalfundur 2026

Frá tilnefningarnefnd Haga vegna aðalfundar 2026

Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 21. maí 2026.

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2026 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 25. mars nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is.

Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 17. apríl 2026 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má hér neðar en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018.

Auk framboðseyðublaðs má hér neðar finna nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. 

Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 30. apríl nk.

Framboðseyðublað 2026

Viðmið tilnefningarnefndar 2026