Fara á efnissvæði

Á vegum Haga eru reknar níu sjálfstæðar rekstrareiningar með ólík rekstrarform og menningu, auk netverslunar með áfengi í Hollandi. Allar einingarnar leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu, sjálfbærni og virðisaukningu fyrir eigendur félagsins. Rekstrareiningar Haga búa yfir áralangri þekkingu á viðskiptum og smásölu og byggja á trausti viðskiptavina sem áunnist hefur um langt árabil.

HLUTVERK HAGA

Hlutverk Haga er að veita rekstrareiningum félagsins stuðning og aðhald í rekstri ásamt því að virkja rekstrar-, markaðs-, tækni- og viðskiptalega samlegð fyrirtækjanna til aukins hagræðis fyrir viðskiptavini og eigendur félagsins. Allar rekstrareiningar Haga leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu, sjálfbærni og virðisaukningu fyrir eigendur félagsins. Lögð er áhersla á getu allra eininga til þess að hreyfa sig hratt og flækja ekki einfalda hluti.

GILDI HAGA

STERKARI SAMAN

Allar rekstrareiningar Haga eru reknar sem sjálfstæðar einingar en með áherslu á samvinnu, m.a. með því að byggja á sameiginlegum innviðum og deila þekkingu. Hjá félögum Haga störfuðu í árslok tæplega 3.500 starfsmenn í 1.876 stöðugildum sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks með sínum störfum. Starfsfólk félagsins býr yfir áralangri þekkingu á verslun, bæði á Íslandi og í Færeyjum, og hefur byggt upp viðskiptatengsl við birgja og framleiðendur um allan heim.

HÖFUM JÁKVÆÐ ÁHRIF

Hagar og dótturfélög leggja áherslu á sjálfbærni í allri sinni starfsemi og hafa lagt metnað sinn frá upphafi í að þjóna neytendum með ábyrgum hætti. Hagar taka virkan þátt í samfélagslegum verkefnum og starfsfólk og stjórnendur félagsins trúa því að það sé ekkert "plan B" og nálgast því öll verkefni með það fyrir augum að þau hafi jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. 

  • Dagvöruverslanir - Ísland 40

  • Þjónustu- og bensínstöðvar 67

  • Dagvöruverslanir - Færeyjar 13

  • Fjöldi starfsmanna 3.494

REKSTRAREININGAR HAGA

Innan þeirra átta rekstrareininga sem Hagar starfrækja á Íslandi í lok rekstrarárs eru 40 dagvöruverslanir, ein netverslun með matarpakka, 22 Olís þjónustustöðvar og 45 ÓB-stöðvar um allt land. Einnig rekur félagið tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Í Færeyjum starfrækja Hagar verslunarfélagið SMS sem er leiðandi á færeyska markaðinum en SMS rekur m.a. 13 dagvöruverslanir, sjö veitingastaði og fjórar sérvöruverslanir. Í Hollandi starfrækja Hagar eina netverslun með áfengi.

Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland með auðkenninu HAGA. Höfuðstöðvar félagsins eru á Holtavegi 10 í Reykjavík.

Dótturfélög í samstæðu Haga, þar sem rekstrareiningar félagsins eru starfræktar, eru Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Eldum rétt ehf., Bananar ehf., Stórkaup ehf., Noron ehf., P/F SMS og Hagar Wine B.V.

Undir hatti Haga verslana eru fyrirtækin BónusHagkaup og Aðföng. Bónus og Hagkaup eru tvær af stærstu matvöruverslunarkeðjum landsins og sinnir vöruhúsið Aðföng innflutningi, innkaupum og dreifingu fyrir matvörukeðjurnar og Olís. Olís sérhæfir sig í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist, auk sölu skyndibita og ýmissa nauðsynjavara. 

Eldum rétt er netverslun með matarpakka og ein stærsta netverslun landsins með dagvöru. Bananar er stærsti dreifingaraðili á fersku grænmeti og ávöxtum á Íslandi. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með rekstrarvörur, hreinlætisvörur og heilbrigðisvörur. Noron rekur tískuvöruverslunina Zara í Smáralind sem selur fatnað og fylgihluti fyrir alla aldurshópa. SMS er verslunarfélag í Færeyjum en starfsemi þess er að mestu í dagvöru, sérvöru og veitingastaðarekstri. Starfsemi Haga Wine felst í rekstri netverslunar með áfengi.

Hlutdeildarfélög Haga eru Klasi ehf. og Djús ehf. Hagar eiga 1/3 hlut í Klasa en félagið er fasteignaþróunarfélag sem unnið hefur að fjölmörgum þróunarverkefnum í rúm 20 ár. Djús rekur veitingastaði undir merkjum Lemon en Hagar eiga 49% hlut í félaginu. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. og á auk þessi hluti í fleiri smærri félögum. 

Regluvörður Haga er Guðrún Eva Gunnarsdóttir. Staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Tölvupóstfang regluvarða er regluvordur@hagar.is.

Framkvæmdastjórn Haga
Framkvæmdastjórn móðurfélags Haga skipa (frá vinstri): Eiður Eiðsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni, Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Finnur Oddsson, forstjóri og Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar.

Um Haga Bónus

Bónus stelpa og kremkex
Bónus karfa
Bónus starfsmenn
Bónus stelpa
Bónus barnabónus
  • Stofnað 1989

  • Verslanir 33

  • Starfsmenn 1.134

  • Vörusala +98 milljarðar

Um Bónus

Bónus opnaði sína fyrstu verslun árið 1989 við Skútuvog 13 í Reykjavík. Viðtökur landsmanna við hinni nýju verslun voru frábærar enda vöruverð mun lægra en þá þekktist. Frá þessum tíma hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt, með 33 verslanir í lok árs 2025/26 - 20 á höfuðborgarsvæðinu og 13 á helstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni.

Frá upphafi hefur markmið Bónus verið skýrt; að tryggja neytendum um land allt lægsta mögulega vöruverð hverju sinni, auk þess sem Bónus hefur ávallt boðið sama verð í öllum sínum verslunum. Lykillinn að markmiðinu hefur verið lágur rekstrarkostnaður, íburður í lágmarki, takmarkað vöruúrval sem spannar þó allar þarfir heimilisins, stöðugt kostnaðaraðhald og mikill veltuhraði. Leiðarljós fyrirtækisins hefur ávallt verið að láta viðskiptavini njóta ávinnings af hagstæðum innkaupum og hagkvæmum rekstri.

Sjálfbærni og stuðningur við samfélagið hefur verið grunnstef í starfsemi Bónus allt frá upphafi. Fyrirtækið flokkar til dæmis plast, pappa og annan úrgang í öllum verslunum og hefur gert í áratugi. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Bónus má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2025/26.

Hjá Bónus störfuðu í árslok 1.134 starfsmenn og var meðalfjöldi stöðugilda 518 á árinu, þar af 58% karlar og 42% konur.

Árið sem leið

Nýliðið rekstrarár hjá Bónus var gott í sögulegu samhengi. Vörusala nam rúmum 98 ma. kr. og jókst um 8,2% milli ára en aukin umsvif hafa styrkt EBITDA og hagnað hlutfallslega meira. Mikill meðbyr hefur verið með Bónus á árinu þar sem viðskiptavinum hefur fjölgað mikið og seldum stykkjum sömuleiðis. Stöðug áhersla hefur verið lögð á skilvirkan rekstur og hagkvæm innkaup en því til staðfestingar var í árslok nálægt helmingur af vöruvali Bónus á lægra eða sama verði og við lok febrúar 2025. Því til viðbótar hefur Bónus boðið viðskiptavinum sínum upp á verulegan sparnað í góðu samstarfi við birgja, með verkefnum á borð við „Ódýrast vikunnar“ og í gegnum vildarkerfi Takk.

Á árinu hélt verslunum með Gripið & Greitt áfram að fjölga, verslanir við Kjarnagötu á Akureyri og í Njarðvík fengu yfirhalningu, fleiri verslanir voru endurskipulagðar auk þess sem unnið var að skjávæðingu verslana.

Á rekstrarárinu 2024/25 hóf Bónus undirbúning á verkefni sem ber heitið Barnabónus en því var ætlað að styðja við bakið á barnafjölskyldum og létta þeim lífið á fyrstu mánuðum eftir fæðingu. Barnabónus er veglegur upphafspakki með nauðsynlegum vörum fyrir nýbura og foreldra þeirra. Barnabónus hefur hlotið fáheyrðra vinsælda en áætlað er að um 95% þeirra nýbura sem fæddust árið 2025 hafi fengið box afhent.

Framkvæmdastjórn Bónus
Framkvæmdastjórn Bónus skipa (frá vinstri): Ólafur Thors, markaðsstjóri, Róbert Dan Bergmundsson, upplýsingatæknistjóri, Örvar Þór Kristjánsson, innkaupastjóri, Guðmundur Már Þorsteinsson, rekstrarstjóri, Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri, og Erla Magnúsdóttir, fjármálastjóri.

Um Haga Hagkaup

Hagkaup salatbar
Fermingarkynning
Par að versla
Skálin
Leikföng og mæðgin
  • Stofnað 1959

  • Verslanir 7

  • Starfsmenn 695

  • Vörunúmer +60.000

Um Hagkaup

Hagkaup er leiðandi smásölufyrirtæki sem býður breitt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, snyrtivöru og leikföngum, ásamt góðu úrvali af fatnaði, tómstundavöru og heimilisvöru. Hagkaup var stofnað árið 1959 og starfaði fyrstu árin sem póstverslun en fyrsta verslunin var síðan opnuð við Miklatorg í Reykjavík árið 1967. Árið 1970 opnaði Hagkaup verslun sína í Skeifunni sem er eitt helsta flaggskip starfseminnar enn þann dag í dag.

Starfsemi Hagkaups á djúpar rætur að rekja í íslensku samfélagi, enda verið órofinn hluti af verslunarsögu landsins í 67 ár. Hugsjón Hagkaups hefur ávallt verið að bjóða viðskiptavinum upp á fjölbreytt vöruúrval, þægilegan opnunartíma og hlýlegt viðmót. Lögð er áhersla á að leita fjölbreyttra leiða til að gera hversdaginn aðeins skemmtilegri, ánægjulegri og einfaldari.

Hjá Hagkaup starfar metnaðarfullt starfsfólk sem er sífellt á höttunum eftir einstökum vörum sem mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina. Nýstárlegum hugmyndum er fagnað og unnið er stöðugt að því að finna lausnir sem gera upplifun viðskiptavina sem besta.

Í árslok rak Hagkaup sjö verslanir, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu og eina á Akureyri. Hagkaup leggur áherslu á þægindi og þjónustu og eru því tvær verslanir Hagkaups, í Skeifunni og Garðabæ, opnar allan sólarhringinn. Auk þess starfrækir Hagkaup öfluga netverslun með snyrtivörur, leikföng, veislurétti og aðra sérvöru og er boðið upp á sendingar hvert á land sem er, hratt og örugglega. Hagkaup er einnig í samstarfi við Wolt um heimsendingu á matvöru.

Hagkaup leggur ríka áherslu á sjálfbærnimál í allri sinni starfsemi og hefur fyrirtækið sett sér það markmið að vera í fararbroddi í málaflokknum. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Hagkaups má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2025/26.

Í árslok voru starfsmenn Hagkaups 695 talsins og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 331, þar af 41% karlar, 59% konur.

Árið sem leið

Að baki er sterkt ár með góðum afkomubata. Vörusala nam tæpum 27 ma. kr. og jókst um 7% milli ára en afkoma styrktist hlutfallslega meira. Heimsóknum viðskiptavina fjölgaði á árinu en seld stykki stóðu nánast í stað, m.a. vegna aukinnar áherslu á tilbúna rétti og stærri sölueiningar.  

Á árinu var unnið að áframhaldandi uppfærslu verslana en m.a. opnaði ný og uppfærð snyrtivörudeild í Hagkaup í Garðabæ á fyrri hluta árs. Þá hafa viðburðir og afsláttadagar Hagkaups verið vel sóttir sem fyrr, líkt og danskir dagar, vörukynningar, matreiðslunámskeið, Tax Free dagar, Heilsudagar, Ítalskir dagar o.fl.

Í desember hófu Hagkaup og Wolt samstarf um heimsendingu á matvöru frá Hagkaup. Samstarfið miðar að því að gera matvöruverslun aðgengilegri með því að gera viðskiptavinum kleift að panta fjölbreytt úrval af vörum Hagkaups á netinu og fá afhendingu á innan við klukkustund. Í upphafi eru um 4.000 vörunúmer í boði í gegnum Wolt appið en stefnt er að því að úrvalið verði enn meira þegar fram líða stundir.

Framkvæmdastjórn Hagkaup
Framkvæmdastjórn Hagkaups skipa (frá vinstri): Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri, Svanberg Halldórsson, rekstrarstjóri verslana, Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri, Andri Þór Sigurjónsson, upplýsingatæknistjóri, Arndís Arnarsdóttir, starfsmannastjóri, Ísak Pálmason, fjármálastjóri og Brynjar Helgi Ingólfsson, rekstrarstjóri innkaupa.

Um Haga Olís

Stelpa í símanum
Fjölskylda og bolti
Olís kaffibollar
Fyrirtækjasvið
Hamborgari og handbolti
  • Stofnað 1927

  • Þjónustu- og bensínstöðvar 67

  • Hraðhleðslustöðvar 18

  • Starfsmenn 424

Um Olís

Olís ehf. var stofnað árið 1927 og er því elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Olís sérhæfir sig í sölu og þjónustu á eldsneyti og öðrum olíuvörum, auk sölu veitinga og ýmissa nauðsynjavara fyrir bílaeigendur. Olís sinnir einnig fjölþættri sölu og þjónustu gagnvart stórnotendum um land allt, m.a. sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtækjum.

Grunnrekstur Olís hefur ávallt verið eldsneytissala, en með nýtingu á dreifineti fyrirtækisins og sérfræðiþekkingu hefur vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins verið víkkað, m.a. með samstarfi við Dropp og Wolt. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. en Olíudreifing sér m.a. um birgðahald og dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olís.

Hlutverk Olís er að vera verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum góðar og samkeppnishæfar vörur á samkeppnishæfu verði, ásamt sveigjanlegu sölu- og þjónustukerfi um land allt. Þá leggur Olís áherslu á umhverfisvernd og mannúðarmál.

Í árslok rak Olís 22 þjónustustöðvar vítt og breitt um landið undir vörumerki Olís, þar af 8 á höfuðborgarsvæðinu. Markmið þjónustustöðva Olís er að vera „vinir við veginn“ og vera áfangastaður viðskiptavina á ferðinni um landið. Á stærstu þjónustustöðvum sínum rekur Olís skyndibitamerkin Grill 66 og Lemon mini.

Olís hefur frá haustinu 2022 átt í samstarfi við Ísorku um uppbyggingu á neti hraðhleðslustöðva, vítt og breitt um landið. Síðan þá hefur stöðvunum fjölgað jafnt og þétt og hafa í dag 18 hraðhleðslustöðvar verið settar upp á Olís og ÓB stöðvum.

Fyrsta ÓB-sjálfsafgreiðslustöðin var opnuð árið 1996 í Hafnarfirði en þær eru nú orðnar 45 talsins um land allt, þar af níu á höfuðborgarsvæðinu og 36 á landsbyggðinni.

Olís hefur í gegnum tíðina hugað vel að umhverfismálum og leggja áherslu á stuðning við félagasamtök og íþróttastarfsemi. Olís leggur jafnframt áherslu á að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og starfsánægja eru höfð að leiðarljósi. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Olís má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2025/26.

Í árslok störfuðu 424 starfsmenn hjá Olís og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 310, þar af 52% karlar, 48% konur.

Árið sem leið

Afkoma á nýliðnu rekstrarári var sterk og árið eitt það besta í sögulegu samhengi, þrátt fyrir samdrátt í tekjum og seldum eldsneytislítrum. Samdrátt í tekjum má að mestu skýra með lækkun heimsmarkaðsverðs eldsneytis en afnám olíugjalds þann 1. janúar 2025 skýrir þó samdráttinn að hluta. Seldir eldsneytislítrar í smásölu stóðu nánast í stað milli ára en samdráttur var í sölu til stórnotenda. Veitinga- og vörusala á þjónustustöðvum jókst mikið en sem dæmi má nefna að vel yfir hálf milljón Grill 66 hamborgara seldust á árinu. Góður árangur náðist í aðhaldi og minnkun rekstrarkostnaðar sem studdi enn frekar við góðan EBITDA bata.

Á sumarmánuðum voru tvær nýjar ÓB stöðvar opnaðar. Sú fyrri opnaði í Búðardal þar sem íbúum Dalabyggðar og ferðafólki býðst nú lægra verð á eldsneyti. Seinni stöðin opnaði á Kjarnagötu á Akureyri, við verslun Bónus, en stöðin er frábær viðbót við þá þjónustu sem Olís og ÓB eru þegar með í bænum.

Á árinu opnuðu fjórar nýjar Glans bílaþvottastöðvar og voru stöðvarnar því orðnar fimm í árslok. Á miðju ári opnuðu nýjar stöðvar á Selfossi og við Gullinbrú, Bæjarlind opnaði í byrjun janúar og Skúlagata í lok febrúar 2026. Því hafa fimm snertilausar þvottastöðvar verið opnaðar á rúmlega 12 mánuðum en allar stöðvar eru búnar nýjustu tækni og notuð eru hágæða hreinsiefni ásamt graffín bóni. Móttökur Glans hafa verið afar góðar og hefur áskrifendum fjölgað hratt.

Framkvæmdastjórn Olís
Framkvæmdastjórn Olís skipa (frá vinstri): Þrúður Maren Einarsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, Hinrik Örn Bjarnason, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs, Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri, Thelma Björk Wilson, sviðsstjóri smásölusviðs og Kolbeinn Finnsson, sviðsstjóri mannauðs og rekstrar.

Um Haga SMS

Bónus
Mylnan
Sunset Runavík
Hornið
Rumbul
  • Stofnað 1977

  • Starfsmenn 778

  • Verslanir 17

  • Veitingastaðir 7

Um SMS

SMS er leiðandi verslunarfélag í Færeyjum en félagið á rætur að rekja aftur til ársins 1977. SMS rekur m.a. átta Bónus lágvöruverðsverslanir víða í Færeyjum auk stórverslunarinnar Miklagarðs í Þórshöfn en verslunin selur bæði matvöru og sérvöru, líkt og leikföng. Þá rekur Miklagarður einnig kjötvinnslu fyrir SMS samstæðuna. Í Þórshöfn eru reknar fjórar smærri matvöruverslanir undir nafninu Mylnan, en félagið rekur einnig brauð- og kökugerð fyrir samstæðuna.

SMS er einnig í rekstri annarra sérverslana og þjónustu, bæði í gegnum dótturfélög sín og hlutdeildarfélög. Ber þar helst að nefna rekstur smásöluverslana Rumbul og Sheep en þær selja ýmsa dagvöru á hagstæðu verði en SMS á 60% hlut í félögunum. Hlutdeildarfélögin eru líkamsræktarstöðvar Burn, og ís- og eftirréttagerðin Omaná en SMS á 50% hlut í félögunum.

SMS er umsvifamikið í annarri starfsemi, m.a. rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja og fjölda veitingastaða. Fjórir af veitingastöðunum eru í verslunarmiðstöðinni, þ.e. Burger King, Sunset Boulevard, Sushi Daily og Hornið. Þá eru reknir tveir steikarstaðir undir nafninu Angus Steakhouse í Þórshöfn og Klaksvík auk Sunset Boulevard staðar í Runavík.

SMS leggur sérstaka áherslu á að bjóða viðskiptavinum ávallt upp á hagkvæma matvörukosti, en um leið standa fyrir stöðugri framþróun í verslun til að tryggja góða upplifun viðskiptavina.

SMS á fjölbreytt fasteignasafn sem telur um 14.000 m2 sem er að mestu nýtt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila.

Í árslok störfuðu 778 manns hjá SMS og dótturfélögum, í 327 stöðugildum, þar af 34% karlar, 66% konur.

Árið sem leið

Að baki er fyrsta heila rekstrarár SMS innan samstæðu Haga en í lok nóvember 2024 undirrituðu Hagar samning um kaup á öllu hlutafé SMS í Færeyjum. Yfirtökudagur var 2. desember 2024 og varð SMS því hluti af samstæðu Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2024/25.

Rekstur félagsins gekk vel á árinu og var afkoma nokkuð yfir áætlunum. Vörusala nam tæpum 15 ma. kr. og EBITDA rúmum 2 ma. kr. Heimsóknum viðskiptavina fjölgaði töluvert á árinu og seldum stykkjum sömuleiðis.

Stærsta verkefni ársins var bygging á nýjum 3.000 m2 verslunarkjarna í Runavík sem opnaði í nóvember 2025. Eldri Bónusverslun á svæðinu var lokað og flutt þess í stað í stærra og betra verslunarrými í verslunarkjarnanum. Ný verslun Rumbul og veitingastaður Sunset Boulevard opnuðu þar einnig, auk þess sem sérvöruverslun þriðja aðila leigir rými í kjarnanum. Móttökur hafa verið frábærar og hefur til að mynda söluaukning Bónusverslunarinnar verið töluverð.

Bónus setti í loftið nýtt vildarkerfi í appi sem ber heitið Bónus+. Kerfið hefur fengið frábærar móttökur en það býður m.a. uppá sérstök tilboðsverð fyrir meðlimi, persónuleg tilboð, utanumhald á innkaupalistum og kvittunum, stafræna tilboðsbæklinga og margt fleira.

Framkvæmdastjórn SMS
Framkvæmdastjórn SMS skipa (frá vinstri): Susan Brockie, markaðsstjóri, Niels Mortensen, forstjóri, Jóhan Ziskason, upplýsingatæknistjóri, Sára Petersen, mannauðsstjóri, Høgni Zachariasen, verkefnastjóri framkvæmdastjórnar, og Susanne Nielsen, fjármálastjóri.

Um Haga Eldum rétt

Pizza
Vinnslan
Heimshornadagar
Sendill
Skurður
  • Stofnað 2013

  • Starfsmenn 52

  • Réttir á matseðli +600

  • Nýir viðskiptavinir +5.000

Um Eldum rétt

Eldum rétt er netverslun sem stofnuð var árið 2013. Eldum rétt býður viðskiptavinum sínum matarpakka með uppskriftum og hráefni í réttu magni til að elda hollar og bragðgóðar máltíðir, með sem minnstri fyrirhöfn. Markmið Eldum rétt er að gera eldamennskuna skemmtilegri og samverustundir fjölskyldunnar fleiri og betri.

Í hverri viku geta viðskiptavinir raðað saman réttum vikunnar í sinn matarpakka. Valið stendur á milli 26 rétta sem breytast í hverri viku og gerist fjölbreytnin því vart meiri. Með því að afhenda viðskiptavinum 2-5 rétti á sama tíma sparast bæði tími og orka. Öllum hráefnum er handpakkað svo hægt sé að tryggja hámarks ferskleika og gæði hverju sinni. Eldum rétt er leiðandi á þessum markaði og býður upp á ferska og holla lausn fyrir fjölskyldur og einstaklinga.

Pöntunarfrestur spilar lykilhlutverk í rekstri og þjónustu Eldum rétt. Viðskiptavinir panta með minnst fjögurra daga fyrirvara en með því fá þeir ferskari hráefni, meiri fjölbreytni, minni matarsóun og skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Í framleiðsluferlinu er tryggð lágmarks matarsóun þar sem pantað er nákvæmt magn hráefna frá birgjum og því pakkað í rétta skammta til viðskiptavina.

Eldum rétt framleiðir einnig matarkassa undir nafninu „Einstakir réttir“ sem seldir eru í verslunum Hagkaups. Í kassanum er að finna hráefni í réttum skömmtum fyrir tvo, ásamt uppskrift, líkt og hægt er að panta á netinu en í boði eru 9 mismunandi réttir hverju sinni.

Eldum rétt hefur gjörbylt neyslumynstri viðskiptavina sinna, en þúsundir landsmanna „elda rétt“ í viku hverri.

Í árslok störfuðu 52 starfsmenn hjá Eldum rétt og var meðalfjöldi stöðugilda á árinu 36, þar af 54% karlar, 46% konur.

Árið sem leið

Þægilegar, einfaldar og gómsætar lausnir frá Eldum rétt njóta áfram mikilla vinsælda hjá landsmönnum og endurspeglast það í rekstri. Á árinu var í auknum mæli boðið upp á rétti í flokknum „tilbúið til eldunar“ sem hafa notið mikilla vinsælda og ljóst að viðskiptavinir kunna vel að meta fjölbreyttari valkosti í matarpökkum.

Á líðandi ári var mikil vinna fólgin í undirbúningi og standsetningu á nýju framleiðslurými Eldum rétt við Álfabakka 2 í Reykjavík. Flutningar eru áætlaðir á haustmánuðum en ný aðstaða býður upp á aukið hagræði í framleiðsluferlum og fjölbreytt tækifæri til útvíkkunar á vöruframboði Eldum rétt.

Framkvæmdastjórn Eldum rétt
Framkvæmdastjórn Eldum rétt skipa (frá vinstri): Róbert K. Lárusson, tæknistjóri, Jón Arnar Jónsson, framleiðslustjóri, Snorri Guðmundsson, þróunarstjóri, Oddur Örnólfsson, framkvæmdastjóri, Krista Hall, markaðsstjóri og Hanný Inga Birschbach, þjónustustjóri.

Um Haga Aðföng

Vörhús
Ferskar nautahakk
Vörubílar
Starfsmaður í tölvu
Starfsmaður í gámi
  • Stofnað 1993

  • Starfsmenn 180

  • Vörunúmer +15.000

  • Viðskiptalönd 30

Um Aðföng

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði en starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups og Olís auk heildverslunar Stórkaups. Sögu Aðfanga má rekja aftur til ársins 1993 þegar Bónus og Hagkaup stofnuðu sameiginlegt innkaupafyrirtæki undir nafninu Baugur ehf. Fyrirtækið hóf starfsemi í Suðurhrauni í Garðabæ og fékk nafnið Aðföng fimm árum síðar en þá um haustið, árið 1998, flutti fyrirtækið í Skútuvog 7. Alla tíð síðan hefur Aðföng þróað þar starfsemi sína fyrir þurrvörulager. Auk þurrvörulagers í Skútuvogi rekur Aðföng kæli- og frystivörugeymslu í Korngörðum 1 og starfsemi Ferskra kjötvara í Síðumúla 34. Ferskar kjötvörur eru einn af stærstu kjötverkendum landsins og býður neytendum upp á það besta í nauti og lambi frá íslenskum bændum. Ferskar kjötvörur leggja mikla áherslu á ferskleika, gæði og rekjanleika vara og sjá öllum matvöruverslunum Bónus og Hagkaups fyrir kjöti, auk þess að þjónusta veitingahús og fleiri aðila.

Innkaup Aðfanga felast annars vegar í viðskiptum við innlenda birgja og hins vegar innflutningi. Aðföng flytur einnig inn bjór og léttvín frá helstu vínræktarhéruðum heims sem selt er í netverslun Veiga og í vínbúðum ÁTVR.

Stærðarhagkvæmni er lykilstef í allri starfsemi Aðfanga en um 15.000 vörunúmer, sem koma frá 30 viðskiptalöndum, fara í gegnum vöruhús fyrirtækisins, sem svo er dreift í um 70 verslanir. Nýjasta tækni er nýtt við rekstur fyrirtækisins hvar sem því verður við komið. Til þess að Aðföng geti sinnt kjarnahlutverki sínu, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli.

Aðföng leggja áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar en með skilvirkum verkferlum og umhverfisvænum lausnum leggur Aðföng sitt á vogarskálarnar. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Aðfanga má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2025/26.

Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 180 starfsmenn í 156 stöðugildum, þar af 79% karlar, 21% konur.

Árið sem leið

Umsvif jukust nokkuð á árinu, í samræmi við gott gengi dagvöruverslana Haga. Velta jókst og afkoma sömuleiðis. Vöruhús Aðfanga er vel í stakk búið að takast á við aukin umsvif enda hafa innviðir verið styrktir töluvert undanfarin ár. Nýtt vöruhúsakerfi hefur verið tekin í notkun sem styður við aukna skilvirkni en kerfið og nýleg stækkun vöruhússins tryggja hagkvæmt pláss fyrir áætlaðan vöxt næstu árin.

Á haustmánuðum 2026 mun starfsemi Ferskra kjötvara flytja í Álfabakka 2 í Reykjavík og var mikil vinna lögð í undirbúning á árinu og fór standsetning framleiðslurýmisins á fullt á seinni hluta árs. Ný aðstaða mun gjörbreyta framleiðsluferlum og auka til muna tækifæri fyrir frekari vöruþróun.

Framkvæmdastjórn Aðfanga
Framkvæmdastjórn Aðfanga skipa (frá vinstri): Davíð Ingi Daníelsson, innkaupastjóri, Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri, og Hafdís Rósa Sæmundsdóttir, fjármálastjóri.

Um Haga Bananar

Starfsmaður
Tómatar
Vöruhúsið
Avókadó og starfsmaður
Grænmeti
  • Stofnað 1955

  • Starfsmenn 105

  • Selt magn í tonnum +20.000

  • Daglegar pantanir +400

Um Banana

Bananar ehf. var stofnað árið 1955 og er næst elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Bananar er stærsti innflutnings- og dreifingaraðili á fersku grænmeti, ávöxtum og berjum á Íslandi og jafnframt eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins. Einnig eru Bananar stærsti kaupandi og dreifingaraðili á innlendri grænmetis- og berjaræktun.

Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna voru fyrstu starfsár þess helguð innflutningi og þroskun banana. Síðan þá hafa áherslur breyst og í dag býður fyrirtækið upp á mikið og gott úrval af bæði íslensku og erlendu grænmeti og ávöxtum allan ársins hring. Vörum er dreift til viðskiptavina sex daga vikunnar, þar af til verslana Bónus og Hagkaups.

Viðskiptavinir Banana eru um 900 talsins og samanstanda af verslunum, veitingahúsum, hótelum, heilbrigðisstofnunum, skólum, leikskólum, mötuneytum o.fl. 

Til þess að Bananar geti sinnt sínu kjarnahlutverki, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli. Til þess að sinna þessum þörfum hafa Bananar bein viðskiptasambönd út um allan heim og beina því viðskiptum sínum beint til þeirra landa þar sem gæði ávaxta og grænmetis er best hverju sinni. Vörur berast vikulega með skipi og daglega með flugi en auk þess berst daglega grænmeti frá íslenskum grænmetisframleiðendum.

Starfsfólk Banana hefur um langt skeið haft sjálfbærni að leiðarljósi í sínu starfi og er fyrirtækið í raun þjóðhagslega mikilvægt þegar kemur að því að sjá landsmönnum daglega fyrir hollum og góðum vörum. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Banana má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2025/26.

Starfsmenn fyrirtækisins voru í árslok 105 talsins í 101 stöðugildi, þar af 79% karlar, 21% konur.

Árið sem leið

Að baki er gott ár í starfsemi Banana. Tekjuvöxtur var ágætur en afkoma batnaði töluvert. Mikil áhersla var lögð á skilvirkni í rekstri en undanfarin ár hefur átt sér stað mikil uppbygging innviða sem hefur gjörbreytt öllum vinnuferlum, bætt gæðaferla, einfaldað vinnu í vöruhúsi og aukið nákvæmni pantana og tínslu.

Í byrjun rekstrarárs opnaði ný vefverslun Banana en með tilkomu vefverslunarinnar sköpuðust aukin þægindi fyrir viðskiptavini þar sem pöntunarferli er nú töluvert aðgengilegra. Nýja vefverslunin hefur mælst mjög vel fyrir hjá viðskiptavinum og hefur sala á vefnum vaxið hratt. Hlutfall veltu Banana á veitingamarkaði sem fer í gegnum netverslun er nú þegar komið vel yfir 40%.

Framkvæmdastjórn Banana
Framkvæmdastjórn Banana skipa (frá vinstri): Styrkár Jóhannesson, vöruhúsastjóri, Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, Pétur Smári Sigurgeirsson, sölustjóri veitingamarkaðar, Birgir Hrafn Hafsteinsson, fjármálastjóri, Rúna Sigurðardóttir, innkaupastjóri, og Embla Grétarsdóttir, mannauðsstjóri. Á myndina vantar Örvar Karlsson, sölustjóra verslana.

Um Haga Stórkaup

Lógó á húsi
Abena söluborð
Bílar
Hópmynd
Starfsmaður
  • Stofnað 2022

  • Starfsmenn 21

  • Viðskiptavinir +4.000

  • Vörunúmer +3.000

Um Stórkaup

Stórkaup var stofnað árið 2022 og hóf rekstur sinn í maí sama ár en stofnun fyrirtækisins byggir á grunni valinna vöruflokka fyrirtækjasviðs Olís. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með aðföng á breiðum grunni þar sem leiðarljósin í rekstri eru hagkvæmni, nútímalegt þjónustustig og einfalt skipulag sölu og dreifingar.

Helstu vöruflokkar fyrirtækisins eru ýmsar rekstrar-, hreinlætis- og heilbrigðisrekstrarvörur auk helstu flokka matvöru. Viðskiptavinir Stórkaups eru m.a. framleiðendur, sjávarútvegur, rekstraraðilar, veitingageirinn, hótel og heilbrigðisstofnanir.

Markmið Stórkaups er að bjóða gæða vörur á samkeppnishæfu verði, veita góða þjónustu og áreiðanleika í vöruframboði og afhendingum. Hjá Stórkaup starfar samhentur hópur með mikla reynslu og sérfræðiþekkingu á sínu sviði.

Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 21 starfsmaður og meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 20, þar af 66% karlar, 34% konur.

Árið sem leið

Góður tekjuvöxtur einkenndi nýliðið rekstrarár hjá Stórkaup þar sem til dæmis vöruflokkur á borð við matvöru hefur stækkað umtalsvert. Uppbyggingarfasi fyrirtækisins gengur samkvæmt áætlun. Áframhald hefur verið á stækkun og útvíkkun vöruflokka auk þess sem unnið hefur verið að því að betrumbæta vefverslun fyrirtækisins. Velta sem nú fer í gegnum vefverslun hefur vaxið um tæpan þriðjung milli ára.

Framkvæmdastjórn Stórkaups
Framkvæmdastjórn Stórkaups skipa (frá vinstri): Bjartur Logi Finnsson, sölustjóri matvöru, Ólöf Helgadóttir, þjónustustjóri, Jón Berg Torfason, sölustjóri rekstrarvöru, Guðmundur Elías Sæmundsson, sölustjóri heilbrigðisvöru, Þórey Anna Grétarsdóttir, verkefnastjóri og Árni Ingvarsson, rekstrarstjóri.

Um Haga Zara

Starfsmaður og gína
Lógó verslun
Poki
Starfsmaður við afgreiðslu
Poki
  • Stofnað 2001

  • Starfsmenn 59

  • Heimsóknir viðskiptavina +260.000

  • Fjöldi fermetra 2.800

Um Zara

Noron ehf. rekur verslun ZARA á Íslandi. ZARA er alþjóðlegt tískuvörumerki sem hefur skipað sér sess sem eitt af leiðandi fyrirtækjum í fatnaði og fylgihlutum fyrir alla aldurshópa á viðráðanlegu verði.

Grunnurinn að velgengni vörumerkisins Zara á heimsvísu felst einna helst í því að greina óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Varan er hönnuð í takt við stefnur og strauma í tískuheiminum hverju sinni og ráða viðtökur og óskir viðskiptavina frekari framleiðslu og vöruþróun.

Mikil áhersla er lögð á sanngjarnt verð og hraða vöruveltu en áhersla er lögð á að nýjar vörur séu á boðstólnum að lágmarki tvisvar í viku. Einnig hefur verslunarkeðjan unnið ötullega í sjálfbærni, meðal annars með því að endurvinna notaðan fatnað, bæta vinnuskilyrði starfsmanna og nota sjálfbær efni í auknum mæli.

Í daglegum rekstri verslunarinnar er allt sorp flokkað og endurunnið að því marki sem endurvinnsla er möguleg. Sömuleiðis er unnið að virku hringrásarhagkerfi með endursendingum til vöruhúsa á öllu endurnýtanlegu hráefni.

Fyrsta verslun ZARA opnaði á Íslandi árið 2001 og í dag starfrækja Hagar eina verslun og vefverslun undir merki ZARA með sérleyfissamningi frá Inditex á Spáni. Verslunin er staðsett í Smáralind.

Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 59 starfsmenn í 35 stöðugildum, þar af 19% karlar, 81% konur.

Árið sem leið

Rekstur ZARA gekk vel á árinu en velta jókst um tæp 12% og afkoma jókst hlutfallslega nokkuð meira. Rúmlega 260 þúsund viðskiptavinir versluðu hjá ZARA á árinu, annað hvort í verslun fyrirtækisins í Smáralind eða á netinu. Þá fjölgaði seldum stykkjum töluvert milli ára.

Rekstrarstjóri Zara
Frá vinstri: Ingibjörg Sverrisdóttir, rekstrarstjóri og Ástrós Harpa Pálsdóttir, aðstoðarrekstrarstjóri.