Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025/26
Gott rekstrarár að baki - nýtt innkaupasamstarf lækkar vöruverð
Við erum ánægð með þróun samstæðu Haga á liðnu ári, en þar fór saman góð afkoma af rekstri og framgangur mikilvægra stefnumótandi áherslna. Ný stoð er orðin til með kröftugum rekstri SMS í Færeyjum, vildarkerfi Takk leit dagsins ljós og Hagar miðlar skapa ný tækifæri til samstarfs við birgja og aukna þjónustu við viðskiptavini. Þá var Glans bílaþvottur settur á laggirnar, en stöðvum fjölgaði hratt á árinu og eru þær nú á fimm staðsetningum á landinu. Á sama tíma höfum við nýtt árið til að undirbúa samstarf við Salling Group sem við trúum að muni skila viðskiptavinum Haga og félaginu sjálfu áþreifanlegum ávinningi til bæði skemmri og lengri tíma. Árangur þessarar vinnu endurspeglast í auknu virði fyrir hluthafa, en arðsemi eiginfjár hefur verið í samræmi við markmið.
Ávarp