Fara á efnissvæði

Hér á eftir má sjá þróun rekstrar- og efnahagsstærða samstæðu Haga síðastliðin fimm ár. 

SALA OG FRAMLEGÐ

REKSTRARKOSTNAÐUR

AFKOMA

HAGNAÐUR Á HLUT

EIGNIR

EIGIÐ FÉ

SKULDSETNING

Árið sem leið Ársreikningur

Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2025/26 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. apríl 2026. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

REKSTRARREIKNINGUR

Fjárhæðir í millj. kr. 2025/26 2024/25 Breyting %
Vörusala 197.043 180.342 16.701 9,3%
Kostnaðarverð seldra vara -147.919 -139.238 -8.681 6,2%
Framlegð 49.124 41.104 8.020 19,5%
Aðrar rekstrartekjur 1.291 936 355 37,9%
Laun og launatengd gjöld -22.073 -18.451 -3.622 19,6%
Annar rekstrarkostnaður -10.213 -8.851 -1.362 15,4%
EBITDA 18.129 14.738 3.391 23,0%
Afskriftir -6.278 -5.351 -927 17,3%
Matsbreyting fjárfestingarfasteigna -410 1.042 -1.452 -139,3%
Rekstrarhagnaður 11.441 10.429 1.012 9,7%
Hrein fjármagnsgjöld -3.597 -2.988 -609 20,4%
Áhrif hlutdeildarfélaga 1.205 981 224 22,8%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 9.049 8.422 627 7,4%
Tekjuskattur -1.655 -1.392 -263 18,9%
Hagnaður ársins 7.394 7.030 364 5,2%
Önnur heildarafkoma samtals 347 3.669 3.322 -90,5%
Heildarafkoma samtals 7.741 10.699 -2.958 -27,6%

 

Vörusala ársins nam 197.043 m.kr., samanborið við 180.342 m.kr. árið áður eða 9,3% söluaukning. Söluaukning verslana og vöruhúsa á Íslandi nam 7,3% en samdráttur var í sölu hjá Olís um 8,2%. SMS varð hluti af Högum á 4F 2024/25 sem litar samanburð milli ára og gætir áhrifa þeirra því aðeins í samanburðartölum að hluta.

Framlegð ársins nam 49.124 m.kr. og jókst hún um 19,5% milli ára. Framlegðar­hlutfall nam 24,9% og hækkaði um 2,1%-stig frá fyrra ári. Hækkun milli ára má fyrst og fremst rekja til viðbótar SMS í samstæðuna en einnig til beggja starfsþátta á Íslandi þar sem rekstur hefur verið sterkur.

Heildarrekstrarkostnaður hækkar um 18,3% milli ára, að mestu vegna SMS, áhrifa verðbólgu og kjarasamninga auk kostnaðar við Álfabakka 2. Launa- og kostnaðarhlutfall hækkar úr 15,1% í 16,4% á árinu, einkum vegna áhrifa af SMS.

EBITDA nam 18.129 m.kr. og jókst um 23,0%. EBITDA jókst um 13,2% hjá verslunum og vöruhúsum á Íslandi og um 12,9% hjá starfsþætti Olís. EBITDA starfsþáttar SMS nam 2.051 m.kr.

Matsbreyting fjárfestingar­fasteigna var neikvæð um 410 m.kr. en neikvæð áhrif hjá SMS, vegna fasteigna í rekstrarleigu, námu 465 m.kr.

Hagnaður ársins var 7.394 m.kr. (3,8% af veltu) og hagnaður fyrra árs nam 7.030 m.kr. (3,9%). Önnur heildarafkoma nam 347 m.kr. en þar af var endurmat fasteigna, sem fært er beint á eigið fé, 493 m.kr. en neikvæður þýðingarmunur nam 146 m.kr. Heildarafkoma samtals nam 7.741 m.kr. en nam 10.699 m.kr. í fyrra, þar sem 3.677 m.kr. voru vegna endurmats fasteigna í kjölfar breytinga á reikningsskilaaðferð.

STARFSÞÁTTAYFIRLIT

EBITDA ÁRSFJÓRÐUNGA

EFNAHAGSREIKNINGUR

Fjárhæðir í millj. kr. 28.02.26 28.02.25* Breyting %
Eignir        
Fastafjármunir 90.381 82.372 8.009 9,7%
Veltufjármunir 24.865 23.160 1.705 7,4%
Eignir samtals 115.246 105.532 9.714 9,2%
         
Eigið fé        
Hlutafé 1.089 1.098 -9 -0,8%
Annað eigið fé 41.718 37.423 4.295 11,5%
Eigið fé hluthafa móðurfélags 42.807 38.521 4.286 11,1%
Hlutdeild minnihluta -28 -32 4 -12,5%
Eigið fé samtals 42.779 38.489 4.290 11,1%
Skuldir        
Langtímaskuldir 39.291 37.463 1.828 4,9%
Skammtímaskuldir 33.176 29.580 3.596 12,2%
Skuldir samtals 72.467 67.043 5.424 8,1%
Eigið fé og skuldir samtals 115.246 105.532 9.714 9,2%

*Samanburðarfjárhæðum hefur verið breytt til að endurspegla gangvirði kaupverðs SMS á yfirtökudegi vegna upplýsinga sem komu fram innan árs frá kaupum. Fastafjármunir hækkuðu um 496 m.kr. og langtímaskuldir sömuleiðis. Eiginfjárhlutfall lækkaði úr 36,6% í 36,5% eftir breytingarnar.

Heildareignir samstæðunnar í lok árs námu 115.246 m.kr. og hækkuðu um 9.714 m.kr. frá árslokum 2024/25 eða um 9,2%. Samanburðarfjárhæðum hefur verið breytt til að endurspegla gangvirði kaupverðs SMS á yfirtökudegi, þann 2. desember 2024, vegna upplýsinga sem komu fram innan árs frá kaupum. Fastafjármunir hækkuðu um 496 m.kr. og langtímaskuldir sömuleiðis. Eiginfjárhlutfall lækkaði úr 36,6% í 36,5% eftir breytingarnar.

Fastafjármunir námu 90.381 m.kr. og hækkuðu um 8.009 m.kr. frá árslokum 2024/25, þar af hækkuðu leigueignir um 5.195 m.kr. á tímabilinu vegna nýs leigusamnings við Álfabakka 2 auk framlengdra leigusamninga hjá Bónus og Hagkaup.

Veltufjármunir námu 24.865 m.kr. og hækkuðu um 1.705 m.kr. frá árslokum 2024/25 en þar af hefur handbært fé hækkað um 1.576 m.kr. á árinu.

Vörubirgðir námu 14.393 m.kr. í lok árs og hækkuðu um 419 m.kr. á árinu. Veltuhraði birgða í lok árs var 10,4 til samanburðar við 10,3 í árslok 2024/25. Innheimtutími viðskiptakrafna var 9,6 dagar til samanburðar við 10,2 daga í lok árs 2024/25.

Veltufjárhlutfall nam 0,75 í lok árs, í samanburði við 0,78 í fyrra. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 3,0 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður, auk þess sem félagið fjármagnar sig til skamms tíma með útgáfu víxla.

Eigið fé í lok árs nam 42.779 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 37,1%. Eiginfjárhlutfall var 36,5% í árslok 2024/25. Arðsemi eigin fjár var 19,2% til samanburðar við 24,3% í fyrra. Félagið átti eigin bréf að nafnverði 17,8 milljónir í lok árs.

Heildarskuldir samstæðunnar í lok árs námu 72.467 m.kr. og hækkuðu um 5.424 m.kr. frá lokum síðasta árs, þar af 5.377 m.kr. vegna leiguskulda.

Vaxtaberandi skuldir námu 23.391 m.kr. og leiguskuldir 24.954 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 44.470 m.kr. eða 2,5 x 12 mánaða EBITDA.

Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 9.040 m.kr. en þar af námu víxilskuldir 1.240 m.kr. og skammtímafjármögnun í dönskum krónum vegna kaupa félagsins á SMS nam 3.841 m.kr. Skuldabréfaflokkur HAGA120926 1 að fjárhæð 3.000 m.kr. er einnig á gjalddaga á seinni helmingi rekstrarársins 2026/27 og flokkast því meðal skammtímaskulda.

FJÁRFESTINGAR ÁRSINS

SJÓÐSTREYMISYFIRLIT

Fjárhæðir í millj. kr. 2025/26 2024/25 Breyting %
Handbært fé frá rekstri 13.040 11.108 1.932 17,3%
Fjárfestingarhreyfingar -5.282 -8.671 3.389 -39,1%
Fjármögnunarhreyfingar -6.174 -1.964 -4.210 214,3%
Hækkun á handbæru fé 1.584 473 1.111 234,9%
Áhrif gengisbreytinga -8 -1 -7 700,0%
Handbært fé í ársbyrjun 2.299 1.827 472 25,8%%
Handbært fé í árslok 3.875 2.299 1.576 68,6%%

Handbært fé frá rekstri nam 13.040 m.kr. á rekstrarárinu, samanborið við 11.108 m.kr. á fyrra ári.

Fjárfestingarhreyfingar ársins námu 5.282 m.kr., samanborið við 8.671 m.kr. á fyrra ári. Fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 4.757 m.kr. og voru einkum vegna standsetningar framleiðslurýma fyrir Eldum rétt og Ferskar kjötvörur í Álfabakka 2, umbóta í nokkrum verslunum Bónus og Hagkaups, nýrra þvottastöðva Glans hjá Olís og tveggja nýrra ÓB stöðva. Hjá SMS í Færeyjum var fjárfest í fasteign í Runavík og endurbótum og uppsetningu verslana í rýminu. Fjárfestingar í óefnislegum eignum, þ.e. hugbúnaði og öðrum stafrænum lausnum, námu 757 m.kr. á rekstrarárinu. Á fyrra ári nam fjárfesting í dótturfélaginu SMS 4.741 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar ársins voru 6.174 m.kr., samanborið við 1.964 m.kr. á fyrra ári. Fjárhæð endurkaupa eigin bréfa nam 1.072 m.kr. á árinu en til samanburðar voru ekki keypt eigin bréf á fyrra ári.

Handbært fé hækkaði um 1.576 m.kr. á árinu, að teknu tilliti til áhrifa gengisbreytinga, og nam 3.875 m.kr. í lok árs, samanborið við 2.299 m.kr. í lok árs 2024/25.

Árið sem leið Staðan og framtíðarhorfur

Uppfærð afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2025/26 sem nú er liðið gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) yrði á bilinu 17.600-18.100 m.kr. Rekstur ársins gekk vel og var umfram upphaflegar afkomuspár stjórnenda. Afkomuspáin var hækkuð í tvígang, fyrst í aðdraganda uppgjörs 2. ársfjórðungs um 1.000 m.kr. og síðar við birtingu uppgjörs 3. ársfjórðungs um 600 m.kr. Ástæður betri rekstrarniðurstöðu en upphaflegar spár gerðu ráð fyrir má rekja til allra rekstrareininga í samstæðunni. Eftirspurn á dagvörumarkaði á Íslandi var sterk með góðri veltuaukningu og afkomubata milli ára, bæði hjá Bónus og Hagkaup. Olís náði góðum árangri, bæði í eldsneytis- og þurrvöruhluta félagsins, auk þess sem nýir tekjustraumar og hagræðingar í rekstri þjónustustöðva hafa gengið vel. Á sama tíma hefur rekstur SMS í Færeyjum gengið vel og umsvif aukist.

Fyrstu vikurnar á nýju rekstrarári hafa einkennst af óvissu í alþjóðlegu efnahagslífi, m.a. vegna átaka í Mið-Austurlöndum, verðbólguþrýstingi, háu vaxtastigi og sveiflum á hrávörumörkuðum. Hagar fara ekki varhluta af ástandinu en staða félagsins er traust og það vel í stakk búið til að takast á við þessar áskoranir og aðrar í íslensku efnahagsumhverfi.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2026/27 sem nú er hafið gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 18.800 - 19.300 m.kr. Forsendur afkomuspár gera ráð fyrir 3,7% hækkun verðlags á ársgrundvelli og áhrif kjarasamninga nema um 5,0% hækkun launa milli ára. Ekki var gert ráð fyrir verulegum áhrifum af breytingu gengis helstu innkaupamynta. Vegna framkvæmda og yfirfærslu starfsemi í Álfabakka 2 er tímabundinn kostnaðarauki í rekstri, m.a. vegna tvöfaldrar leigu, áætlaður um 470 m.kr. í rekstraráætlun ársins 2026/27. Útgefin afkomuspá tekur tillit til þessa kostnaðarauka, og er því lægri en áætlanir félagsins fyrir grunnrekstur ársins. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar ársins (e. CAPEX) verði á bilinu 5.600 - 6.000 m.kr. Eins og fyrr segir ber Álfabakki 2 uppi fjárfestingar ársins, en með flutningi þangað opnast ýmis tækifæri fyrir Haga sem tengjast framleiðslu og nýjum tekjustraumum.

Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 3,0 ma. kr. er tryggður en einnig hefur félagið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi víxlaútgáfu. Útgáfa víxlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið nýti sér áfram markaðsfjármögnun á næstu misserum.

Árið sem leið Hagar í Kauphöll

HLUTABRÉFIN

Viðskipti með hlutabréf Haga á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hófust þann 16. desember 2011. Útgefið hlutafé í Högum nam 1.106.428.863 krónum í árslok 2025/26 og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Í lok árs námu eigin hlutir 17,8 milljónum króna að nafnverði. Auðkenni félagsins er HAGA. 

Í lok rekstrarársins, þann 28. febrúar 2026, stóð gengi hlutabréfa í Högum í 119,0 kr. á hlut, samanborið við 102,0 kr. á hlut í lok febrúar 2025 og hækkuðu bréf félagsins því um 16,7% á síðastliðnu rekstrarári. Verð í lok skráningardags þann 16. desember 2011 var 15,95 kr. á hlut.

ÞRÓUN HLUTABRÉFAVERÐS

HLUTHAFAR

Samkvæmt hlutaskrá félagsins voru hluthafar 923 talsins í byrjun rekstrarársins og 1.066 í lok þess. Stærsti einstaki hluthafinn er Gildi – lífeyrissjóður með 16,3% hlut. Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins eiga óbeint 13,0% í félaginu en þeir samanstanda af A og B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. 20 stærstu hluthafar félagsins eiga samtals 85,7% hlut en sömu hluthafar áttu samtals 86,5% hlut í lok síðasta árs. 20 stærstu hluthafarnir í lok rekstrarársins 2024/25 áttu þá 87,1% hlut.

 

  Hluthafi Fjöldi hluta 28.02.26 % af heild Fjöldi hluta 28.02.25 % af heild
1 Gildi - lífeyrissjóður 179.893.219 16,26% 193.328.219 17.47%
2 Lífeyrissjóður verzlunarmanna 135.312.404 12,23% 120.842.728 10,92%
3 Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild 124.022.598 11,21% 126.147.598 11,40%
4 Brú lífeyrissjóður starfsm. sveitarfél. 92.625.404 8,37% 106.392.819

9,62%

5 Kaldbakur ehf. 90.000.000 8,13% 90.000.000 8,13%
6 Birta lífeyrissjóður 70.767.636 6,40% 74.556.065 6,74%
7 Festa - lífeyrissjóður 46.149.169 4,17% 47.149.169 4,26%
8 Stapi lífeyrissjóður 32.588.211 2,95% 38.710.046 3,50%
9 Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 26.267.656 2,37% 31.356.665 2,83%
10 Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður 26.267.240 2,37% 22.732.102 2,05%
11 Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild 20.144.633 1,82% 21.494.633 1,94%
12 Hagar hf. 17.839.014 1,61% 8.134.072 0,74%
13 Brú R deild 16.473.187 1,49% 23.738.306 2,15%
14 Vanguard Total International S 14.021.015 1,27% 14.385.456 1,30%
15 Vanguard Emerging Markets Stock 13.244.702 1,20% 14.044.532 1,27%
16 Folketrygdfondet 11.020.984 1,00% 0 0,00%
17 Sp/F NM Holding 9.177.019 0,83% 9.177.019 0,83%
18 Frjálsi lífeyrissjóðurinn 8.049.917 0,73% 7.501.916 0,68%
19 Stefnir - Innlend hlutabréf hs. 7.512.790 0,68% 60.279 0,01%
20 Vanguard Fiduciary Trust Comp. 7.094.114 0,64% 7.416.517 0,67%
  20 stærstu hluthafar 948.470.912 85,72%

957.168.141

86,51%
  Aðrir hluthafar 157.957.951 14,28% 149.260.722 13,49%
  Skráð hlutafé 1.106.428.863 100,00% 1.106.428.863 100,00%
  Hagar hf. - eigin bréf 17.839.014 1,61% 8.134.072 0,74%
  Útistandandi hlutir 1.088.589.849 98,39% 1.098.294.791 99,26%

 

Eins og áður segir voru hluthafar í árslok 1.066 talsins en þeim má skipta í nokkra flokka. 798 einstaklingar eiga hlut í félaginu, með samtals um 2,1% af heildarhlutafé, en á sama tíma á fyrra ári voru 684 einstaklingar hluthafar í félaginu með 2,3%. 31 lífeyrissjóður á 72,0% hlut í félaginu en á fyrra ári áttu 30 lífeyrissjóðir 75,2% hlut í því. Aðrir fjárfestar eru 189 talsins og eiga 15,8% hlut. Á fyrra ári voru aðrir fjárfestar 158 talsins með 14,1% hlut. Þá eru 47 erlendir fjárfestar í félaginu og eiga þeir 8,5% hlut til samanburðar við 7,7% á fyrra ári.

Flokkur Fjöldi hluta % af heild Fjöldi hluthafa % af heild
Lífeyrissjóðir 796.619.873 72,0% 31 2,9%
Aðrir fjárfestar 175.346.925 15,8% 189 17,7%
Erlendir fjárfestar 93.824.498 8,5% 47 4,4%
Einstaklingar 22.798.553 2,1% 798 74,9%
Eigin bréf 17.839.014 1,6% 1 0,1%
Hlutafé samtals 1.106.428.863 100,0% 1.066 100,0%

 

Í næstu töflu hér á eftir má sjá dreifingu hlutafjáreignar í félaginu í árslok. Flestir hluthafar, 578 talsins, eiga 1-9.999 hluti og samtals 0,1% hlutafjár. Þrír hluthafar eiga hver um sig yfir 100.000.000 hluti í félaginu.

Fjöldi hluta Fjöldi hluthafa % af heild Fjöldi hluta % af heild
1-9.999 578 54,2% 1.588.479 0,1%
10.000-99.999 307 28,8% 11.358.247 1,0%
100.000-499.999 98 9,2% 21.108.172 1,9%
500.000-999.999 25 2,3% 16.958.773 1,5%
1.000.000-4.999.999 35 3,3% 87.837.267 7,9%
5.000.000-9.999.999 7 0,7% 50.940.853 4,6%
10.000.000-99.999.999 12 1,1% 459.569.837 41,5%
> 100.000.000 3 0,3% 439.228.221 39,7%
Samtals útistandandi 1.065 99,9% 1.088.589.849 98,4%
Eigin bréf 1 0,1%

17.839.014

1,6%
Samtals 1.066 100,0% 1.106.428.863 100,0%

 

ENDURKAUPAÁÆTLANIR

Á aðalfundi Haga sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Á rekstrarárinu 2025/26 keypti félagið 9,9 milljón eigin hluti í þremur endurkaupaáætlunum fyrir samtals 1.072 millj. kr. Félagið átti 17,8 milljón eigin hluti að nafnverði í árslok. 

AÐALFUNDUR

Aðalfundur Haga hf. árið 2026 verður haldinn þann 21. maí og hefst hann kl. 15:00. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Dagskrá fundarins og tillögur stjórnar hafa þegar verið auglýstar en niðurstöður fundarins verða birtar í Kauphöll og á vefsíðu félagsins strax að honum loknum.

ARÐGREIÐSLA OG ARÐGREIÐSLUSTEFNA

Stjórn Haga hefur mótað arðgreiðslustefnu félagsins en hana má sjá í heild sinni hér.

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins þann 21. maí 2026 að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2025/26 sem nemi 50,0% hagnaðar ársins eftir skatta, án áhrifa matsbreytinga og hlutdeildarfélaga, eða samtals 3.300 milljónir króna. Arðgreiðslan nemur því 3,03 kr. á hlut útistandandi hlutafjár.

Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 26. maí 2026, þ.e. réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok þess viðskiptadags. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2025/26 verður því 22. maí 2026, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðs verður 2. júní 2026.

FJÁRHAGSDAGATAL

Birting árs- og árshlutauppgjöra á sér stað eftir lokun markaða hverju sinni. Kynningarfundir eru alla jafna haldnir kl. 08:30 daginn eftir birtingu uppgjöra. Tilkynnt er tímanlega um fyrirkomulag og staðsetningu fundar hverju sinni.

Eftirfarandi fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 1. mars 2026 til 28. febrúar 2027 hefur verið samþykkt af stjórn félagsins:

Rekstrarárið 2026/27 Vikudagur Birtingardagur
1. ársfj. Þriðjudagur 30. júní 2026
2. ársfj. Fimmtudagur 15. október 2026
3. ársfj. Fimmtudagur 14. janúar 2027
4. ársfj. - stjórnendauppgjör Fimmtudagur 15. apríl 2027
4. ársfj. - ársreikningur Fimmtudagur 29. apríl 2027
Aðalfundur 2027 Miðvikudagur 26. maí 2027

Árið sem leið Fréttir úr starfseminni

VERSLANIR HAGA LÆKKA VERÐ MEÐ INNKAUPASAMSTARFI VIÐ SALLING GROUP

Eitt af stóru verkefnum ársins var undirbúningur að nýju innkaupasamstarfi við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins.

Með samstarfinu fá verslanir Bónus og Hagkaups m.a. aðgang að breiðu vöruúrvali Salling Group, en félagið rekur yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku rekur félagið þekktar verslunarkeðjur, svo sem Netto, føtex og Bilka, auk þess að reka Netto víðar í Evrópu og Rimi í Eystrasaltslöndunum.

Fyrstu vörurnar komu í hillur hjá Bónus og Hagkaup í apríl 2026, en úrvalið mun stækka ört á næstu mánuðum og verða fleiri en þúsund vörunúmer í boði innan nokkurra mánaða. Vörurnar sem um ræðir eru m.a. undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget - vörulínur sem eru þekktar fyrir gott verð, fjölbreytt úrval, og mikil gæði. Vörur Salling bera viðurkenndar gæðavottanir og næringarmerkingar sem þekkjast vel á Norðurlöndunum, svo sem Lykillinn, Ø-merkið fyrir lífræna vottun og norræna umhverfismerkið Svanurinn.

Sem fyrr segir veitir samstarfið verslunum Haga undir merkjum Bónus, Hagkaups og Olís, aðgang að nýju og fjölbreyttu úrvali af vörum sem hafa notið mikilla vinsælda í nágrannalöndum og bætir innkaupsverð félagsins í fjölda vöruflokka. Markmið Haga er að nýta þennan ávinning til að lækka verð á hundruðum vara í verslunum Bónus og Hagkaups, sem og að auka vöruúrval og gæði.

Salling

TAKK BÆTIR KJÖR, ÞJÓNUSTU OG UPPLIFUN VIÐSKIPTAVINA

Í janúar 2026 settu Hagar í loftið nýtt vildarkerfi í appi sem ber heitið Takk. Vildarkerfið er einfalt og skilvirkt í notkun og mun bæta kjör, þjónustu og upplifun viðskiptavina. Meðlimir í Takk appinu fá aðgengi að sérstökum kjörum og fríðindum hjá Bónus, Hagkaup og Eldum rétt. Afslættirnir sem vildarkerfið býður upp á eru kallaðir Takk krónur (tkr) en viðskiptavinir geta áunnið sér Takk krónur þegar þeir versla valdar vörur í verslunum. Takk krónurnar geta viðskiptavinir svo notað næst þegar þeir versla í verslunum Bónus og Hagkaups um allt land. Takk appið veitir viðskiptavinum einnig aðgang að fleiri áhugaverðum tilboðum hjá samstarfsaðilum eins og Glans, Grill 66 og Lemon auk þess sem appið veitir aðgengi að fjölbreyttum viðburðum, skemmtilegum leikjum og frekari þjónustu. Í lok árs voru meðlimir eða „Takkarar“ orðnir tæplega 60 þúsund talsins. Unnið verður að frekari þróun vildarkerfisins á næstu misserum.

Takk

HAGAR MIÐLAR HAFA BURÐI TIL AÐ VERÐA ÖFLUG TEKJUSTOÐ

Á rekstrarárinu stofnuðu Hagar nýja miðlæga rekstrareiningu sem ber nafnið Hagar miðlar. Hagar miðlar vinnur þvert á félög samstæðunnar en einingunni er ætlað að nýta sterka innviði Haga til að miðla auglýsingum, upplýsingum og öðru áhugaverðu efni frá þriðja aðila til viðskiptavina, bæði í verslunum og á stafrænum miðlum. Smásölumiðlun (e. retail media) er einn hraðast vaxandi auglýsingamiðill heims, einkum vegna þess hve árangursrík miðlunin er í samanburði við hefðbundna auglýsingamiðla. Það eru fá félög á Íslandi sem búa yfir sterkari innviðum en Hagar þegar kemur að auglýsingaflötum á sölustað en á rekstrarárinu hefur verið unnið að skjávæðingu fjölmargra verslana Bónus og Hagkaups. Á hverju ári heimsækja um 40 milljón viðskiptavinir verslanir og þjónustustöðvar Haga á Íslandi og eru tækifærin því umtalsverð.

Miðlar

NÝR VERSLUNARKJARNI Í RUNAVÍK ÚTVÍKKAR STARFSEMI SMS

Um miðjan nóvember 2025 opnaði nýr 3.000 m2 verslunarkjarni í Runavík í Færeyjum, sem bættist við safn fasteigna SMS í Færeyjum sem telur nú um 14.000 m2. Í verslunarkjarnanum rekur SMS eina Bónusverslun og eina Rumbul verslun auk Sunset Boulevard veitingastaðar. Þá er einnig leigt verslunarrými til þriðja aðila sem rekur glæsilega sérvöruverslun í kjarnanum.

Runavík

ÞVOTTASTÖÐVANET GLANS STÆKKAÐI Í FIMM STÖÐVAR

Ný bílaþvottastöð Glans opnaði í lok árs en nýja stöðin er fimmta snertilausa Glans bílaþvottastöðin sem opnar á 12 mánuðum. Allar stöðvarnar eru búnar nýjustu tækni og notuð eru hágæða hreinsiefni og graffín bón. Bílaþvottastöðar Glans eru staðsettar á Langatanga í Mosfellsbæ, Gullinbrú og Skúlagötu í Reykjavík, Bæjarlind í Kópavogi og á Selfossi.

Glans

HAGKAUP EYKUR ÞJÓNUSTU MEÐ HEIMSENDINGU Í GEGNUM WOLT

Í desember 2025 hófu Hagkaup og Wolt samstarf um heimsendingu á matvöru frá Hagkaup. Samstarfið miðar að því að gera matvöruverslun aðgengilegri með því að gera viðskiptavinum kleift að panta fjölbreytt úrval af vörum Hagkaups á netinu og fá afhendingu á innan við klukkustund. Í upphafi eru um 4.000 vörunúmer í boði í gegnum Wolt appið en stefnt er að því að úrvalið verði enn meira þegar fram líða stundir.

Wolt

TVÆR NÝJAR ÓB STÖÐVAR OPNUÐU Á ÁRINU OG HAFA FARIÐ VEL AF STAÐ

Á miðju ári opnaði Olís tvær nýjar ÓB sjálfsafgreiðslustöðvar. Annars vegar opnaði ný stöð í Búðardal og býðst nú íbúum Dalabyggðar og ferðafólki lægra verð á eldsneyti. Hins vegar opnaði Olís glænýja ÓB stöð við Kjarnagötu á Akureyri, við verslun Bónus, en stöðin er frábær viðbót við þá þjónustu sem Olís og ÓB eru þegar með í bænum.

olís

NÝTT VILDARKERFI BÓNUS Í FÆREYJUM HEFUR FENGIÐ FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR

Í upphafi árs setti Bónus í Færeyjum nýtt vildarkerfi og app í loftið sem kallast Bónus+. Í boði eru sérstök tilboðsverð fyrir meðlimi, persónuleg tilboð byggð á kauphegðun auk þess sem appið heldur utan um innkaupalista, stafræna tilboðsbæklinga, uppskriftir, kvittanir o.fl. Appið hefur fengið frábærar móttökur og var mest sótta appið á danska markaðinum við útgáfu þess.

Appið

UPPBYGGINGARVERKEFNUM KLASA MIÐAÐI VEL ÁFRAM

Þróunar- og uppbyggingarverkefni Klasa, hlutdeildarfélags Haga, gengu vel á árinu. Félög innan Klasa samstæðunnar vinna nú m.a. að uppbyggingu 133 íbúða á Borgarhöfða, byggingu skrifstofuhúsnæðis í Silfursmára og byggingu 10.000 m2 skrifstofuhúsnæðis á Ártúnshöfða. Klasi vann jafnframt að frekari þróun á lóðum félagsins í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. 

Klasi