Fara á efnissvæði

Rekstrarárið 2025/26 var eitt það besta í sögu Haga, þar sem helstu einingar skiluðu sterkri afkomu og mikilvæg skref voru stigin í þróun félagsins til framtíðar. Vörusala ársins nam 197 ma.kr., EBITDA nam 18,1 ma.kr., arðsemi eiginfjár var 19,2% og hagnaður á hlut hélt áfram að styrkjast.

Afkoman endurspeglar sterkan grunnrekstur félagsins, agaða framkvæmd og góða stöðu eininga samstæðunnar. Fyrsta heila rekstrarárið með færeyska starfsemi SMS innan vébanda Haga gekk vel og staðfestir að kaupin hafa styrkt samstæðuna, aukið fjölbreytni hennar og skapað ný tækifæri til framtíðar.

Á árinu hélt uppbygging nýrra þjónustu- og tekjustoða áfram. Takk, vildarkerfi Haga, fór vel af stað og hefur þegar skapað nýjan vettvang til að styrkja samband okkar við viðskiptavini. Hagar miðlar hafa jafnframt opnað nýja möguleika í samskiptum við viðskiptavini og samvinnu við samstarfsaðila, auk þess að skapa nýja tekjustoð fyrir samstæðuna. Á sama tíma hefur markviss uppbygging upplýsingatækni og gagnainnviða styrkt reksturinn og skapað betri grundvöll til að nýta gervigreind, einfalda ferla og taka upplýstar ákvarðanir.

Nýtt samstarf við Salling Group markar ákveðin tímamót í íslenskri dagvöruverslun. Þar fylkja stærstu aðilar í dagvöruverslun á Íslandi og í Danmörku liði, sem mun styrkja innkaup Haga, auka vöruúrval og gæði og skapa forsendur til að lækka verð á fjölmörgum vörum til viðskiptavina.

Sameiginlegt markmið allra þessara verkefna og rauður þráður í starfsemi Haga er að bæta þjónustu, auka val og skapa meira virði fyrir viðskiptavini í kaupum á daglegum nauðsynjum.

Hagkaup innkaupapoki

MIKILVÆGT AFL GEGN VERÐBÓLGU

Með lágvöruverðsverslanir Bónus í broddi fylkingar lítum við hjá Högum á það sem eitt af okkar brýnustu verkefnum að leggja baráttunni við verðbólgu lið. Með einföldum rekstri og skýrri lágvöruverðsstefnu hefur Bónus um áratuga skeið verið mikilvægasta mótvægið við hækkandi matvöruverð. Þetta eru Bónus-áhrifin í hnotskurn: þegar hagkvæmur rekstur, stærð og innkaupastyrkur eru nýtt til að lækka verð, bregst markaðurinn við og neytendur njóta ávinningsins.

Þessi árangur er ekki tilviljun. Lágur rekstrarkostnaður gerir okkur kleift að komast af með lægri framlegð en ella. Árangur í innkaupum skiptir jafnframt grundvallarmáli, enda er stærsti áhrifaþátturinn á verð út úr verslun verð inn í verslun, það verð sem greitt er fyrir vörur frá birgjum og framleiðendum. Þegar Hagar ná betri kjörum í innkaupum er ávinningnum deilt milli viðskiptavina og rekstrarins, í formi lægra vöruverðs og sterkari framlegðar.

Bónus

Það er mikilvægt að halda því til haga að bætt framlegð í smásölu er ekki sjálfkrafa afleiðing verðhækkana. Hjá Högum leitum við einmitt markvisst leiða til að styrkja framlegð með betri innkaupum, hagkvæmara vöruvali og með því að draga úr rýrnun. Þar skipta eigin vörumerki og lágvöruverðsmerki miklu, enda geta slíkar vörur verið á lægra verði til neytenda en jafnframt skilað versluninni sterkari framlegð. Það er gott fyrir viðskiptavini og styrkir rekstur.

Samstarfið við Salling Group er mikilvægt skref í þessari vegferð. Það styrkir innkaup Haga, gerir Bónus og Hagkaup kleift að lækka verð á hundruðum vara og skapar þannig aukið mótvægi við verðbólgu á dagvörumarkaði. Samstarfið mun styrkja stöðu beggja verslanakeðja. Í Bónus verður áherslan áfram á hagkvæmustu matvörukörfuna um allt land, en með auknu úrvali, meðal annars í lífrænum vörum og vörum án ofnæmisvalda. Í Hagkaup felast tækifærin bæði í lægra verði og aukinni sérstöðu með breiðara úrvali, gæða vörum og sterkari verslunarupplifun.

Aðföng og Bananar eru mikilvægir innviðir í starfsemi Haga. Aðföng hafa gegnt lykilhlutverki í undirbúningi og framkvæmd samstarfsins við Salling Group, þar sem samhæfa þarf innkaup, vörustýringu, vöruhús og dreifingu. Bananar gegna jafnframt mikilvægu hlutverki í að tryggja gæði, ferskleika og framboð á ávöxtum og grænmeti, þar sem bætt gæði hafa skilað sér í betri upplifun viðskiptavina og aukinni sölu.

Hagkaup

ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA OG HAGKVÆMNI

Hagar styðja íslenskt, enda stærsti viðskiptavinur íslenskra bænda og framleiðenda, hvort sem horft er til grænmetis, kjötmetis, mjólkurvara eða annarrar innlendrar framleiðslu til dagvörumarkaðar. Af því erum við stolt.

Þrátt fyrir skýran stuðning við innlenda framleiðslu er nauðsynlegt að horfast í augu við að verðhækkanir á innlendri vöru, ekki síst landbúnaðarafurðum, hafa átt of stóran þátt í hækkun dagvöruverðs á undanförnum misserum. Þetta vekur upp spurningar um hvernig megi ná niður framleiðslukostnaði og bæta hagkvæmni í virðiskeðjunni og hvort stærð, þekking og innviðir Haga geti nýst enn betur til að styðja við innlenda framleiðslu og skapa hagkvæmari leið vöru frá framleiðanda til neytanda.

Við höfum þegar stigið skref í þessa átt. Með fyrirhuguðum flutningi Ferskra kjötvara og Eldum rétt í nýja aðstöðu við Álfabakka eykst framleiðslugeta Haga á ákveðnum sviðum og betri forsendur skapast til vöruþróunar, hagkvæmni og nýtingar. Þá höfum við dýpkað samstarf okkar við bændur, m.a. í framleiðslu á holdanautakjöti, þar sem góður árangur hefur náðst í aukinni framleiðni og bættum gæðum afurða. Við sjáum tækifæri til að nýta innviði og sterka stöðu Haga til að auka hagkvæmni í innlendri framleiðslu og bjóða viðskiptavinum lægra verð, meiri gæði og vörur með skýran uppruna í sveitum landsins.

Íþróttanammi

ÁBYRGUR REKSTUR TIL FRAMTÍÐAR

Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð eru sem fyrr forgangsmál í rekstri Haga og hafa fengið enn meira vægi í starfsemi samstæðunnar, upplýsingagjöf og fjárfestingum. Árangurinn er sýnilegur. Þrátt fyrir aukin umsvif dróst mæld heildarlosun samstæðunnar saman um 10% á milli ára og Hagar voru annað árið í röð í hópi þeirra íslensku fyrirtækja sem skara fram úr í upplýsingagjöf á sviði sjálfbærni og samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt Sjálfbærnivísi PwC.

Þessi áhersla birtist jafnframt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að samfélagi, nýsköpun, innlendri framleiðslu og starfsfólki. Þar má nefna Barnabónus, sem náði til fjölskyldna 95% fæddra barna á Íslandi árið 2025, og Uppsprettuna, nýsköpunarsjóð Haga, sem hefur styrkt 50 frumkvöðlaverkefni á sviði matvælaiðnaðar með áherslu á sjálfbærni og innlenda framleiðslu. Þá hefur starfsánægja innan samstæðunnar aukist jafnt og þétt frá því að mælingar hófust árið 2021.

Ábyrgur rekstur snýst einnig um þau áhrif sem Hagar geta haft í gegnum innkaup, vöruúrval og aðfangakeðju. Með samstarfinu við Salling Group eykst framboð á vörum með umhverfis- og sjálfbærnitengdar vottanir, meðal annars með bættu aðgengi viðskiptavina að lífrænum vörum og vörum sem eru lausar við ilmefni og ofnæmisvalda. Samstarfið styrkir jafnframt seiglu aðfangakeðju félagsins gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og annarri óvissu.

Nánari upplýsingar um helstu aðgerðir og árangur Haga á sviði sjálfbærni má finna í sérstökum sjálfbærnikafla ársskýrslunnar.

KREFJANDI YTRA UMHVERFI

Þótt rekstur Haga hafi gengið vel er ytra umhverfi áfram krefjandi. Alþjóðleg óvissa, þar á meðal átök í Mið-Austurlöndum og áhrif á olíuverð og aðfangakeðjur, getur haft áhrif á innkaupsverð hérlendis. Olía er ekki aðeins mikilvægur orkugjafi í samgöngum, flutningum og framleiðslu, heldur einnig hráefni í fjölda vara, meðal annars umbúðir. Áhrif slíkra þátta birtast oft smám saman, en þau skila sér að lokum inn í kostnað fyrirtækja og tilheyrandi áskorunum í rekstri.

Við þessar kringumstæður er ástæða til að hafa áhyggjur af vaxandi tilhneigingu stjórnvalda til að mæta verðbólgu með auknum inngripum og íþyngjandi kröfum á samkeppnismörkuðum. Fyrirtæki á dagvöru- og eldsneytismarkaði starfa í opnu og virku samkeppnisumhverfi. Við skiljum auðvitað vel að stjórnvöld leiti leiða til að verja heimilin gegn verðbólgu, enda leggja fá fyrirtæki meira af mörkum á því sviði en Hagar. Það er hins vegar varhugavert ef ábyrgð á verðbólgu er að verulegu leyti færð yfir á atvinnulífið, þegar hún á sér einnig rætur í opinberum álögum, skattlagningu, reglubyrði og kostnaðarhækkunum sem fyrirtæki hafa takmarkaða stjórn á. Óljósar kröfur, aukið skrifræði og tortryggni í garð atvinnurekstrar skapa kostnað sem hætt er við að komi niður á neytendum að lokum, hvort sem það birtist í hærra verði, minni skilvirkni eða minni getu fyrirtækja til að fjárfesta og bæta þjónustu.

Olís

Reynslan sýnir að samkeppnismarkaðir eru almennt vel til þess fallnir að auka hagkvæmni á neytendamarkaði. Þegar olíugjald var fellt niður um áramót lækkaði dæluverð eldsneytis um meira en sem nam niðurfelldum gjöldum. Á sama hátt sýnir samstarf Haga við Salling Group hvernig fyrirtæki á virkum markaði leita nýrra leiða til að styrkja innkaup, auka hagkvæmni og lækka verð. Þetta eru skýrar vísbendingar um að virk samkeppni skilar árangri, að fyrirtæki bregðast við breyttum forsendum og að ávinningurinn skilar sér til neytenda. Þessari staðreynd þarf að gefa meira vægi í opinberri umræðu.

STERKARI SAMSTÆÐA OG SKÝR TÆKIFÆRI

Árangur ársins byggir á breiðum grunni. Dagvöruverslanir Haga, Bónus og Hagkaup, héldu áfram að styrkja sinn rekstur og Olís skilaði góðum árangri á krefjandi markaði. Stoðeiningar á borð við Aðföng, Banana, Ferskar kjötvörur, Eldum rétt og Stórkaup efldu innviði, framleiðslu, vöruframboð og þjónustu. SMS átti gott fyrsta heila ár innan Haga og Zara styður áfram við fjölbreytt sérvöruframboð félagsins. Þá hafa fasteignir og tengd verkefni fengið aukið vægi í rekstrinum, meðal annars í tengslum við starfsemi Klasa fasteignaþróunarfélags og um 70 þúsund fermetra fasteignasafn Haga.

Þessi árangur byggir á skýrri sýn, aga í framkvæmd og framúrskarandi starfsfólki. Hagar eru í dag fjölbreyttara og sterkara félag og betur í stakk búið til að takast á við framtíðina en áður. Við höfum byggt upp traustan rekstur, sterka fjárhagsstöðu, öfluga innviði og nýjar þjónustur sem munu styðja við vöxt og verðmætasköpun næstu ára.

Við horfum bjartsýn til framtíðar. Við munum efla nýjar tekjustoðir félagsins og sjáum tækifæri til að auka áfram skilvirkni í rekstri, meðal annars með betri innkaupum og nýtingu, minni rýrnun, einfaldari ferlum og áframhaldandi aðhaldi í kostnaði. Þá eru Hagar í góðri stöðu til ytri vaxtar, enda sýnir reynslan af fyrri kaupum að félagið hefur getu til að samþætta ný fyrirtæki, styrkja rekstur þeirra og skapa verðmæti til lengri tíma. Sterkt sjóðstreymi, traustur efnahagur og reynsla teymisins skapa svigrúm til að skoða áfram agaðan ytri vöxt þegar rétt tækifæri gefast.

Starfsfólki Haga og dótturfélaga þökkum við frábært starf á árinu. Árangur samstæðunnar verður til vegna framlags fólks í ólíkum hlutverkum, í verslunum, þjónustustöðvum, vöruhúsum, framleiðslu, eldhúsum, skrifstofum og stjórnendateymum. Sérstaklega viljum við nefna það mikla starf sem unnið er á hverjum degi í framlínu, þar sem starfsfólk okkar mætir viðskiptavinum, tryggir góða þjónustu, heldur vöruflæði gangandi og gerir líf viðskiptavina einfaldara, hagkvæmara og betra.

Við þökkum viðskiptavinum, birgjum, samstarfsaðilum og hluthöfum fyrir traustið á árinu. Hagar munu áfram vinna af krafti fyrir neytendur á Íslandi, samfélagið og hluthafa félagsins.