Fara á efnissvæði

1. Hlutafélagið Hagar hf.

1.1. Fylgni við leiðbeiningar um stjórnarhætti, lög og reglur

Stjórnarhættir Haga eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Í samþykktum er kveðið á um tilgang félagsins í kafla 1, hlutafé í kafla 2, hluthafafundi í kafla 3, um stjórn og forstjóra í kafla 4 og 5 og um reikningshald og endurskoðun í kafla 6. Gildandi starfsreglur, sem voru samþykktar af stjórn þann 7. apríl 2022, eru settar skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög og eru samþykktum félagsins til fyllingar, samanber grein 4.20 í samþykktum. Gildandi starfskjarastefna Haga var staðfest á aðalfundi félagsins þann 3. júní 2021, en hún nær til allra helstu þátta í starfs- og launakjörum stjórnarmanna félagsins, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda samstæðunnar. Endurskoðuð starfskjarastefna verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins þann 1. júní 2022.

Helstu lög sem gilda um starfsemi Haga eru lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um ársreikninga nr. 3/2006, samkeppnislög nr. 44/2005, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og lög um tekjuskatt nr. 90/2003. Þá tryggja Hagar öryggi persónuupplýsinga sem  unnið er með í starfseminni, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lögin eru aðgengileg á vef Alþingis, www.althingi.is.

Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulífsins, sem félaginu ber að fylgja sem útgefanda skráðra verðbréfa. Leiðbeiningarnar má finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is og á www.leidbeiningar.is.

Hagar birta reglur og annað efni sem Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja gera ráð fyrir að félög birti á vefsíðu sinni á sérstöku svæði fyrir fjárfesta á vef félagsins, www.hagar.is. Þar má meðal annars finna starfsreglur stjórnar og undirnefnda, starfskjarastefnu og arðgreiðslustefnu. Yfirlýsing þessi er einnig aðgengileg á vef félagsins, auk þess sem hún er birt í styttri útgáfu í skýrslu stjórnar í ársreikningi og í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.

Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess, sem hittast á hluthafafundum að minnsta kosti einu sinni á ári. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Nasdaq CSD, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins. Fundargerðir hluthafafunda, sem haldnir hafa verið eftir að hlutir félagsins voru teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins innan sjö daga frá hluthafafundi.

1.2. Frávik frá leiðbeiningum um stjórnarhætti

Stjórn Haga telur stjórnarhætti félagsins vera að fullu leyti í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021, og telur stjórn félagsins að hvergi sé vikið frá leiðbeiningunum.

1.3. Tilvísanir í reglur og önnur viðmið sem farið er eftir

Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum þess ýmsar reglur og stefnur sem fara ber eftir í starfsemi samstæðunnar með það að markmiði að tileinka sér góða stjórnarhætti og þannig efla traust til félagsins og styrkja innviði þess.

Jafnréttis- og mannréttindastefna

Í september 2021 endurskoðaði stjórn Haga jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins og samþykkti hana með breytingum en stefnan byggir á lögum nr. 150/2020. Markmið stefnunnar er að stuðla að jafnri stöðu kynjanna innan félagsins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kyni, uppruna, þjóðerni, litarhætti o.s.frv. Jafnréttis- og mannréttindastefnuna má sjá í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is, en hana skal endurskoða minnst á þriggja ára fresti.

Öll dótturfélög Haga hafa lokið jafnlaunavottun, sbr. breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem lögfest var í júní 2017, og hafa þau innleitt jafnlaunakerfi sbr. staðal ÍST 85 um jafnlaunavottun. Móðurfélag Haga mun ljúka jafnlaunavottun fyrir lok árs 2022.

Siðareglur

Stjórn Haga hefur sett félaginu siðareglur en þær gilda um stjórn Haga og allt starfsfólk félagsins og dótturfélaga þess. Siðareglurnar voru endurskoðaðar á stjórnarfundi þann 7. apríl 2022 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.

Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð

Stjórn Haga hefur sett félaginu stefnu um samfélagslega ábyrgð sem endurskoðuð var á stjórnarfundi þann 15. apríl 2021. Hagar hafa alla tíð lagt mikinn metnað í að sinna vel samfélagslegum skyldum, bæði gagnvart starfsfólki sínu, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og öðrum hagsmunaaðilum. Hagar eru stórt félag og ábyrgð gagnvart bæði umhverfis- og samfélagslegum þáttum því mikil. Félagið vill láta gott af sér leiða og hefur lagt samfélaginu lið með ýmsum hætti í gegnum tíðina. Þessu til staðfestingar hefur stjórn Haga sett félaginu umhverfisstefnu sem síðast var endurskoðuð í apríl 2021. Þá hafa Hagar og öll rekstrarfélögin í samvinnu við Klappir Grænar lausnir hf. innleitt umhverfisstjórnunarkerfi Klappa og unnið að greiningu á mælanlegum árangri samstæðunnar í umhverfismálum og öðrum málum tengdum sjálfbærni. Frá árinu 2019 hafa Hagar birt samfélagsuppgjör samstæðunnar skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir. Nánari upplýsingar um stefnu Haga tengda sjálfbærni má finna á heimasíðu félagsins, www.hagar.is.

Starfsemi Haga fellur undir ákvæði ársreikningalaga um ófjárhagslega upplýsingagjöf en þar eru settar fram  upplýsingar til að hægt sé að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfismál, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum og mútu- og spillingarmálum. Ófjárhagslegar upplýsingar Haga má finna í sérstökum viðauka í ársreikningi samstæðu Haga.

Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Á rekstrarárinu 2020/21 vann félagið að áhættumati vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem samþykkt var af stjórn félagsins þann 26. mars 2021. Markmið áhættumatsins er að greina og meta þá áhættuþætti sem samstæðan stendur frammi fyrir og beita ráðstöfunum til að draga úr hættu á að félagið verði notað í tengslum við glæpastarfsemi. Auk þess telur félagið það vera samfélagslega ábyrgt að taka af festu á þessum málaflokki.

Upplýsingastefna

Stjórn Haga hefur mótað sér stefnu um birtingu upplýsinga. Markmið upplýsingastefnunnar er að tryggja jafnan aðgang hagsmunaaðila að réttum, tímanlegum og áreiðanlegum upplýsingum um starfsemi félagsins á hverjum tíma, í samræmi við lög og reglur sem félaginu ber að fylgja sem útgefandi skráðra verðbréfa, s.s. lög um verðbréfaviðskipti. Stefnuna má finna í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is.

Samkeppnisstefna

Samkeppnisstefna Haga var samþykkt á aðalfundi félagsins í júní 2019. Í stefnunni er kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sátt Haga við Samkeppniseftirlitið frá 2018 og skyldur samkvæmt samkeppnislögum. Jafnframt felur stefnan í sér hátternisreglur fyrir hluthafa Haga. Samkeppnisstefna Haga er aðgengileg á vef félagsins, www.hagar.is.

2. Innra eftirlit og áhættustjórnun

2.1. Innra eftirlit og áhættustýring

Félagið kappkostar að hafa fullnægjandi innra eftirlit á hinum ýmsu sviðum. Innra eftirlit Haga felst í eftirliti með starfsemi félagsins í því skyni að fyrirbyggja og greina hugsanleg mistök og sviksemi birgja, starfsmanna og viðskiptavina félagsins. Félagið hefur lagt áherslu á að efla eftirlit og auka öryggisráðstafanir. Hjá Högum er m.a. í þessu skyni starfrækt sérstök öryggisdeild sem hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki í eftirliti með öllu sem viðkemur rekstri verslana félagsins. Einnig er starfandi á aðalskrifstofu Haga starfsmaður sem hefur innra eftirlit að sínu aðalstarfi og heyrir hann undir forstjóra félagsins. Hlutverk innra eftirlits og öryggisdeildar Haga er að hafa eftirlit með því að viðeigandi verklagsreglum sé fylgt í daglegum rekstri félagsins. Í því skyni er m.a. beitt sérhæfðum upplýsingakerfum. Stjórn Haga hefur falið endurskoðunarnefnd að hafa vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits. Þá hefur stjórn félagsins skilgreint áhættuþætti í rekstri Haga og miðast áhættustýringin að því að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi.

2.2. Ytri endurskoðun

Endurskoðendur félagsins eru kosnir til eins árs í senn á aðalfundi. Endurskoðendur Haga eða aðilar þeim tengdir mega ekki eiga hlutabréf í félaginu. Endurskoðendur skulu endurskoða reikningsskil félagsins á grundvelli alþjóðlegra endurskoðunarstaðla. Þeir gera ýmsar kannanir á bókhaldi félagsins og hafa ávallt óhindraðan aðgang að bókhaldi og öllum gögnum félaga í samstæðu Haga. Stjórn félagsins fær árlega í hendur sérstaka endurskoðunarskýrslu frá endurskoðendum þess þar sem fram koma helstu athugasemdir þeirra við reikningsskilin.

Endurskoðandi Haga er PricewaterhouseCoopers ehf. Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Vignir Rafn Gíslason, löggiltir endurskoðendur, bera ábyrgð á endurskoðun félagsins fyrir hönd PricewaterhouseCoopers.

2.3. Regluvarsla

Stjórn félagsins hefur skipað regluvörð þess. Hlutverk regluvarðar er m.a. að hafa umsjón með því að lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum og reglugerð MAR sé fylgt í starfsemi félagsins. Regluvörður félagsins er Guðrún Eva Gunnarsdóttir og staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson.

3. Stefna um fjölbreytileika

Stefnu um fjölbreytileika er lýst í gildandi jafnréttis- og mannréttindastefnu félagsins, sbr. umfjöllun í gr. 1.3. hér að framan en tilgangur stefnunnar er m.a. sá að stuðla að því að hlutur kynjanna verði eins jafn og unnt er í stjórnunar- og áhrifastöðum, auk þess sem stefnan miðar að jöfnum réttindum og sömu tækifærum einstaklinga í starfi. Þá er víðar í stjórnarháttum Haga tekið á málaflokknum en í samþykktum félagsins er m.a. kveðið á um að tryggja beri að hlutfall hvors kyns í stjórn félagsins sé ekki lægra en 40%, í samræmi við lög um kynjakvóta í stjórnum. Tilnefningarnefnd hefur verið skipuð af hluthöfum félagsins og ber henni skv. starfsreglum m.a. að huga vel að samsetningu stjórnar, fjölbreytni og kynjahlutföllum og starfar hún auk þess eftir leiðbeiningum um stjórnarhætti. Nánar er fjallað um tilnefningarnefnd Haga í 7. gr. leiðbeininga þessara.

4. Stjórn Haga

4.1. Samsetning og starfsemi stjórnar

Stjórn Haga hf. fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórnin var kjörin á aðalfundi þann 3. júní 2021. Stjórnina skipa Davíð Harðarson (formaður), Eiríkur S. Jóhannsson (varaformaður), Eva Bryndís Helgadóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Jensína Kristín Böðvarsdóttir. Stjórnarmenn hafa lagt fram persónulegar upplýsingar, svo sem um trúnaðarstörf fyrir aðra aðila, stjórnarsetu í öðrum félögum og möguleg hagsmunatengsl til að auðvelda mat á hæfi þeirra. Allir stjórnarmenn teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess. Samsetning stjórnar uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta sem tóku gildi 1. september 2013. 

Stjórn félagsins hefur sett sér sérstakar starfsreglur sem eru yfirfarnar árlega og voru gildandi starfsreglur samþykktar af stjórn þann 7. apríl 2022. Starfsreglurnar taka mið af fyrirmælum sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið frá 11. september 2018. Í starfsreglunum er meðal annars kveðið á um störf stjórnarinnar, ábyrgð hennar og verkaskiptingu. Sérstaklega er fjallað um skyldur formanns stjórnar í reglunum, en þar er hvorki getið um að stjórn útbúi sérstaka starfslýsingu fyrir formann né aðra stjórnarmenn. Samkvæmt starfsreglunum kýs stjórn sér formann og varaformann á fyrsta fundi. Ekki er kjörið til annarra embætta. Samkvæmt starfsreglunum ber stjórn að hittast a.m.k. einu sinni á ári án formanns til að meta frammistöðu hans. Henni ber einnig að meta árlega sín eigin störf, störf forstjóra og undirnefnda. Árangursmat stjórnar (sjálfsmatið) er lagt til grundvallar til að bæta störf stjórnar enn frekar á komandi starfsári. Í mars 2021 var ráðgjafi fenginn til aðstoðar við gerð árangursmats stjórnar, mat á frammistöðu formanns og forstjóra, sem og mat á störfum undirnefnda stjórnar.  Hvorki stjórnarmenn né forstjóri mega taka þátt í ákvörðunum þar sem þeir sjálfir hafa verulegra hagsmuna að gæta.

Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á aðalskrifstofu Haga hf., mánaðarlega hið minnsta. Árlega er samþykkt fundaáætlun ár fram í tímann. Fundina sitja, auk stjórnarmanna, forstjóri, framkvæmdastjóri fjármálasvið og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjöri á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn skal atkvæði formanns ráða. Fundargerðir stjórnarfunda ritar framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Fundargerðir eru afhentar stjórnarmönnum á stjórnarvef innan nokkurra daga frá fundi og eru þær staðfestar á næsta stjórnarfundi á eftir.

Starfsárið 2021-2022, þ.e. tímabilið milli aðalfunda, hafa verið haldnir 15 stjórnarfundir og eru áætlaðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Meirihluti stjórnar var mættur í öllum tilfellum. Stjórnarmenn voru í einhverjum tilvikum viðstaddir fund í gegnum fjarskiptabúnað.

4.2. Stjórn Haga

Nánari upplýsingar um stjórn Haga starfsárið 2021/22 má finna hér.

4.3. Fyrirkomulag samskipta hluthafa og stjórnar

Bein samskipti hluthafa við stjórn skulu vera við formann stjórnar. Stjórn félagsins skal upplýst um tillögur, spurningar eða athugasemdir hluthafa utan hluthafafunda til stjórnar og stjórn félagsins skal hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim. Hluthafar geta komið tillögum, fyrirspurnum og athugasemdum á framfæri við stjórn félagsins í gegnum netfangið stjorn@hagar.is. Allir stjórnarmenn fá sjálfkrafa afrit af tölvupóstum sem berast á netfang stjórnar.

5. Framkvæmdastjórn Haga

5.1. Forstjóri Haga

Forstjóri er ráðinn af stjórn og ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnu og fyrirmæli stjórnar, lög, samþykktir félagsins og starfsreglur stjórnar. Starfslýsing forstjóra kemur fram í ráðningarsamningi hans.

Forstjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og fjárreiður þess séu með tryggum hætti. Forstjóri kemur fram fyrir hönd félagsins í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.

Forstjóri Haga hf. er Finnur Oddsson. Staðgengill forstjóra er Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf. Nánari upplýsingar um forstjóra má finna hér.

5.2. Framkvæmdastjórn Haga

Framkvæmdastjórn Haga samanstendur af forstjóra auk þriggja framkvæmdastjóra hjá móðurfélagi og fimm framkvæmdastjórum stærstu rekstrareininga Haga. Að jafnaði eru haldnir 10 framkvæmdastjórnarfundir á ári hverju. Nánari upplýsingar um framkvæmdastjórn Haga má finna hér.

6. Undirnefndir stjórnar

Stjórn Haga hefur skipað tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Nefndarmenn skulu vera þrír í hvorri nefnd fyrir sig. Að minnsta kosti tveir nefndarmenn í undirnefndum stjórnar þurfa að vera óháðir félaginu og stjórnendum þess.

6.1. Endurskoðunarnefnd

Hlutverk endurskoðunarnefndar er m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila. Nefndinni ber að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar stjórnenda til stjórnar félagsins. Endurskoðunarnefnd skal yfirfara mikilvæg atriði varðandi reikningsskil félagsins, þ.m.t. flókin og óvenjuleg viðskipti og matskennda liði. Endurskoðunarnefnd skal enn fremur yfirfara stjórnarháttayfirlýsingu þessa. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Endurskoðunarnefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 7. apríl 2022. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.

Endurskoðunarnefnd skipa nú Anna Þórðardóttir, endurskoðandi, sem er formaður nefndarinnar, Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarmaður í Högum, og Eva Bryndís Helgadóttir, stjórnarmaður í Högum. Allir nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Haga, daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Á starfsárinu 2021/22, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2021, hafa verið haldnir þrír fundir hjá endurskoðunarnefnd og eru áætlaðir tveir fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.

6.2. Starfskjaranefnd

Starfskjaranefnd annast það hlutverk stjórnar að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjör stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Þá skal starfskjaranefnd hafa eftirlit með framfylgd starfskjarastefnunnar og útbúa skýrslu um framkvæmd hennar. Starfskjaranefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur sem samþykktar voru af stjórn þann 7. apríl 2022. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef Haga, www.hagar.is.

Starfskjaranefnd skipa nú Jensína Kristín Böðvarsdóttir, stjórnarmaður í Högum, Davíð Harðarson, stjórnarmaður í Högum, og Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarmaður í Högum. Jensína er formaður nefndarinnar. Allir nefndarmenn eru óháðir daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.

Á starfsárinu 2021/22, þ.e. eftir skipun nefndarinnar eftir aðalfund 2021, hafa verið haldnir fjórir fundir hjá starfskjaranefnd og eru áætlaðir 2-3 fundir til viðbótar fram að lokum starfsárs. Mættu allir nefndarmenn á alla fundina.

6.3. Starfskjarastefna

Starfskjarastefna Haga var samþykkt á aðalfundi þann 3. júní 2021. Tilgangur starfskjarastefnunnar er að félagið og dótturfélög þess séu samkeppnishæf um starfsfólk. Starfskjarastefnan er einn liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.

Stjórnarmönnum er greidd föst, mánaðarleg þóknun. Upphæð hennar er nú kr. 350.000 á mánuði. Laun formanns stjórnar eru tvöföld sú fjárhæð. Þóknun til stjórnarmanna er ákveðin á aðalfundi ár hvert.

Starfskjör forstjóra eru tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi við hann. Þar koma fram helstu skyldur hans og ábyrgðarsvið, föst laun, árangurstengdar greiðslur, lífeyrisréttindi, orlof og önnur hlunnindi. Starfskjör annarra æðstu stjórnenda eru á sama hátt tilgreind í skriflegum ráðningarsamningum. Þá má finna í starfskjarastefnunni upplýsingar um breytileg starfskjör forstjóra og æðstu stjórnenda ásamt upplýsingum um kaupréttarkerfi.

Starfskjarastefnan er tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. Gera skal grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins.

7. Tilnefningarnefnd

Hluthafar Haga kusu sér tilnefningarnefnd á aðalfundi félagsins þann 3. júní 2021. Í nefndinni skulu sitja að lágmarki þrír einstaklingar en stjórnarmenn Haga skulu ekki mynda meirihluta hennar.

Hlutverk tilnefningarnefndar er að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu og þekkingu og að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu. Starfsreglur nefndarinnar voru samþykktar af stjórn félagsins þann 10. maí 2021 og á aðalfundi félagsins þann 3. júní 2021. Starfsreglurnar taka m.a. mið af fyrirmælum sáttar Samkeppniseftirlitsins frá 11. september 2018. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.

Tilnefningarnefnd skipa nú Símon Á. Gunnarsson, Ásta Bjarnadóttir og Björg Sigurðardóttir, sem tók við formennsku nefndarinnar í janúar 2022 af Símoni Gunnarssyni. Meirihluti nefndarmanna er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum þess.

8. Helstu úrskurðir og dómar tengdir Högum

Undanfarið ár hafa nokkrir úrskurðir og dómar fallið er varða Haga, eins og eðlilegt er hjá stóru félagi. Ekkert þessara mála hafði áhrif á starfsemi eða rekstrarafkomu félagsins.

Stjórnarhættir Stjórn Haga

Davíð Harðarson (f. 1976)

Davíð Harðarson (f. 1976)

Netfang: david@hagar.is

Davíð er formaður stjórnar en hann var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 6. júní 2018. Davíð er með M.Sc- gráðu í fjármálum frá University of Florida, Cand.Oecon- gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Nordic Visitor. Hann var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdastjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016, fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016 og verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland 2009-2013. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Magmahótel ehf., Travel Connect hf., Terra Nova ehf., Iceland Travel ehf., Corivo ehf., Forest Cat Travel ehf. og Libra Investment ehf. Davíð á 356.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Netfang: eirikur@hagar.is

Eiríkur er varaformaður stjórnar en hann var kjörinn í stjórn Haga hf. þann 18. janúar 2019. Hann er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði hann stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University á árunum 1992-1994. Eiríkur tók við sem forstjóri Slippsins á Akureyri á árinu 2015 en hann lét af störfum sem forstjóri í lok árs 2021. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008, og þar áður forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur hann starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur er stjórnarformaður Samherja hf. og Samherja Holding ehf. auk félaga innan samstæðu þeirra. Hann er stjórnarmaður í Dysnesi þróunarfélagi og í stjórn og varastjórn Lítá ehf., Heir ehf. og Fjárhúsa ehf. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Samherja hf. sem á 51.211.948 hluti í Högum hf. Aðrir aðilar fjárhagslega tengdir Eiríki eiga 74.500 hluti í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisaðila.

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Netfang: eva@hagar.is

Eva var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMB Mandat slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. og Kassetta ehf. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969)

Netfang: jensina@hagar.is

Jensína var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er með MBA-gráðu frá University of San Diego, með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc.-gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína er framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf. og Associate Partner hjá Valcon consulting, alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki. Áður var Jensína framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sölu á einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (síðar Capacent) 2001-2004. Jensína situr í stjórn Íslandssjóða hf. og Vinnvinn ehf. og er varamaður í stjórn hjá Sunnuvegi 13 ehf. Jensína er auk þess formaður tilnefningarnefnda Símans og VÍS. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Hvorki Jensína né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

 Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962)

Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962)

Netfang: katrin@hagar.is

Katrín Olga var kjörin í stjórn Haga hf. þann 18. janúar 2019. Hún er með Cand.Oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í viðskiptum frá Odense Universitet og nám í „corporate finance“ við London Business School. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal sem stjórnarformaður og meðeigandi Já hf., framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Skipta, framkvæmdastjóri einstaklingsmarkaðs Símans, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans og framkvæmdastjóri Navision Software Ísland. Þá var Katrín Olga formaður Viðskiptaráðs Íslands árin 2016-2020. Katrín Olga situr í stjórnum Kauphallar Íslands hf., Landsnets hf. og Eyrir Venture Management ehf. Hún situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík og í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóðs. Katrín Olga hefur setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Icelandair Group, Ölgerðarinnar og Advania. Hvorki Katrín Olga né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Stjórnarhættir Framkvæmdastjórn

Finnur Oddsson (f. 1970)

Finnur Oddsson (f. 1970)

Netfang: fo@hagar.is

Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Noron ehf., FKV ehf., Stórkaup ehf., Effectus ehf. og Mynto ehf. Finnur á 255.000 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Finnur á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)

Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)

Netfang: geg@hagar.is

Guðrún Eva er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskra kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvörusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005. Guðrún Eva situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Mjöll-Frigg ehf., Noron ehf., FKV ehf., Hagar verslanir ehf., Stórkaup ehf., Olís ehf. (varamaður) og Record Records ehf. (varamaður). Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Guðrún Eva á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Magnús Magnússon (f. 1988)

Magnús Magnússon (f. 1988)

Netfang: magnus@hagar.is

Magnús er framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum en hann hóf störf þann 1. febrúar 2021. Magnús er með M.Eng. gráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley í Kaliforníu, og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Magnús hefur mikla reynslu af stefnumótun og almennum rekstri, bæði hérlendis og erlendis. Á árinu 2020 starfaði hann sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Þar áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann aðstoðaði fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús situr í stjórnum 2M ehf.. Djús ehf. og Stórkaups ehf., auk þess sem hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands. Magnús á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Magnús á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Eiður Eiðsson (f. 1968)

Eiður Eiðsson (f. 1968)

Netfang: eidure@hagar.is

Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafrænni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafrænni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS. Eiður á 100.000 hluti í Högum hf. Eiður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Guðmundur Marteinsson (f. 1965)

Guðmundur Marteinsson (f. 1965)

Netfang: gummi@bonus.is

Guðmundur er framkvæmdastjóri Bónus. Hann er menntaður vélstjóri frá Vélskóla Íslands og stúdent frá Verslunarskóla Íslands. Guðmundur hóf störf hjá Bónus árið 1992 og hefur gengið þar í öll störf. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra árið 1998. Guðmundur á 157.000 hluti í Högum hf. Guðmundur á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Sigurður Reynaldsson (f. 1966)

Sigurður Reynaldsson (f. 1966)

Netfang: sr@hagkaup.is

Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups og ZARA (Noron). Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999. Sigurður situr í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Múrbúðin ehf. og KS smíði ehf. (varamaður). Hvorki Sigurður né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Sigurður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Frosti Ólafsson (f. 1982)

Frosti Ólafsson (f. 1982)

Netfang: frosti@olis.is

Frosti er framkvæmdastjóri Olís ehf. en hann hóf störf í september 2021. Frosti hefur lokið MBA námi frá London Business School og er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Frosti býr að víðtækri reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi, hérlendis og erlendis, og hefur á síðustu árum m.a. starfað sem forstjóri ORF líftækni og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Áður starfaði Frosti sem ráðgjafi hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann vann að stefnumótun, rekstrargreiningum og umbreytingarverkefnum fyrir fjölda alþjóðlegra stórfyrirtækja. Frosti situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Mjöll-Frigg ehf., Controlant hf., Íslandsbanki hf., Garður ehf. og Óson ehf. Frosti á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur Óson ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Frosti á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Lárus Óskarsson (f. 1960)

Lárus Óskarsson (f. 1960)

Netfang: larus@adfong.is

Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðsstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988. Lárus situr í stjórn FKV ehf. Lárus á 81.000 hluti í Högum hf. Lárus á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Jóhanna Þ. Jónsdóttir

Jóhanna Þ. Jónsdóttir

Netfang: johanna@bananar.is

Jóhanna er framkvæmdastjóri Banana ehf. en hún hóf störf í september 2021. Jóhanna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Tækniháskóla Íslands. Jóhanna hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf. Þar áður vann hún hjá Distica hf., Bláa Lóninu hf. og Össuri hf. Jóhanna situr í stjórn Vörustjórnunarfélags Íslands. Hvorki Jóhanna né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga, né stóra hluthafa í félaginu.

Stjórnarhættir Arðgreiðslustefna

Stefna Haga hf. um arðgreiðslur og eiginfjárstýringu

Stjórn Haga hf. hefur markað félaginu þá stefnu að skila til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar til vaxtar og viðhalds félagsins.

Stefnt er að því að Hagar hf. greiði hluthöfum sínum árlegan arð, sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar síðasta rekstrarárs. Að auki mun félagið kaupa eigin bréf skv. formlegri endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins.

Stjórn Haga hf. stefnir að því að eiginfjárhlutfall félagsins verði um 35%.