Fara á efnissvæði
Til baka

Kaup Haga á Eldum rétt samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt.  

Eldum rétt sérhæfir sig í gerð ljúffengra matarpakka sem viðskiptavinir geta pantað á netinu. Í hverri viku geta viðskiptavinir valið á milli nýrra uppskrifta og hagað matseðli vikunnar þannig að hann henti allri fjölskyldunni. Matarpökkunum fylgja einfaldar leiðbeiningar sem gera öllum fært að elda gómsætar máltíðir úr hágæða hráefni.

„Við hjá Högum erum stolt af því að geta bætt Eldum rétt í þjónustuframboð okkar og munum viðhalda og styrkja þær áherslur sem hafa gert þjónustu Eldum rétt eins öfluga og raun ber vitni. Við hlökkum mikið til samstarfsins við starfsfólk og stjórnendur Eldum rétt sem hafa undanfarin ár skapað sterkt vörumerki þar sem áhersla á þægindi og umhverfi hafa verið höfð að leiðarljósi. Við sjáum aukna eftirspurn hjá okkar viðskiptavinum eftir vörum sem spara fólki sporin, einfalda líf þess og innihalda holl hráefni. Vörur og þjónusta Eldum rétt falla vel að okkar áherslum, þ.e. að einfalda matargerð, gera hana skemmtilegri og draga úr matarsóun“ segir Finnur Oddsson forstjóri Haga.

“Með kaupum Haga hefst nýr kafli í sögu Eldum rétt þar sem Hagar koma inn í félagið með styrkar stoðir sem munu nýtast Eldum rétt vel til að hraða vöruþróun og bæta þjónustu enn frekar. Með nýjum eigendum verður hægt að ráðast í skemmtileg verkefni og hraða allri framþróun félagsins. Við hjá Eldum rétt hlökkum til samstarfsins með Högum og höfum trú á að félagið muni blómstra áfram með nýjum eigendum.‘‘ segir Valur Hermannsson framkvæmdastjóri og annar stofnandi Eldum rétt. 

Ráðgjafar Haga í viðskiptunum voru fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka, BBA//Fjeldco og Landslög