Fara á efnissvæði
Til baka

Hagkaup styrkir Bleiku slaufuna um tvær milljónir

Þjóðin hef­ur lagst á eitt í söfn­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags­ins í ár og í lok októ­ber af­hentu for­svars­menn Hag­kaups ávís­un upp á tvær millj­ón­ir króna til Bleiku slauf­unn­ar sem söfnuðust í versl­un­um Hag­kaups.

„Í byrj­un októ­ber stóð Hag­kaup fyr­ir söfn­un þar sem viðskipta­vin­um bauðst að styrkja átakið með því að bæta 500 krón­um við inn­kaup sín sem runnu til söfn­un­ar­inn­ar og Hag­kaup lagði til upp­hæð á móti.” seg­ir Eva Lauf­ey Kjaran, markaðs- og upp­lif­un­ar­stjóri Hag­kaups.  

Sig­urður Reyn­alds­son fram­kvæmda­stjóri Hag­kaups sagðist gríðarlega þakk­lát­ur viðskipta­vin­um Hag­kaups sem styrktu átakið með þess­um hætti sem ber merki um sam­stöðuna sem rík­ir varðandi Krabba­meins­fé­lagið sem sinn­ir ein­stöku starfi