Fara á efnissvæði
Til baka

Hagar veita frumkvöðlum í matvælaiðnaði nýsköpunarstyrki

Tólf sprotafyrirtæki fengu nýsköpunarstyrk Uppsprettunnar til að vinna að nýsköpunarverkefnum í matvælaiðnaði.

Uppsprettan, nýsköpunarsjóður Haga er ætlaður er til stuðnings við frumkvöðla til þróunar og nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á að verkefnin sem að hljóta styrkveitingu taki tillit til sjálfbærni og styðji innlenda framleiðslu.

Alls bárust tugir umsókna um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd 12 verkefni til styrkveitingar að heildarverðmæti 16 milljón króna. Styrkirnir voru kynntir á sérstökum viðburði á lokadegi Nýsköpunarvikunnar.

Styrkhafar Uppsprettunar 2022

Hops er ný gerð áfengislausra drykkja sem framleiddir verða á Íslandi. Drykkirnir eru bruggaðir eftir nýstárlegum aðferðum sem þróuð hefur verið með Álfi Brugghúsi. Hops er án aukaefna, sykurlaus og áfengislaus.

Smjer er allt sem þú þarft í einu smjörstykki til þess að gera dýrindis sósu á örskammri stundu. Fyrsta vara Smjer er bearnaise og ættu allir landsmenn að geta eldað ljúffenga bearnaise með steikinni í sumar.

Baða framleiðir íslenskar sápur úr íslenskum hráefnum. Baða hefur fengið styrk til framleiðslu og þróunar á þremur nýjum vörum sem að nota íslensk hráefni sem að hafa græðandi og róandi áhrif.

Svepparíkið vinnur að þróun og ræktun á sælkeramatsveppum úr lífrænum úrgangi frá matvælaiðnaði. Sjálfbær ræktun sælkerasveppa er ný á Íslandi.

Sifmar er sprotafyrirtæki sem að vinnur að framleiðslu á hollum íslenskum barnamat.  Hugmyndafræði fyrirtækisins er að nýta íslenskt grænmeti og ávexti sem annars færu til spillis og vinna það áfram með íslenskum orku- og vatnsauðlindum.

Úr sveitinni er sprotafyrirtæki sem að vinnur að ræktun á gulrætum í öllum regnbogans litum. Litríkar gulrætur gera meðlætið og nestið skemmtilegra.

Máltíð á mettíma er vörulína frostþurrkaðra rétta. Fyrsti rétturinn sem kemur á markað er Kjöt í karrý.

Bökum saman er fjölskyldufyrirtæki sem að auðveldar fjölskyldum að skapa saman gæðastundir við bakstur. Bökum saman hefur fengið styrk fyrir þróun á þremur nýjum vörum frá fyrirtækinu.

Krispa fiskisnakk eru kryddaðar snakkflögur sem innihalda íslensk hráefni og þurrkaðan íslenskan fisk. Krispa verður fáanlegt í fjórum bragðtegundum .

Mijita er sprotafyrirtæki sem að framleiðir matvæli byggð á Kólumbískri matargerð.Arepa sem eru vegan flatbökur úr maís verða fyrstu vörur Mijita.

Anna Marta er sprotafyrirtæki sem að framleiðir heilsuvörur úr íslenskum hráefnum.  Anna Marta hefur fengið styrk til að þróunar og framleiðslu á þremur nýjum vörum, Pestó Spæsí, Pestó Sól og einstöku súkkulaði.

Ella Stína er sprotafyrirtæki sem að framleiðir eingöngu vörur úr hráefni úr plönturíkinu. Ella Stína hefur fengið styrk til þróunar á nýjum vegan vörum.

“Það er mikill kraftur í íslenskri nýsköpun í matvælaiðnaði og viljum við hjá Högum leggja okkar að mörkum að virkja þennan kraft og auka innlenda framleiðslu. Nýsköpunarsjóðurinn Uppsprettan er liður í því og er nafn sjóðsins táknrænt fyrir hlutverk hans.  Að styðja við góðar hugmyndir, vökva þær til vaxtar og tryggja það að sprotinn geti vaxið og dafnað til framtíðar” segir Finnur Oddsson forstjóri Haga

 

Heimasíða Uppsprettunnar
Sifmar nýsköpunarstyrkur Uppsprettunnar
Anna Marta - Uppsprettan
Eva Eldstæðið - Uppsprettan