Fara á efnissvæði
Til baka

Hagar styrkja verkefnið Römpum upp Reykjavík

Nú hefur verkefninu Römpum upp Reykjavík verið hrundið af stað og er markmiðið að koma fyrir 100 römpum í Reykjavík fyrir fólk á hjólastólum, eins fljótt og auðið er. Fimmtán stofnaðilar koma að verkefninu og hafa þeir sett á laggirnar sérstakan sjóð sem mun standa straum af megninu af kostnaði verslunar- og veitingahúsaeigenda við að setja upp ramp hjá sér. Hafa þeir tækifæri til að fá allt að 80% af rampinum endurgreidd úr sjóðnum.

 

„Ég þekki það manna best að ætla að sækja einhvern viðburð, fara á veitingastað eða einfaldlega í verslun sem er mér ekki aðgengileg. Mörgum rekstraraðilum hefur reynst kostnaðurinn fyrirstaða því oft er um viðkvæman rekstur að ræða og því mikilvægt að tryggja aðgengi að fjármagni. Því er ég mjög stoltur af þessu verkefni og þakklátur öllum þeim sem hafa ákveðið að leggja Römpum upp Reykjavík lið,“ segir Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og forsprakki Römpum upp Reykjavík.

 

Með römpunum er aðgengi að verslunum og veitingastöðum stóraukið fyrir alla. Unnið verður að uppsetningunni í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvöld en borgin er stofnaðili að verkefninu og mun tryggja góðan framgang þess. 

 

Stofnaðilarnir 15 eru: Hagar, Byko, Haraldur Þorleifsson, Kvika banki, Reginn, Reykjavíkurborg, Össur, Félagsmálaráðuneytið, Íslandsbanki, Stjórnarráðið, Aton.JL, Brandenburg, ÍAV, Sjálfsbjörg og Öryrkjabandalagið.