Á vegum Haga eru reknar níu sjálfstæðar rekstrareiningar með ólík rekstrarform og menningu, auk netverslunar með áfengi í Hollandi. Allar einingarnar leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu, sjálfbærni og virðisaukningu fyrir eigendur félagsins. Rekstrareiningar Haga búa yfir áralangri þekkingu á viðskiptum og smásölu og byggja á trausti viðskiptavina sem áunnist hefur um langt árabil.
HLUTVERK HAGA
Hlutverk Haga er að veita rekstrareiningum félagsins stuðning og aðhald í rekstri ásamt því að virkja rekstrar-, markaðs-, tækni- og viðskiptalega samlegð fyrirtækjanna til aukins hagræðis fyrir viðskiptavini og eigendur félagsins. Allar rekstrareiningar Haga leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu, sjálfbærni og virðisaukningu fyrir eigendur félagsins. Lögð er áhersla á getu allra eininga til þess að hreyfa sig hratt og flækja ekki einfalda hluti.
GILDI HAGA
Hagkvæmni
Við leitum stöðugt nýrra leiða til að geta boðið neytendum meira fyrir minna.

Samvinna
Styrkur Haga felst í innbyrðis samvinnu eininganna og uppbyggilegu samstarfi við alla okkar viðskiptavini.
Þjónustulund
Án viðskiptavina væru Hagar ekki til. Við viljum alltaf bæta þjónustu og upplifun þeirra.
Framsækni
Við viljum halda áfram að þróa íslenska verslunarflóru og bjóða neytendum upplifun og gæði í fremstu röð á heimsvísu.
STERKARI SAMAN
Allar rekstrareiningar Haga eru reknar sem sjálfstæðar einingar en með áherslu á samvinnu, m.a. með því að byggja á sameiginlegum innviðum og deila þekkingu. Hjá félögum Haga starfa í árslok um 3.500 starfsmenn í 1.800 stöðugildum sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks með sínum störfum. Starfsfólk félagsins býr yfir áralangri þekkingu á verslun, bæði á Íslandi og í Færeyjum, og hefur byggt upp viðskiptatengsl við birgja og framleiðendur um allan heim.
HÖFUM JÁKVÆÐ ÁHRIF
Hagar og dótturfélög leggja áherslu á sjálfbærni í allri sinni starfsemi og hafa lagt metnað sinn frá upphafi í að þjóna neytendum með ábyrgum hætti. Hagar taka virkan þátt í samfélagslegum verkefnum og starfsfólk og stjórnendur félagsins trúa því að það sé ekkert "plan B" og nálgast því öll verkefni með það fyrir augum að þau hafi jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.
-
Dagvöruverslanir - Ísland 40
-
Þjónustu- og bensínstöðvar 65
-
Dagvöruverslanir - Færeyjar 13
-
Fjöldi starfsmanna 3.508
REKSTRAREININGAR HAGA
Innan þeirra átta rekstrareininga sem Hagar starfrækja á Íslandi í lok rekstrarárs eru 40 dagvöruverslanir, ein netverslun með matarpakka, 22 Olís þjónustustöðvar og 43 ÓB-stöðvar um allt land. Einnig rekur félagið tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Í Færeyjum starfrækja Hagar verslunarfélagið SMS sem er leiðandi á færeyska markaðinum en SMS rekur m.a. 13 dagvöruverslanir, sex veitingastaði og þrjár sérvöruverslanir. Í Hollandi starfrækja Hagar eina netverslun með áfengi.
Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland með auðkenninu HAGA. Höfuðstöðvar félagsins eru á Holtavegi 10 í Reykjavík.
Dótturfélög í samstæðu Haga, þar sem rekstrareiningar félagsins eru starfræktar, eru Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Eldum rétt ehf., Bananar ehf., Stórkaup ehf., Noron ehf., P/F SMS og Hagar Wine B.V.
Undir hatti Haga verslana eru fyrirtækin Bónus, Hagkaup og Aðföng. Bónus og Hagkaup eru tvær af stærstu matvöruverslunarkeðjum landsins og sinnir vöruhúsið Aðföng innflutningi, innkaupum og dreifingu fyrir matvörukeðjurnar og Olís. Olís sérhæfir sig í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist, auk sölu skyndibita og ýmissa nauðsynjavara.
Eldum rétt er netverslun með matarpakka og ein stærsta netverslun landsins með dagvöru. Bananar er stærsti dreifingaraðili á fersku grænmeti og ávöxtum á Íslandi. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með rekstrarvörur, hreinlætisvörur og heilbrigðisvörur. Noron rekur tískuvöruverslunina Zara í Smáralind sem selur fatnað og fylgihluti fyrir alla aldurshópa. SMS er verslunarfélag í Færeyjum en starfsemi þess er í dagvöru, sérvöru og veitingastaðarekstri. Starfsemi Haga Wine felst í rekstri netverslunar með áfengi.
Hlutdeildarfélög Haga eru Klasi ehf. og Djús ehf. Hagar eiga 1/3 hlut í Klasa en félagið er fasteignaþróunarfélag sem unnið hefur að fjölmörgum þróunarverkefnum í tæp 20 ár. Djús rekur veitingastaði undir merkjum Lemon en Hagar eiga 49% hlut í félaginu. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. og á auk þessi hluti í fleiri smærri félögum.
Regluvörður Haga er Guðrún Eva Gunnarsdóttir. Staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Tölvupóstfang regluvarða er regluvordur@hagar.is.

Um Haga Bónus
-
Stofnað 1989
-
Verslanir 33
-
Starfsmenn 1.110
-
Vörusala +90 milljarðar
Um Bónus
Bónus opnaði sína fyrstu verslun árið 1989 við Skútuvog 13 í Reykjavík. Viðtökur landsmanna við hinni nýju verslun voru frábærar enda vöruverð mun lægra en þá þekktist. Frá þessum tíma hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt, með 33 verslanir í lok árs 2024/25 - 20 á höfuðborgarsvæðinu og 13 á helstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni.
Frá upphafi hefur markmið Bónus verið skýrt; að tryggja neytendum um land allt lægsta mögulega vöruverð hverju sinni, auk þess sem Bónus hefur ávallt boðið sama verð í öllum sínum verslunum. Lykillinn að markmiðinu hefur verið lágur rekstrarkostnaður, íburður í lágmarki, takmarkað vöruúrval sem spannar þó allar þarfir heimilisins, stöðugt kostnaðaraðhald og mikill veltuhraði. Leiðarljós fyrirtækisins hefur ávallt verið að láta viðskiptavini njóta ávinnings af hagstæðum innkaupum og hagkvæmum rekstri.
Sjálfbærni og stuðningur við samfélagið hefur verið grunnstef í starfsemi Bónus allt frá upphafi. Fyrirtækið flokkar til dæmis plast, pappa og annan úrgang í öllum verslunum og hefur gert um margra árabil. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Bónus má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2024/25.
Hjá Bónus störfuðu í árslok 1.110 starfsmenn og var meðalfjöldi stöðugilda 482 á árinu.
Árið sem leið
Að baki er gott rekstrarár í sögu Bónus en heildarsala nam rúmum 90 ma. kr. og jókst um 6,1% frá fyrra ári. Afkoma félagsins var einnig góð og styrktist hlutfallslega meira milli ára. Viðskiptavinum sem heimsóttu verslanirnar fjölgaði nokkuð milli ára og hafa aldrei verið fleiri. Fjöldi seldra stykkja stóð nánast í stað en áhrif verðbólgu og breyttrar vörusamsetningar matarkörfunnar skýra hér að mestu aukna sölu milli ára. Á rekstrarárinu var vöruúrval í verslunum tekið til skoðunar þar sem úrval var aukið í stærri verslunum en lítillega straumlínulagað í þeim minni. Áhersla hefur verið sem fyrr á að aðstoða viðskiptavini við að versla ódýrt, þar sem auðvelt er að finna hagkvæmustu kostina í hverjum vöruflokki. Í boði eru staðkvæmdarvörur fyrir dýrari vörumerki, stærri hagkvæmari sölueiningar og hefur tilboðum verið fjölgað en því til viðbótar lækkaði verð á um 500 vörunúmerum frá fyrra ári.
Í upphafi árs var verslun Bónus á Ísafirði uppfærð, endurbyggð og stækkuð. Breytingunni hefur verið ákaflega vel tekið af Vestfirðingum þar sem viðskiptavinum hefur fjölgað talsvert. Á sama tíma var Gripið & Greitt tekið í notkun í versluninni en viðamikil innleiðing á sjálfsafgreiðslulausninni átti sér stað á árinu og er hún nú komin í 12 verslanir víða um land.
Á árinu hóf Bónus undirbúning á verkefni sem ber heitið Barnabónus en því er ætlað að styðja við bakið á barnafjölskyldum og létta þeim lífið á fyrstu mánuðum eftir fæðingu. Barnabónus er veglegur upphafspakki með nauðsynlegum vörum fyrir nýbura og foreldra þeirra.

Um Haga Hagkaup
-
Stofnað 1959
-
Verslanir 7
-
Starfsmenn 726
-
Vörunúmer 60.000+
Um Hagkaup
Hagkaup er leiðandi smásölufyrirtæki sem býður breitt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, snyrtivöru og leikföngum, ásamt góðu úrvali af fatnaði, tómstundavöru og heimilisvöru. Hagkaup var stofnað árið 1959 og starfaði fyrstu árin sem póstverslun en fyrsta verslunin var síðan opnuð við Miklatorg í Reykjavík árið 1967. Árið 1970 opnaði Hagkaup verslun sína í Skeifunni sem er eitt helsta flaggskip starfseminnar enn þann dag í dag.
Starfsemi Hagkaups á djúpar rætur að rekja í íslensku samfélagi, enda verið órofinn hluti af verslunarsögu landsins í 66 ár. Hugsjón Hagkaups hefur ávallt verið að bjóða viðskiptavinum upp á fjölbreytt vöruúrval, þægilegan opnunartíma og hlýlegt viðmót. Lögð er áhersla á að leita fjölbreyttra leiða til að gera hversdaginn aðeins skemmtilegri, ánægjulegri og einfaldari.
Hjá Hagkaup starfar metnaðarfullt starfsfólk sem er sífellt á höttunum eftir einstökum vörum sem mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina. Nýstárlegum hugmyndum er fagnað og unnið er stöðugt að því að finna lausnir sem gera upplifun viðskiptavina sem besta.
Í árslok rak Hagkaup sjö verslanir, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu og eina á Akureyri. Hagkaup leggur áherslu á þægindi og þjónustu og eru því tvær verslanir Hagkaups, í Skeifunni og Garðabæ, opnar allan sólarhringinn. Auk þess starfrækir Hagkaup öfluga netverslun með snyrtivörur, leikföng, veislurétti og aðra sérvöru og er boðið upp á sendingar hvert á land sem er, hratt og örugglega.
Hagkaup leggur ríka áherslu á sjálfbærnimál í allri sinni starfsemi og hefur fyrirtækið sett sér það markmið að vera í fararbroddi í málaflokknum. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Hagkaups má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2024/25.
Í árslok voru starfsmenn Hagkaups 726 talsins og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 323.
Árið sem leið
Afkoma Hagkaups styrktist nokkuð milli ára en vörusala nam rúmum 25,0 ma. kr. og jókst um tæp 2,0% milli ára. Aðsókn í Hagkaup var sterk í sögulegu samhengi en seldum stykkjum fækkar aðeins frá fyrra ári, m.a. vegna breyttrar samsetningar vörukörfu með aukinni sölu á tilbúnum réttum o.fl. Netverslun hefur vaxið mikið milli ára en það er sá hluti starfseminnar sem er að vaxa hvað hraðast.
Árið sem leið einkenndist af fjölmörgum nýjungum. Í upphafi árs var Skálin, nýr skyrbar, opnaður í Hagkaup Skeifunni þar sem stækka þurfti aðstöðu og afkastagetu strax á upphafsdögunum vegna mikilla vinsælda. Í september opnaði Skálin einnig í Garðabæ og Lavazza útibú opnaði í Hagkaup í Smáralind á svipuðum tíma. Í október bauðst Íslendingum í fyrsta sinn að fá afhent vegabréf og nafnskírteini í Hagkaup í Skeifunni, allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Í lok árs opnaði svo Build-A-Bear í fyrsta sinn á Íslandi í Hagkaup í Smáralind en viðtökur voru hreint út sagt frábærar og er hér um að ræða frábæra viðbót við flóruna í Hagkaup.
Í september opnaði hollenskt dótturfélag Haga, Hagar Wine B.V, erlenda netverslun með áfengi. Umtalsverður undirbúningur var hjá Hagkaup sem sinnir samningsbundnu þjónustuhlutverki fyrir Haga Wine, m.a. afhendingu og afgreiðslu af lager Haga Wine á Íslandi.

Um Haga Olís
-
Stofnað 1927
-
Þjónustu- og bensínstöðvar 65
-
Hraðhleðslustöðvar 17
-
Starfsmenn 436
Um Olís
Olís ehf. var stofnað árið 1927 og er því elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Olís sérhæfir sig í sölu og þjónustu á eldsneyti og öðrum olíuvörum, auk sölu veitinga og ýmissa nauðsynjavara fyrir bílaeigendur. Olís sinnir einnig fjölþættri sölu og þjónustu gagnvart stórnotendum um land allt, m.a. sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtækjum.
Grunnrekstur Olís hefur ávallt verið eldsneytissala, en með nýtingu á dreifineti fyrirtækisins og sérfræðiþekkingu hefur vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins verið víkkað, m.a. með samstarfi við Dropp og Wolt. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. en Olíudreifing sér m.a. um birgðahald og dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olís.
Hlutverk Olís er að vera verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum góðar vörur á samkeppnishæfu verði, ásamt sveigjanlegu sölu- og þjónustukerfi um land allt. Þá leggur Olís áherslu á umhverfisvernd og mannúðarmál í allri sinni starfsemi.
Í árslok rak Olís 22 þjónustustöðvar vítt og breitt um landið undir vörumerki Olís, þar af 8 á höfuðborgarsvæðinu. Markmið þjónustustöðva Olís er að vera „vinir við veginn“ og vera áfangastaður viðskiptavina á ferðinni um landið. Á stærstu þjónustustöðvum sínum rekur Olís skyndibitamerkin Grill 66 og Lemon mini.
Olís hefur frá haustinu 2022 átt í samstarfi við Ísorku um uppbyggingu á neti hraðhleðslustöðva, vítt og breitt um landið. Síðan þá hefur stöðvunum fjölgað jafnt og þétt og hafa í dag 17 hraðhleðslustöðvar verið settar upp á Olís og ÓB stöðvum.
Fyrsta ÓB-sjálfsafgreiðslustöðin var opnuð árið 1996 í Hafnarfirði en þær eru nú orðnar 43 talsins um land allt, þar af níu á höfuðborgarsvæðinu og 34 á landsbyggðinni.
Olís hefur í gegnum tíðina hugað vel að umhverfismálum og leggja áherslu á stuðning við félagasamtök og íþróttastarfsemi. Olís leggur jafnframt áherslu á að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og starfsánægja eru höfð a ð leiðarljósi. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Olís má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2024/25.
Í árslok störfuðu 436 starfsmenn hjá Olís og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 315.
Árið sem leið
Á nýliðnu ári jókst hagnaður töluvert, þrátt fyrir samdrátt í veltu í krónum talið og að seldum eldsneytislítrum hafi fækkað. Sveiflur heimsmarkaðsverðs olíu höfðu jákvæð áhrif á framlegð, sem batnaði nokkuð milli ára, auk þess sem hagfelld birgðastýring og ávinningur af gengisvörnum skiluðu jákvæðri niðurstöðu. Kröftugur vöxtur var í þurrvörusölu og vel tókst til að hagræða í kostnaði en saman skilar þetta einu besta ári í rekstri Olís í sögulegu samhengi.
Á árinu var unnið að nokkrum stórum verkefnum til að bæta þjónustu við viðskiptavini félagsins. Ber þar fyrst að nefna nýtt Olís - ÓB app en með notkun á appinu fá viðskiptavinir nú betri yfirsýn yfir öll sín viðskipti á einum stað, auk þess að geta framvegis borgað með símanum. Olís opnaði einnig nýja bílaþvottastöð í Mosfellsbæ sem ber heitið Glans en um er að ræða frábæra viðbót fyrir bílaeigendur sem geta nú þrifið bílinn sinn á styttri tíma en áður hefur verið í boði. Tvær staðsetningar verða opnaðar til viðbótar á sumarmánuðum.

Um Haga SMS
-
Stofnað 1977
-
Starfsmenn 784
-
Verslanir 16
-
Veitingastaðir 6
Um SMS
SMS er leiðandi verslunarfélag í Færeyjum en félagið á rætur að rekja aftur til ársins 1977. SMS rekur m.a. átta Bónus lágvöruverðsverslanir víða í Færeyjum auk stórverslunarinnar Miklagarðs í Þórshöfn en verslunin selur bæði matvöru og sérvöru, líkt og leikföng. Þá rekur Miklagarður einnig kjötvinnslu fyrir SMS samstæðuna. Í Þórshöfn eru reknar fjórar smærri matvöruverslanir undir nafninu Mylnan, en félagið rekur einnig brauð- og kökugerð fyrir samstæðuna.
SMS er einnig í rekstri annarra sérverslana og þjónustu, bæði í gegnum dótturfélög sín og hlutdeildarfélög. Ber þar helst að nefna rekstur smásöluverslana Rumbul og Sheep sem selja ýmsa dagvöru á hagstæðu verði, en SMS á 60% hlut í félögunum. Hlutdeildarfélögin eru líkamsræktarstöðvar Burn, og ís- og eftirréttagerðin Omaná en SMS á 50% hlut í félögunum.
SMS er umsvifamikið í annarri starfsemi, m.a. rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja og fjölda veitingastaða. Fjórir af veitingastöðunum eru í verslunarmiðstöðinni, þ.e. Burger King, Sunset Boulevard, Sushi Daily og Hornið. Þá eru reknir tveir steikarstaðir undir nafninu Angus Steakhouse í Þórshöfn og Klaksvík.
SMS leggur sérstaka áherslu á að bjóða viðskiptavinum ávallt upp á hagkvæma matvörukosti, en um leið standa fyrir stöðugri framþróun í verslun til að tryggja góða upplifun viðskiptavina.
SMS á fjölbreytt fasteignasafn sem telur um 11.000 m2 sem er að mestu nýtt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila.
Í árslok störfuðu tæplega 800 manns hjá SMS og dótturfélögum, í 314 stöðugildum.
Árið sem leið
Í lok nóvember undirrituðu Hagar samning um kaup á öllu hlutafé SMS í Færeyjum. Yfirtökudagur var 2. desember 2024 og varð SMS því hluti af samstæðu Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins.
Rekstrarniðurstaða fjórðungsins var góð og nam sala um 3,5 ma. kr. Helstu áherslur fjórðungsins voru jólaverslun og aðlögun við nýtt móðurfélag, hvað varðar skýrslu-, upplýsingagjöf og fleira.

Um Haga Eldum rétt
-
Stofnað 2013
-
Starfsmenn 58
-
Úrval rétta 528
-
Nýir viðskiptavinir 4.200+
Um Eldum rétt
Eldum rétt er netverslun sem stofnuð var árið 2013. Eldum rétt býður viðskiptavinum sínum matarpakka með uppskriftum og hráefni í réttu magni til að elda hollar og bragðgóðar máltíðir, með sem minnstri fyrirhöfn. Markmið Eldum rétt er að gera eldamennskuna skemmtilegri og samverustundir fjölskyldunnar fleiri og betri.
Í hverri viku geta viðskiptavinir raðað saman réttum vikunnar í sinn matarpakka. Valið stendur á milli 24 rétta sem breytast í hverri viku og gerist fjölbreytnin því ekki mikið meiri. Með því að afhenda viðskiptavinum 2-5 rétti á sama tíma sparast bæði tími og orka. Öllum hráefnum er handpakkað svo hægt sé að tryggja hámarks ferskleika og gæði hverju sinni. Eldum rétt er leiðandi á þessum markaði og býður upp á ferska og holla lausn fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Pöntunarfrestur spilar lykilhlutverk í rekstri og þjónustu Eldum rétt. Viðskiptavinir panta með minnst fimm daga fyrirvara en með því fá þeir ferskari hráefni, meiri fjölbreytni, minni matarsóun og skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Í framleiðsluferlinu er tryggð lágmarks matarsóun þar sem pantað er nákvæmt magn hráefna frá birgjum og því er pakkað í rétta skammta til viðskiptavina.
Eldum rétt framleiðir einnig matarkassa undir nafninu „Einstakir réttir“ sem seldir eru í verslunum Hagkaups. Í kassanum er að finna hráefni í réttum skömmtum, ásamt uppskrift, líkt og hægt er að panta á netinu en í boði eru 9 mismunandi réttir hverju sinni.
Eldum rétt hefur gjörbylt neyslumynstri viðskiptavina sinna og eru nú mörg þúsund landsmanna sem borða Eldum rétt í hverri viku.
Í árslok störfuðu 58 starfsmenn hjá Eldum rétt og var meðalfjöldi stöðugilda á árinu 39.
Árið sem leið
Eldum rétt á flott ár að baki en góð eftirspurn hefur verið eftir matarpökkum fyrirtækisins. Hápunktur ársins var 10 ára afmælishátíð fyrirtækisins sem haldin var í byrjun rekstrarárs. Viðskiptavinir áttu þá möguleika á risastórum ferðavinning sem laumað var af handahófi í nokkra matarpakka á meðan afmælishátíðin stóð yfir. Segja má að viðskiptavinir hafi heldur betur tekið við sér en eftirspurn fór langt fram úr væntingum.
Á árinu bættist við ný þjónusta þar sem viðskiptavinir geta nú verslað viðbótarvörur til heimilisins sem sendar eru heim í sama kassa og matarpakkar vikunnar. Þannig geta viðskiptavinir sparað spor og tíma og samnýtt með heimkeyrslu vikunnar

Um Haga Aðföng
-
Stofnað 1993
-
Starfsmenn 171
-
Vörunúmer 15.000+
-
Viðskiptalönd 30
Um Aðföng
Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði en starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups og Olís auk heildverslunar Stórkaups. Sögu Aðfanga má rekja aftur til ársins 1993 þegar Bónus og Hagkaup stofnuðu sameiginlegt innkaupafyrirtæki undir nafninu Baugur ehf. Fyrirtækið hóf starfsemi í Suðurhrauni í Garðabæ og fékk nafnið Aðföng fimm árum síðar en þá um haustið, árið 1998, flutti fyrirtækið í Skútuvog 7. Alla tíð síðan hefur Aðföng þróað þar starfsemi sína fyrir þurrvörulager. Auk þurrvörulagers í Skútuvogi rekur Aðföng kæli- og frystivörugeymslu í Korngörðum 1 og starfsemi Ferskra kjötvara í Síðumúla 34. Ferskar kjötvörur eru einn af stærstu kjötverkendum landsins og býður neytendum upp á það besta í nauti og lambi frá íslenskum bændum. Ferskar kjötvörur leggja mikla áherslu á ferskleika, gæði og rekjanleika vara og sjá öllum matvöruverslunum Bónus og Hagkaups fyrir kjöti.
Innkaup Aðfanga felast annars vegar í viðskiptum við innlenda birgja og hins vegar innflutningi, þar á meðal eigin vörumerkja. Aðföng vinnur að vöruþróun eigin merkja í samstarfi við matvörukeðjurnar en þar ber hæst vörumerkin Himneskt og Heima. Aðföng flytur einnig inn léttvín frá helstu vínræktarhéruðum heims sem selt er í netverslun Haga Wine og í vínbúðum ÁTVR.
Stærðarhagkvæmni er lykilstef í allri starfsemi Aðfanga en um 15.000 vörunúmer, sem koma frá 30 viðskiptalöndum, fara í gegnum vöruhús fyrirtækisins, sem svo er dreift í um 70 verslanir. Nýjasta tækni er nýtt við rekstur fyrirtækisins hvar sem því verður við komið. Til þess að Aðföng geti sinnt kjarnahlutverki sínu, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli.
Aðföng leggja áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar en með skilvirkum verkferlum og umhverfisvænum lausnum leggur Aðföng sitt á vogarskálarnar. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Aðfanga má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2024/25.
Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 171 starfsmaður í 153 stöðugildum.
Árið sem leið
Síðastliðin ár hefur mikil áhersla verið lögð á fjárfestingu í innviðum í vöruhúsi Aðfanga. Unnið hefur verið að breytingu og stækkun vöruhússins í Skútuvogi en þeim framkvæmdum lauk á árinu. Vinnuaðstæður eru nú eins og best verður á kosið, skilvirkni hefur verið aukin og vöruhúsið í stakk búið að mæta aukinni eftirspurn í framtíðinni. Þá hefur einnig verið unnið að innleiðingu á nýju vöruhúsakerfi, tínslukerfi, innkaupakerfi o.fl.

Um Haga Bananar
-
Stofnað 1955
-
Starfsmenn 106
-
Viðskiptavinir 900+
-
Daglegar pantanir 430
Um Banana
Bananar ehf. var stofnað árið 1955 og er næst elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Bananar er stærsti innflutnings- og dreifingaraðili á fersku grænmeti, ávöxtum og berjum á Íslandi og jafnframt eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins. Einnig eru Bananar stærsti kaupandi og dreifingaraðili á innlendri grænmetis- og berjaræktun.
Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna voru fyrstu starfsár þess helguð innflutningi og þroskun banana. Síðan þá hafa áherslur breyst og í dag býður fyrirtækið upp á mikið og gott úrval af bæði íslensku og erlendu grænmeti og ávöxtum allan ársins hring. Vörum er dreift til viðskiptavina sex daga vikunnar, þar af til verslana Bónus og Hagkaups.
Viðskiptavinir Banana eru um 900 talsins og samanstanda af verslunum, veitingahúsum, heilbrigðisstofnunum, skólum, leikskólum, mötuneytum o.fl.
Til þess að Bananar geti sinnt sínu kjarnahlutverki, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli. Til þess að sinna þessum þörfum hafa Bananar bein viðskiptasambönd út um allan heim og beina því viðskiptum sínum beint til þeirra landa þar sem gæði ávaxta og grænmetis er best hverju sinni. Vörur berast vikulega með skipi og daglega með flugi en auk þess berst daglega grænmeti frá íslenskum grænmetisframleiðendum.
Starfsfólk Banana hefur um langt skeið haft sjálfbærni að leiðarljósi í sínu starfi og er fyrirtækið í raun þjóðhagslega mikilvægt þegar kemur að því að sjá landsmönnum daglega fyrir hollum og góðum vörum. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Banana má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2024/25.
Starfsmenn fyrirtækisins voru í árslok 106 talsins í 99 stöðugildum.
Árið sem leið
Ágætur tekjuvöxtur var í starfsemi Banana á árinu og afkoma batnaði. Líkt og hjá Aðföngum átti sér stað mikil uppbygging innviða hjá vöruhúsi Banana á árinu. Tekið var í notkun nýtt vöruhúsakerfi sem gjörbreytir öllum vinnuferlum fyrirtækisins, eykur nákvæmni, bætir gæðaferla og einfaldar tínsluferli.
Á árinu var unnið að uppsetningu á nýjum vef og vefverslun Banana. Með tilkomu vefverslunarinnar skapast aukin þægindi fyrir viðskiptavini Banana þar sem pöntunarferli verður mun aðgengilegra. Lögð var áhersla á líflega og litríka hönnun, með jákvæða upplifun viðskiptavina að leiðarljósi.

Um Haga Stórkaup
-
Stofnað 2022
-
Starfsmenn 22
-
Viðskiptavinir 4.000+
-
Vörunúmer 3.000+
Um Stórkaup
Stórkaup var stofnað árið 2022 og hóf rekstur sinn í maí sama ár en stofnun fyrirtækisins byggir á grunni valinna vöruflokka fyrirtækjasviðs Olís. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með aðföng á breiðum grunni þar sem leiðarljósin í rekstri eru hagkvæmni, nútímalegt þjónustustig og einfalt skipulag sölu og dreifingar.
Helstu vöruflokkar fyrirtækisins eru ýmsar rekstrar-, hreinlætis- og heilbrigðisrekstrarvörur auk helstu flokka matvöru og áfengis. Viðskiptavinir Stórkaups eru m.a. framleiðendur, sjávarútvegur, rekstraraðilar, veitingageirinn, hótel og heilbrigðisstofnanir.
Markmið Stórkaups er að bjóða gæða vörur á samkeppnishæfu verði, veita góða þjónustu og áreiðanleika í vöruframboði og afhendingum. Hjá Stórkaup starfar samhentur hópur með mikla reynslu og sérfræðiþekkingu á sínu sviði.
Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 22 starfsmenn í 21 stöðugildi.
Árið sem leið
Góður tekjuvöxtur einkenndi nýliðið rekstrarár hjá Stórkaup en uppbyggingafasi fyrirtækisins gengur samkvæmt áætlun. Áframhald hefur verið á stækkun og útvíkkun vöruflokka auk þess sem stöðugt er unnið að umbótum á netverslun félagsins en hlutfall veltu í gegnum vefverslun hefur aukist jafnt og þétt á árinu.

Um Haga Zara
-
Stofnað 2001
-
Starfsmenn 57
-
Heimsóknir viðskiptavina ~ 245.000
-
Fjöldi fermetra 2.800
Um Zara
Noron ehf. rekur verslun ZARA á Íslandi. ZARA er alþjóðlegt tískuvörumerki sem hefur skipað sér sess sem eitt af leiðandi fyrirtækjum í fatnaði og fylgihlutum fyrir alla aldurshópa á viðráðanlegu verði.
Grunnurinn að velgengni vörumerkisins Zara á heimsvísu felst einna helst í því að greina óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Varan er hönnuð í takt við stefnur og strauma í tískuheiminum hverju sinni og ráða viðtökur og óskir viðskiptavina frekari framleiðslu og vöruþróun.
Mikil áhersla er lögð á sanngjarnt verð og hraða vöruveltu en áhersla er lögð á að nýjar vörur séu á boðstólnum að lágmarki tvisvar í viku. Einnig hefur verslunarkeðjan unnið ötullega í sjálfbærni, meðal annars með því að endurvinna notaðan fatnað, bæta vinnuskilyrði starfsmanna og nota sjálfbær efni í auknum mæli.
Í daglegum rekstri verslunarinnar er allt sorp flokkað og endurunnið að því marki sem endurvinnsla er möguleg. Sömuleiðis er unnið að virku hringrásarhagkerfi með endursendingum til vöruhúsa á öllu endurnýtanlegu hráefni.
Fyrsta verslun ZARA opnaði á Íslandi árið 2001 og í dag starfrækja Hagar eina verslun og vefverslun undir merki ZARA með sérleyfissamningi frá Inditex á Spáni. Verslunin er staðsett í Smáralind.
Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 57 starfsmenn í 35 stöðugildum.
Árið sem leið
Rekstur ZARA gekk vel á árinu þar sem velta jókst umtalsvert frá fyrra ári. Seldum stykkjum fjölgaði nokkuð og viðskiptavinir heimsóttu verslunina oftar. Þá hefur hlutfall netverslunar af heildarsölu aukist jafnt og þétt undanfarin ár.
