HAGKAUPSVERSLANIR VERÐLAUNAÐAR
FRÉTTATILKYNNING REYKJAVÍK 05.04. 2018
Úrslit, annað og fyrsta sæti:
HAGKAUPSVERSLANIR
VERÐLAUNAÐAR MEÐ SILFRI OG GULLI
Á ERLENDUM HÁTÍÐUM
Ný hönnun Hagkaupsverslana í Smáralind og Kringlunni hefur farið sigurför um erlendar hönnunarhátíðir undanfarnar vikur. Hönnunin var tilnefnd til fjögurra alþjóðlegra hönnunarkeppna og komst í úrslit í þremur þeirra. Til að bæta um betur vann hönnunin silfur í einni keppni og gull í annarri.
Breytingarnar hófust i Smáralind árið 2016 þegar ákveðið var að taka nýja nálgun á útlit og vöruúrval og tókust breytingarnar svo vel að verslun Hagkaups í Kringlunni fylgdi í kjölfarið. Hönnun Hagkaupsverslanana vann til silfurverðlauna í DBA Design Effectiveness Awards fyrir áhrifamestu breytingar á verslun. Og nú hafa borist nýjar fréttir af sigurför hönnunarinnar. Gull féll Hagkaup í skaut í The Transform Awards Europe, en þar vann hönnunin fyrir Bestu upplifun á vörumerki, Best Brand Experience
„Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur, en við vissum um leið og við sáum teikningarnar af nýju verslununum að þetta myndi ganga. Við fengum líka mikil viðbrögð frá viðskiptavinum okkar og nú bætast viðurkenningar erlendis frá við,” segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups.
Óhætt er því að segja að hönnun Hagkaupsverslana hafi slegið í gegn, því eins og áður sagði var hönnunin tilnefnd til fjögurra alþjóðlegra verðalauna og hafði úrslit, annað og fyrsta sæti upp úr krafsinu.
Velkominn í Hagkaup, þar sem breytingarnar eru ekki bara
áhrifamestar heldur eru líka með bestu upplifunina.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri í síma 693 5051