STERKUR REKSTUR Á ÁRI ÞAR SEM KJARNASTARFSEMI VAR ÚTVÍKKUÐ TIL FÆREYJA
Rekstrarárið 2024/25 var farsælt hjá samstæðu Haga og markaðist af því að mikilvæg stefnumótandi skref voru stigin í átt að frekari útvíkkun á starfsemi félagsins. Rekstur hélt áfram að styrkjast og afkoma jókst umtalsvert frá fyrra ári. Heildartekjur námu ríflega 180 milljörðum króna, rekstrarhagnaður (EBITDA) var 14,7 milljarðar og hagnaður 7 milljarðar. Við erum sérstaklega ánægð með árangurinn, ekki síst í ljósi þess að aðstæður hafa um margt verið krefjandi, viðvarandi óvissu á alþjóðavettvangi og þrýstingur á íslensk heimili vegna þrálátrar verðbólgu og hárra vaxta. Ágæt afkoma staðfestir því að stefnumótandi áherslur og þróun á þjónustuframboði hafa fallið vel í kramið hjá viðskiptavinum og að umbætur í rekstri eru að skila tilætluðum árangri.
Allar helstu rekstrareiningar Haga skiluðu góðri niðurstöðu á árinu. Tekjur og umsvif verslana og vöruhúsa á Íslandi jukust áfram og metfjöldi viðskiptavina heimsótti dagvöruverslanir félagsins. Starfsemi Bónus gekk vel og einkenndist af áframhaldandi tekjuvexti, fjölgun viðskiptavina og stöðugri þróun í þjónustu. Sem fyrr var sérstök áhersla lögð á skilvirkni og árangur í innkaupum til að tryggja viðskiptavinum hagkvæmustu mögulegu kjör í öllum verslunum um allt land. Þetta endurspeglast m.a. í vöruframboði Bónus, sem hefur í auknum mæli boðið upp á hagkvæmari sölueiningar, ódýrar staðkvæmdarvörur og þannig haldið áfram að leiða baráttuna fyrir lægra vöruverði. Undir lok árs hafði Bónus tekist að lækka útsöluverð á yfir 500 vörunúmerum í verslunum miðað við árið á undan, sem er í samræmi við loforð félagsins gagnvart viðskiptavinum og sérlega ánægjulegt í ljósi þess að verðbólga í mat og drykk hefur verið viðvarandi há.
Áfram var unnið að því að bæta þjónustu við viðskiptavini, m.a. með auknu vöruúrvali í mikilvægum vöruflokkum, rýmri opnunartíma og bættri upplifun í verslunarferðum. Sérstök áhersla var lögð á þarfir barnafjölskyldna, með þægindum á borð við barnakerrur, hollt góðgæti og fjölbreytt vöruúrval sem hentar yngri viðskiptavinum. Þá hefur meira úrval og nýjar áherslur í framsetningu og meðhöndlun ávaxta og grænmetis leitt til betri gæða og ferskleika, sem hefur skilað sér í aukinni sölu í þessum mikilvæga vöruflokki. Sjálfsafgreiðslulausnin Gripið & Greitt er nú í boði í 12 verslunum og heldur áfram að auðvelda innkaup og spara viðskiptavinum tíma.
Þessar og aðrar umbætur í rekstri Bónus miða að því að bæta þjónustu og auka virði fyrir viðskiptavini um leið og áfram er gætt að ströngu kostnaðaraðhaldi, sem hefur verið og verður áfram forsenda þess að Bónus býður hagkvæmasta kostinn í matvöruverslun á landsvísu.
Stígandi var í rekstri Hagkaups á árinu þar sem áframhaldandi breikkun á vöru- og þjónustuframboði, bæði í verslunum og netverslun, hefur mælst vel fyrir. Sem dæmi um nýjungar geta viðskiptavinir nú sótt vegabréf og skilríki í Hagkaup, en nýjungar í vöruframboði á borð við skyrbarinn Skálina og bangsaverksmiðjuna Build-A-Bear hafa einnig gefið verslununum nýjan blæ. Netverslun Hagkaups styrktist á árinu og staðfestir mikil aukning í netsölu á snyrtivörum, leikföngum og veisluréttum að viðskiptavinir sækja æ meira í úrval, þægindi og einfaldleika. Stöðugar nýjungar og góður árangur í rekstri endurspegla getu Hagkaups, nú í meira en 65 ár, í að laga sig ávallt að breyttu verslunarmynstri og þörfum neytenda.

Á haustmánuðum opnaði ný netverslun með áfengi, Veigar.eu, sem rekin er af Hagar Wine, hollensku dótturfélagi Haga. Hagkaup er einn þeirra aðila sem sinna þjónustuhlutverki fyrir Veigar, en með Veigum geta viðskiptavinir verslað áfengi og aðrar nauðsynjar til heimilisins í einu stoppi, en afhending fer m.a. fram í verslunum Hagkaups og Olís um allt land. Þjónusta Veiga hefur mælst vel fyrir og er liður í því hvernig Hagar bregðast við breyttri neysluhegðun og þörfum viðskiptavina sem sækjast almennt eftir meira úrvali, auknum þægindum og einfaldleika.
Þó að tekjur Olís hafi dregist lítillega saman þá var afkoma yfir væntingum og skilaði félagið einni bestu rekstrarniðurstöðu sinni til þessa. Góða afkomu má meðal annars rekja til hagstæðrar þróunar á heimsmarkaðsverði eldsneytis, skilvirkrar birgðastýringar og áframhaldandi hagræðingaraðgerða sem hafa skilað varanlegum rekstrarbata. Þá er ljóst að viðskiptavinir hafa tekið vel í bætta ásýnd stöðva og aukið þjónustuframboð, m.a. í formi sjálfsafgreiðslu, afhendingu pakkasendinga, heimsendingar á veitingum, og raforku- og þvottalausna fyrir bifreiðar. Nýju Olís/ÓB appi var hleypt af stokkunum á árinu, en það er jafnframt stafrænn dælulykill sem auðveldar viðskiptavinum lífið og veitir m.a. aðgang að viðskiptasögu og áhugaverðum tilboðum. Við höfum lagt metnað í að styrkja Olís enn frekar sem fjölbreyttan og nútímalegan þjónustuaðila, en undirtektir viðskiptavina og sterkur rekstur staðfesta að okkur miðar vel á þeirri vegferð.
Undir lok apríl sl. var ákveðið að stöðva söluferli á Olíudreifingu (ODR), en tilboð í félagið endurspegluðu ekki hugmyndir eigenda um verðmæti félagsins. Rekstur ODR hefur gengið vel og er það mat stjórnenda að markaðsaðstæður hafi heldur batnað á síðustu misserum. Spár gera ráð fyrir að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti verði áfram sterk auk þess sem framundan liggja augljós tækifæri í orkuskiptum og þjónustu með nýja orkugjafa. ODR býr að sterkum innviðum og reynslumiklum hópi starfsfólks og er þannig í ákjósanlegri stöðu til að nýta tækifærin framundan og treysta enn frekar það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir þegar kemur að orkuinnviðum landsins, nú og til framtíðar. Sem eigendur og viðskiptavinir munu Hagar og Olís styðja ODR í þessari vegferð.
Matarpakkar frá Eldum rétt hafa fyrir löngu sannað sig sem fljótleg og einföld lausn fyrir þá sem leggja áherslu á bragðgæði, hollustu og notalegar fjölskyldustundir. Félagið, sem hélt upp á 10 ára afmæli sitt á rekstrarárinu, hefur aukið skilvirkni í allri framleiðslu með fjárfestingu í vélvæðingu og sjálfvirkni. Þá hefur lausnaframboð verið þróað enn frekar, með Einstökum réttum í samstarfi við Hagkaup og Einföldum réttum í samstarfi við Bónus. Að auki stendur viðskiptavinum nú til boða að kaupa viðbótarvörur til eldhússins í netverslun, en vörurnar berast með heimsendingu og spara bæði tíma og verslunarleiðangra. Rekstur Eldum rétt gekk vel á árinu.

Aðföng og Bananar gegna lykilhlutverki í hagkvæmum rekstri verslana Haga og hafa innviðir beggja félaga verið styrktir verulega undanfarin misseri. Lokið var við tæplega 3.000 m2 stækkun vöruhúss Aðfanga í Skútuvogi sem hefur þegar skilað sér í skilvirkari tiltekt og afgreiðslu pantana. Ný vöruhúsakerfi hafa verið tekin í notkun samhliða umbótum í gæðaferlum, en einnig hefur góður árangur náðst í vöruþróun hjá Banönum. Starfsemi beggja félaga gekk vel á árinu. Hvað aðrar af helstu einingum Haga varðar, þá er Stórkaup áfram í vaxtarfasa á spennandi markaði og Zara var sem fyrr vinsæll áfangastaður fyrir fatakaup landsmanna, sérstaklega fyrir hátíðirnar.
Á árinu fylgdum við eftir metnaðarfullri stefnu félagsins sem miðar bæði að því að efla kjarnastarfsemi sem og að byggja upp nýjar tekjustoðir. Í þessari vinnu horfum við ákveðið til tækifæra til að nýta sterka stöðu Haga og stóran hóp traustra viðskiptavina til að skapa nýjar þjónustur og auka þannig virði fyrir viðskiptavini og hluthafa. Þess má vænta að viðskiptavinir njóti góðs af þessari vinnu á næstu mánuðum.
Stærsta einstaka skrefið í samræmi við uppfærða stefnu voru kaup Haga á færeyska verslunarfélaginu SMS, sem er leiðandi smásölufyrirtæki í Færeyjum. SMS hefur um áratuga skeið staðið fyrir umfangsmikilli starfsemi í Færeyjum, m.a. rekstri 13 matvöruverslana, veitingastaða, kjötvinnslu, verksmiðjubakarís, líkamsræktarstöðva og verslunarmiðstöðvar. Með kaupunum rennum við nýrri stoð undir rekstur Haga og styrkjum dagvöruverslun á vegum félagsins, en einnig á öðrum sviðum. Sérstaklega verður horft til tækifæra sem felast í að bæta vöruframboð í verslunum, kostnaðarsamlegð og fjármögnun, en rekstur kjarnastarfsemi í tveimur löndum þar sem markaðsaðstæður og regluverk eru ólík, gefur okkur tækifæri til að færa þekkingu á milli og bæta rekstur í báðum löndum. Að auki fæst innsýn í gangverk markaða, áhrif regluverks og tolla, sem við munum óhikað draga athygli að. SMS var hluti af Högum á síðustu þremur mánuðum rekstrarársins og gekk reksturinn vel. Við hlökkum til samstarfs með nýjum kollegum okkar í Færeyjum.

Fasteignir og tengd verkefni verð æ fyrirferðameiri í starfsemi Haga, en við kaupin á SMS stækkaði fasteignasafn félagsins um rúmlega 11.000 m2 og nam við lok árs ríflega 60.000 m2. Í ljósi aukins vægis fasteigna í rekstri og afkomu Haga hefur reikningsskilaaðferð verið breytt til að endurspegla betur fjárhags- og eignastöðu félagsins. Fjárfestingarfasteignir verða hér eftir færðar á gangvirði í stað afskrifaðs kostnaðarverðs, sem hefur í för með sér endurmatsáhrif á eigið fé og rekstur.
Sú ákvörðun að beina verkefnum sem tengjast þróun og uppbyggingu fasteigna til Klasa fasteignaþróunarfélags hefur gefist vel. Þar horfum við annars vegar til ágætrar afkomu Klasa á síðustu árum, og hins vegar til þess að stjórnendur Haga geta einbeitt sér frekar að kjarnastarfsemi félagsins. Þróunarverkefni á vegum Klasa telja byggingarmagn upp á ríflega 300.000 m2 og var góður framgangur bæði í framkvæmdum og þróun á eftirsóknarverðum byggingarreitum á árinu. Við gerum ráð fyrir að svo verði áfram og að þriðjungs eignarhlutur Haga í Klasa muni hafa jákvæð áhrif á afkomu á næstu árum.
Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð eru á meðal forgangsmála í rekstri Haga og hafa á síðustu árum fengið umtalsvert aukið vægi í starfsemi félagsins og allri upplýsingagjöf. Samkvæmt Sjálfbærnivísi PwC 2024 voru Hagar á meðal þeirra átta íslensku fyrirtækja, og eina félagið á dagvörumarkaði, sem þóttu skara fram úr í upplýsingagjöf og árangri í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta er mikilvæg viðurkenning sem staðfestir að við séum á réttri leið og hvetur okkur til frekari framfara.
Á árinu var ráðist í fjölbreyttar aðgerðir sem miða að því að minnka umhverfisáhrif, auka vellíðan starfsfólks og bæta hag neytenda. Mæld heildarlosun, að meðtalinni virðiskeðjulosun, heldur áfram að dragast saman og hefur hún nú lækkað um 7% frá árinu 2022. Þar hafði mikil áhrif að söluhlutfall umhverfisvænni orkugjafa af öllu seldu eldsneyti jókst úr 2,7% í 5,1% á milli ára. Flokkunarhlutfall úrgangs hækkaði úr 74% í 76%, og hlutfall endurheimts úrgangs jókst verulega, þ.e. úr 76% í 94%.
Áherslur Haga og dótturfélaga í starfsmannamálum hefur jafnframt skilað góðum árangri, en sérstök áhersla hefur verið lögð á leiðtogaþjálfun, aukin starfsmannasamtöl og bætt starfsumhverfi. Starfsmannavelta minnkaði töluvert á milli ára og mæld starfsánægja fer áfram vaxandi.
Þá var unnið að undirbúningi stórra samfélagslegra verkefna sem koma til framkvæmda á yfirstandandi rekstrarári. Þar má meðal annars nefna Barnabónus, sem miðar að því að styðja við barnafjölskyldur og létta undir með nýbökuðum foreldrum, og samstarf við Latabæ þar sem markmiðið er að stuðla að aukinni neyslu ungmenna á ávöxtum og grænmeti.
Nánari upplýsingar um helstu aðgerðir og árangur Haga á sviði sjálfbærni má finna í sérstökum sjálfbærnikafla árskýrslunnar.

Á undanförnum misserum hafa Hagar sérstaklega beitt sér gegn hækkunum á aðföngum til dagvöruverslunar og gætt bæði aðhalds í rekstri og hófs í álagningu. Þannig hefur félagið lagt sitt af mörkun til að styðja við lækkun verðbólgu. Í þessari vinnu höfum við yfirleitt getað treyst á gott samstarf við innlenda birgja, heildsala og framleiðendur, um að gæta hófs í verðhækkunum. Ef horft er til þróunar verðbólgu að undanförnu er ljóst að betur má ef duga skal. Hagar munu þar ekki draga af sér, en full ástæða er til þess að hvetja stjórnvöld til dáða með stuðningi við stöðugleika og jafnvel lækkandi verðlags á dagvöru með ábyrgum opinberum rekstri og ákvörðunum í skattlagningu og tollamálum.
Við hjá Högum erum stolt af rekstri og framþróun samstæðu Haga á síðasta ári. Þar horfum við sérstaklega til kaupa á SMS í Færeyjum, en kaupin eru í samræmi við breyttar stefnuáherslur sem kynntar voru í byrjun rekstrarársins. Við erum einnig ánægð með góða rekstrarniðurstöðu í ögrandi starfsumhverfi, sterkt sjóðstreymi, aukinn hagnað og arðsemi eiginfjár sem er yfir markmiðum stjórnar. Uppsafnaður 12 mánaða hagnaður á hlut stóð við lok árs í 6,47 kr., en til samanburðar var hann 4,59 kr. á sama tíma í fyrra og 2,15 kr. fyrir fjórum árum síðan. Þessu tengt þá finnum við fyrir auknum áhuga fjárfesta á félaginu, en verð hlutabréfa, leiðrétt fyrir arðgreiðslu, hækkaði um 37% á rekstrarárinu.
Staða Haga er í dag traust enda samanstendur samstæðan af fjölbreyttum rekstrareiningum sem skila góðri afkomu og búa að fjölmörgum vaxtatækifærum. Fjárhagur er sterkur og við höfum burði, reynslu og metnað til að fylgja eftir nýjum stefnuáherslum í þágu viðskiptavina, starfsfólks og hluthafa félagsins.
Í samræmi við markaða stefnu stjórnar um að skila verðmætum til hluthafa liggur fyrir aðalfundi tillaga um að 50% af hagnaði rekstrarársins, án áhrifa hlutdeildarfélaga og matsbreytinga, verði greiddur út sem arður, þ.e. 2,3 kr. á hlut. Einnig er gert ráð fyrir að heimild til kaupa á eigin bréfum verði nýtt í endurkaupaáætlanir á núlíðandi rekstrarári.
Sterk staða Haga og dótturfélaga byggir á ötulu starfi rúmlega 3.200 starfsmanna sem sinna störfum sínum af alúð og fagmennsku, bæði á Íslandi og í Færeyjum. Þessi samhenti hópur leggur sig fram á hverjum degi við að veita kröfuhörðum viðskiptavinum góða þjónustu og jákvæða verslunarupplifun. Við viljum þakka okkar frábæra starfsfólki fyrir ómetanlegt framlag, samstarfsaðilum og hluthöfum fyrir traust og gott samstarf og ekki síst viðskiptavinum okkar fyrir tryggðina sem þeir sýna með endurteknum viðskiptum.