Fara á efnissvæði

Hér á eftir má sjá þróun rekstrar- og efnahagsstærða samstæðu Haga síðastliðin fimm ár. 

SALA OG FRAMLEGÐ

REKSTRARKOSTNAÐUR

AFKOMA

HAGNAÐUR Á HLUT

EIGNIR

EIGIÐ FÉ

SKULDSETNING

Árið sem leið Ársreikningur

Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2024/25 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. apríl 2025. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Í aðdraganda ársuppgjörs var tekin ákvörðun um breytta reikningsskilaaðferð vegna fjárfestingarfasteigna félagsins, en þær eru nú metnar til gangvirðis en voru áður færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Vegna þessa hefur samanburðarfjárhæðum í efnahag fyrra árs verið breytt.

REKSTRARREIKNINGUR

Fjárhæðir í millj. kr. 2024/25 2023/24 Breyting %
Vörusala 180.342 173.270 7.072 4,1%
Kostnaðarverð seldra vara -139.238 -137.281 -1.957 1,4%
Framlegð 41.104 35.989 5.115 14,2%
Aðrar rekstrartekjur 936 682 254 37,2%
Laun og launatengd gjöld -18.451 -16.229 -2.222 13,7%
Annar rekstrarkostnaður -8.851 -7.379 -1.472 19,9%
EBITDA 14.738 13.063 1.675 12,8%
Afskriftir -5.351 -5.028 -323 6,4%
Matsbreyting fjárfestingarfasteigna 1.042 0 1.042 -
Rekstrarhagnaður 10.429 8.035 2.394 29,8%
Hrein fjármagnsgjöld -2.988 -2.621 -367 14,0%
Áhrif hlutdeildarfélaga 981 697 284 40,7%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 8.422 6.111 2.311 37,8%
Tekjuskattur -1.392 -1.067 -325 30,5%
Hagnaður ársins 7.030 5.044 1.986 39,4%
Önnur heildarafkoma samtals 3.669 0 3.669 -
Heildarafkoma samtals 10.699 5.044 5.655 112,1%

 

Vörusala ársins nam 180.342 m.kr., samanborið við 173.270 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 4,1%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 4,8% en samdráttur var í sölu hjá Olís um 4,4% en áhrif lækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu á árinu hafði mikil áhrif á sölu í krónum talið.

Framlegð ársins var 41.104 m.kr., samanborið við 35.989 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 14,2%. Framlegðarhlutfall nam 22,8% og hækkaði um 2,0%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls liggur bæði í eldsneytis og dagvöruhluta samstæðunnar, með áhrifum af SMS á 4. ársfjórðungi.

EBITDA nam 14.738 m.kr., samanborið við 13.063 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 8,2%, samanborið við 7,5% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa jókst um 5,2% milli ára og EBITDA Olís jókst um 20,7%.

Afskriftir hækkuðu um 6,4% milli ára og fjármagnskostnaður hækkaði um 14,0%. Áhrif hlutdeildarfélaga jukust um 40,7% milli ára, að mestu vegna sterkari afkomu hjá Klasa.

Hagnaður ársins nam 7.030 m.kr., sem jafngildir 3,9% af veltu (3,3% án matsbreytinga) en hagnaður á fyrra ári var 5.044 m.kr. eða 2,9% af veltu. Hagnaður jókst um 39,4% milli ára (18,7% án matsbreytinga).

Heildarafkoma var 10.699 m.kr. en þar af nam endurmat fasteigna, sem fært er beint á eigið fé, 3.677 m.kr., og þýðingarmunur var neikvæður um 8 m.kr.

STARFSÞÁTTAYFIRLIT

EBITDA ÁRSFJÓRÐUNGA

EFNAHAGSREIKNINGUR

Fjárhæðir í millj. kr. 28.02.25 29.02.24* Breyting %
Eignir        
Fastafjármunir 81.876 57.042 24.834 43,5%
Veltufjármunir 23.160 21.129 2.031 9,6%
Eignir samtals 105.036 78.171 26.865 34,4%
         
Eigið fé        
Hlutafé 1.098 1.084 14 1,3%
Annað eigið fé 37.423 27.870 9.553 34,3%
Eigið fé hluthafa móðurfélags 38.521 28.954 9.567 33,0%
Hlutdeild minnihluta -32 - -32 -
Eigið fé samtals 38.489 28.954 9.535 32,9%
Skuldir        
Langtímaskuldir 36.967 23.330 13.637 58,5%
Skammtímaskuldir 29.581 25.887 3.694 14,3%
Skuldir samtals 66.548 49.217 17.331 35,2%
Eigið fé og skuldir samtals 105.036 78.171 26.865 34,4%

*Samanburðarfjárhæðum hefur verið breytt vegna nýrrar reikningsskilaaðferðar. Fastafjármunir hækka um 957 m.kr. og eru heildareignir fyrra árs nú 78.171 m.kr. í stað 77.214 m.kr. Eigið fé hækkar um 766 m.kr. og er eiginfjárhlutfall 37,0% í stað 36,5% áður. Tekjuskattsskuldbinding hækkar um 191 m.kr.

Heildareignir samstæðunnar í lok rekstrarárs námu 105.036 m.kr. og hækkuðu um 26.865 m.kr. frá árslokum 2023/24. Áhrif vegna SMS námu 17.531 m.kr. og áhrif vegna endurmats fjárfestingarfasteigna á Íslandi nam 4.716 m.kr.

Fastafjármunir námu 81.876 m.kr. og hækkuðu um 24.834 m.kr., þar af 15.255 m.kr. vegna SMS.

Heildaráhrif af breyttum reikningsskilaaðferðum á efnahagsreikning samstæðunnar, sem fram koma í fastafjármunum í efnahagsreikningi nú og á samanburðarári, nema 6.595 m.kr.

  • Fjárfestingarfasteignir Haga telja um 40.000 m2 af alls rúmlega 60.000 m2 fasteignasafni samstæðunnar. Breytt reikningsskilaaðferð hefur því áhrif á um 2/3 af fasteignasafni Haga en þar af eru um 11.000 m2 í leigu utan samstæðu Haga.
  • Stærsti hluti endurmats er vegna fasteigna á Íslandi, eða 5.673 m.kr., þar sem 4.716 m.kr. hafa áhrif á efnahagsreikning 2024/25 en 957 m.kr. eru færðar á samanburðarári. Hluti endurmats er vegna fasteigna í rekstrarleigu hjá SMS í Færeyjum eða 922 m.kr.
  • Breyting á samanburðarári er vegna fasteigna sem eru í útleigu utan samstæðu Haga og er færð í gegnum eigið fé 2023/24.
  • Heildaráhrif endurmats á rekstrarreikning samstæðunnar 2024/25 nema 1.042 m.kr., þar sem 120 m.kr. eru vegna fasteigna í útleigu utan samstæðu Haga á Íslandi og 922 m.kr. eru vegna einskiptisáhrifa hjá SMS í Færeyjum.

Veltufjármunir námu 23.160 m.kr. og hækkuðu um 2.031 m.kr. frá fyrra ári, að mestu vegna SMS.

Veltuhraði birgða í lok árs var 10,3 til samanburðar við 10,6 á fyrra ári og innheimtutími viðskiptakrafna var 10,2 dagar, óbreytt frá fyrra ári. Veltufjárhlutfall nam 0,78 í lok árs, í samanburði við 0,82 í fyrra.

Eigið fé í lok árs nam 38.489 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 36,6%. Eiginfjárhlutfall fyrra árs nam 37,0%. Arðsemi eigin fjár var 24,3% til samanburðar við 18,1% í fyrra. Félagið átti eigin bréf að nafnverði 8,1 milljón í lok árs.

Heildarskuldir samstæðunnar í lok árs námu 66.548 m.kr. og hækkuðu um 17.331 m.kr. frá lokum síðasta árs en þar af námu áhrif af SMS 12.179 m.kr.

Vaxtaberandi skuldir námu 23.415 m.kr. og leiguskuldir 19.577 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok árs voru 40.693 eða 2,8 x EBITDA ársins.

Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 6.278 m.kr. en þar af námu víxilskuldir 1.440 m.kr. og skammtímafjármögnun í dönskum krónum vegna kaupa félagsins á SMS nam 3.907 m.kr.

FJÁRFESTINGAR ÁRSINS

SJÓÐSTREYMISYFIRLIT

Fjárhæðir í millj. kr. 2024/25 2023/24 Breyting %
Handbært fé frá rekstri 11.108 8.690 2.418 27,8%
Fjárfestingarhreyfingar -8.671 -4.825 -3.846 79,7%
Fjármögnunarhreyfingar -1.964 -4.907 2.943 -60,0%
Hækkun á handbæru fé 473 1.042 1.515 -145,4%
Áhrif gengisbreytinga -1 - -1 -
Handbært fé í ársbyrjun 1.827 2.869 -1.042 -36,3%
Handbært fé í árslok 2.299 1.827 472 25,8%

Handbært fé frá rekstri nam 11.108 m.kr. á rekstrarárinu, samanborið við 8.690 m.kr. á fyrra ári.

Fjárfestingarhreyfingar ársins námu 8.671 m.kr., samanborið við 4.825 m.kr. á fyrra ári. Stærsti liður ársins var fjárfesting í dótturfélagi, SMS í Færeyjum, að fjárhæð 4.741 m.kr. Fjárfesting í rekstrarfjármunum og fasteignum nam 3.310 m.kr. og fjárfesting í óefnislegum eignum nam 823 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar ársins voru 1.964 m.kr., samanborið við 4.907 m.kr. á fyrra ári. Ekki voru keypt eigin bréf á árinu en á fyrra ári námu endurkaup 2.333 m.kr. Arðgreiðsla var greidd í júní 2024 og nam hún 2.522 m.kr. til samanburðar við arðgreiðslu á fyrra ári sem nam 2.475 m.kr.

Handbært fé í lok rekstrarárs nam 2.299 m.kr., samanborið við 1.827 m.kr. í lok fyrra árs.

Árið sem leið Staðan og framtíðarhorfur

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið sem nú er liðið gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) yrði á bilinu 14.000-14.500 m.kr. en afkomuspáin var hækkuð í lok þriðja ársfjórðungs samhliða tilkynningu um kaup Haga á SMS í Færeyjum. Rekstur ársins gekk heilt yfir vel, þá einkum vegna sterkari afkomu en upphaflega var gert ráð fyrir hjá starfsþætti Olís, þar sem hagfelldar hreyfingar á heimsmarkaðsverði olíu studdu við afkomu. Vörusala samstæðunnar jókst um 4,1% á árinu en framlegð í krónum talið jókst um 14,2%. Rekstrarkostnaður hækkaði um 15,6% milli ára en EBITDA hækkaði um 12,8% frá fyrra ári. SMS varð hluti af samstæðu Haga frá upphafi 4. ársfjórðungs og gætir áhrifa þess í samanburði við afkomu fyrra árs.

Félagið hefur breytt um reikningsskilaaðferð þannig að fjárfestingarfasteignir eru nú færðar á gangvirði en voru áður færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Matsbreyting fjárfestingarfasteigna sem eru í útleigu innan samstæðu er bakfærð í rekstri og færð á endurmatsreikning meðal eigin fjár í samstæðuársreikningi. Það er mat stjórnenda félagsins að endurmetið verð þessara fasteigna gefi gleggri mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar í árslok 28.2.2025 en afskrifað kostnaðarverð hefði gert. Samanburðarfjárhæðum í efnahagsreikningi 29.2.2024 hefur verið breytt til samræmis.

Þann 27. nóvember 2024 undirrituðu Hagar og þáverandi eigendur P/F SMS í Færeyjum kaupsamning vegna kaupa Haga á öllu hlutafé í SMS. Yfirtökudagur var mánudagurinn 2. desember 2024 og varð SMS því hluti af samstæðuuppgjöri Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2024/25. Samanburðarfjárhæðum í ársreikningi hefur ekki verið breytt og innifela þær því ekki áhrif af hinu nýja félagi. Kaupverð (e. enterprise value) í viðskiptunum nam tæplega 467 mDKK og virði hlutafjár (e. equity value) tæplega 327 mDKK. Kaupverð byggði m.a. á rekstri og áætlunum samstæðu SMS fyrir rekstrarárið 2024, en tekjur fyrir árið voru áætlaðar um 730 mDKK og EBITDA um 63 mDKK. Kaupverð byggði einnig á mati á fasteignasafni SMS. Vert er að benda á að ekki er tekið tillit til áhrifa leigustaðals IFRS 16 í þessum afkomutölum SMS. Hagar greiddu kaupverð með reiðufé að upphæð um 267 mDKK og afhendingu 13.867.495 hluta eigin bréfa að virði 60 mDKK í viðskiptunum. Hagar fjármögnuðu hluta kaupverðs með nýju 200 mDKK láni til 12 mánaða en unnið verður að langtímafjármögnun á næstu misserum. Heildarkostnaður vegna kaupanna nam 142 m.kr. og var gjaldfærður á 4. ársfjórðungi 2024/25.

SMS er leiðandi verslunarfélag í Færeyjum og rekur m.a. átta Bónus lágvöruverðsverslanir víða í Færeyjum, fjórar smærri dagvöruverslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina Miklagarður í Þórshöfn. SMS er einnig umsvifamikið í annarri starfsemi, m.a. rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja, fjölda veitingastaða, smávöruverslana, brauð- og kökugerðar, kjötvinnslu og líkamsræktarstöðva. Að auki á félagið fjölbreytt fasteignasafn sem telur um 11.000 m2 sem er að mestu nýtt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila. Markmið kaupanna er að renna frekari stoðum undir og styrkja rekstur Haga á sviði dagvöruverslana og auka skilvirkni rekstrar og vöruúrval SMS í Færeyjum.

Þann 26. september 2024 var tilkynnt um að Olís, dótturfélag Haga, hafi ásamt meðeigendum sínum komist að samkomulagi um að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu. Óskuldbindandi tilboð bárust í félagið og var þremur aðilum boðið að halda áfram í söluferlinu. Við lok rekstrarárs lá ekki fyrir hvort söluferlið myndi leiða til skuldbindandi tilboða sem gæti lokið með sölu á félaginu en nú, við birtingu ársskýrslu, hefur verið tilkynnt að söluferlinu hafi verið hætt. 

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2025/26 sem nú var að hefjast gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 16.000-16.500 m.kr. Forsendur afkomuspár gera ráð fyrir 4,0% hækkun verðlags á ársgrundvelli og áhrif kjarasamninga nema um 5,0% hækkun launa milli ára. Gert var ráð fyrir litlum áhrifum af breytingu gengis helstu innkaupamynta. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar ársins (e. CAPEX) verði sambærilegar og á síðustu árum, ef frá eru talin möguleg áhrif vegna Álfabakka 2 en vegna þeirrar óvissu sem ríkir um verkefnið verður fjárfestingaráætlun 2025/26 ekki birt að sinni.

Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 milljónir er tryggður en einnig hefur félagið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi víxlaútgáfu. Útgáfa víxlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið nýti sér áfram markaðsfjármögnun á næstu misserum.

Árið sem leið Hagar í Kauphöll

HLUTABRÉFIN

Viðskipti með hlutabréf Haga á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hófust þann 16. desember 2011. Útgefið hlutafé í Högum nam 1.106.428.863 krónum í árslok 2024/25 og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Í lok árs námu eigin hlutir 8,1 milljónum króna að nafnverði. Auðkenni félagsins er HAGA. 

Í lok rekstrarársins, þann 28. febrúar 2025, stóð gengi hlutabréfa í Högum í 102,0 kr. á hlut, samanborið við 76,0 kr. á hlut í lok febrúar 2024 og hækkuðu bréf félagsins því um 34,2% á síðastliðnu rekstrarári. Verð í lok skráningardags þann 16. desember 2011 var 15,95 kr. á hlut.

ÞRÓUN HLUTABRÉFAVERÐS

HLUTHAFAR

Samkvæmt hlutaskrá félagsins voru hluthafar 968 talsins í byrjun rekstrarársins og 923 í lok þess. Stærsti einstaki hluthafinn er Gildi – lífeyrissjóður með 17,5% hlut. Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins eiga óbeint 13,3% í félaginu en þeir samanstanda af A-, B- og S-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. 20 stærstu hluthafar félagsins eiga samtals 87,1% hlut en sömu hluthafar áttu samtals 88,1% hlut í lok síðasta árs. 20 stærstu hluthafarnir í lok rekstrarársins 2023/24 áttu þá 87,6% hlut.

 

  Hluthafi Fjöldi hluta 28.02.25 % af heild Fjöldi hluta 29.02.24 % af heild
1 Gildi - lífeyrissjóður 193.328.219 17,47% 205.075.222 18,53%
2 Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild 126.147.598 11,40% 124.004.098 11,21%
3 Lífeyrissjóður verzlunarmanna 120.842.728 10,92% 112.742.728 10,19%
4 Brú lífeyrissjóður starfsm. sveitarfél. 106.392.819 9,62% 97.322.819

8,80%

5 Kaldbakur ehf. 90.000.000 8,13% 86.000.000 7,77%
6 Birta lífeyrissjóður 74.556.065 6,74% 85.397.749 7,72%
7 Festa - lífeyrissjóður 47.149.169 4,26% 50.249.169 4,54%
8 Stapi lífeyrissjóður 38.710.046 3,50% 31.350.046 2,83%
9 Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 31.356.665 2,83% 32.856.665 2,97%
10 Brú R deild 23.738.306 2,15% 22.738.306 2,06%
11 Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild 21.494.633 1,94% 23.588.133 2,13%
12 Almenni lífeyrissjóðurinn 15.203.671 1,37% 10.453.671 0,94%
13 Vanguard Total International S 14.385.456 1,30% 13.831.173 1,25%
14 Vanguard Emerging Markets Stock 14.044.532 1,27% 14.708.565 1,33%
15 Sp/F NM Holding 9.177.019 0,83% 0 0,00%
16 Hagar hf. 8.134.072 0,74% 22.119.617 2,00%
17 Lífsverk lífeyrissjóður 7.528.431 0,68% 7.528.431 0,68%
18 Frjálsi lífeyrissjóðurinn 7.501.916 0,68% 10.888.807 0,98%
19 Vanguard Fiduciary Trust Company 7.416.517 0,67% 6.446.625 0,58%
20 Legal and General ICAV 6.296.976 0,57% 6.177.006 0,56%
  20 stærstu hluthafar 963.404.838 87,07%

963.478.830

87,08%
  Aðrir hluthafar 143.024.025 12,93% 142.950.033 12,92%
  Skráð hlutafé 1.106.428.863 100,00% 1.106.428.863 100,00%
  Hagar - eigin bréf 8.134.072 0,74% 22.119.617 2,00%
  Útistandandi hlutir 1.098.294.791 99,26% 1.084.309.246 98,00%

 

Eins og áður segir voru hluthafar í árslok 923 talsins en þeim má skipta í nokkra flokka. 684 einstaklingar eiga hlut í félaginu, með samtals um 2,3% af heildarhlutafé, en á sama tíma á fyrra ári voru 725 einstaklingar hluthafar í félaginu með 2,7%. 30 lífeyrissjóðir eiga 75,2% hlut í félaginu en á fyrra ári áttu 30 lífeyrissjóðir 75,6% hlut í því. Aðrir fjárfestar eru 158 talsins og eiga 14,1% hlut. Á fyrra ári voru aðrir fjárfestar 172 talsins með 13,4% hlut. Þá eru 50 erlendir fjárfestar í félaginu og eiga þeir 7,7% hlut til samanburðar við 6,3% á fyrra ári.

Flokkur Fjöldi hluta % af heild Fjöldi hluthafa % af heild
Lífeyrissjóðir 832.029.706 75,2% 30 3,3%
Aðrir fjárfestar 155.923.805 14,1% 158 17,1%
Erlendir fjárfestar 85.441.616 7,7% 50 5,4%
Einstaklingar 24.899.664 2,3% 684 74,1%
Eigin bréf 8.134.072 0,7% 1 0,1%
Hlutafé samtals 1.106.428.863 100,0% 923 100,0%

 

Í næstu töflu hér á eftir má sjá dreifingu hlutafjáreignar í félaginu í árslok. Flestir hluthafar, 434 talsins, eiga 1-9.999 hluti og samtals 0,1% hlutafjár. Fjórir hluthafar eiga hver um sig yfir 100.000.000 hluti í félaginu.

Fjöldi hluta Fjöldi hluthafa % af heild Fjöldi hluta % af heild
1-9.999 434 47,0% 1.273.346 0,1%
10.000-99.999 308 33,4% 11.142.905 1,0%
100.000-499.999 97 10,5% 20.674.088 1,9%
500.000-999.999 30 3,3% 20.699.052 1,9%
1.000.000-4.999.999 32 3,5% 78.336.432 7,1%
5.000.000-9.999.999 7 0,8% 48.819.061 4,4%
10.000.000-99.999.999 10 1,1% 370.638.543 33,5%
> 100.000.000 4 0,4% 546.711.364 49,4%
Samtals útistandandi 922 99,9% 1.098.294.791 99,3%
Eigin bréf 1 0,1% 8.134.072 0,7%
Samtals 923 100,0% 1.106.428.863 100,0%

 

ENDURKAUPAÁÆTLANIR

Á aðalfundi Haga sem haldinn var þann 30. maí 2024 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Á rekstrarárinu 2024/25 voru engin eigin bréf keypt. 

AÐALFUNDUR

Aðalfundur Haga hf. árið 2025 verður haldinn þann 27. maí og hefst hann kl. 15:00. Fundurinn verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík. Dagskrá fundarins og tillögur stjórnar hafa þegar verið auglýstar en niðurstöður fundarins verða birtar í Kauphöll og á vefsíðu félagsins strax að honum loknum.

ARÐGREIÐSLA OG ARÐGREIÐSLUSTEFNA

Stjórn Haga hefur mótað arðgreiðslustefnu félagsins en hana má sjá í heild sinni hér.

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins þann 27. maí 2025 að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2024/25 sem nemi 50,0% hagnaðar ársins, án áhrifa matsbreytinga og hlutdeildarfélaga, eða samtals 2.504 milljónir króna. Arðgreiðslan nemur því 2,28 kr. á hlut útistandandi hlutafjár.

Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 30. maí 2025, þ.e. réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok þess viðskiptadags. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2024/25 verður því 28. maí 2025, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðs verður 5. júní 2025.

FJÁRHAGSDAGATAL

Birting árs- og árshlutauppgjöra á sér stað eftir lokun markaða hverju sinni. Kynningarfundir eru alla jafna haldnir kl. 08:30 daginn eftir birtingu árs- og hálfsársuppgjörs en kynningarfundir eftir 1. og 3. ársfjórðung eru reglulega haldnir eftir lokun markaða á birtingardegi. Tilkynnt er tímanlega um fyrirkomulag og staðsetningu fundar hverju sinni.

Eftirfarandi fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 hefur verið samþykkt af stjórn félagsins:

Rekstrarárið 2025/26 Vikudagur Birtingardagur
1. ársfj. Fimmtudagur 26. júní 2025
2. ársfj. Fimmtudagur 16. október 2025
3. ársfj. Miðvikudagur 14. janúar 2026
4. ársfj. Þriðjudagur 21. apríl 2026
Aðalfundur 2026 Fimmtudagur 21. maí 2026

Árið sem leið Fréttir úr starfseminni

KAUP Á ÖLLU HLUTAFÉ SMS Í FÆREYJUM

Í lok nóvember 2024 var endanlegur kaupsamningur um kaup Haga á öllu hlutafé SMS í Færeyjum undirritaður, en þá höfðu öll skilyrði vegna kaupanna verið uppfyllt. Markmið kaupanna er meðal annars að renna frekari stoðum undir og styrkja rekstur Haga á sviði dagvöruverslunar og auka skilvirkni rekstrar og vöruúrvals SMS í Færeyjum. Kaupin eru í samræmi við markmið Haga og stefnu sem kynnt var á árinu um að horfa til nýrra tækifæra til að efla starfsemi félagsins enn frekar, bæði tengt kjarnastarfsemi og nýjum tekjustraumum eða stoðum í rekstri. Með kaupunum á SMS munu Hagar auka umsvif í dagvöruverslun en um leið myndast tækifæri til að efla þjónustu beggja félaga og ná fram auknu hagræði í rekstri, þar sem horft er meðal annars til tækifæra í vöruframboði dagvöruverslana, kostnaðarsamlegð, hagræðingu og fjármögnun. Stefnumótandi áherslur félaganna  eru svipaðar þar sem sérstök áhersla er lögð á að bjóða viðskiptavinum ávallt upp á hagkvæma matvörukosti, en um leið að standa fyrir stöðugri framþróun í verslun til að tryggja góða upplifun viðskiptavina. 

Meginstarfsemi SMS samstæðunnar er rekstur dagvöruverslana Bónus, Miklagarðs og Mylnan en einnig rekstur veitingastaða, sérvöruverslana, kjötvinnslu, brauð- og kökugerðar og rekstur verslunarmiðstöðvar í Þórhöfn. Þá á SMS fjölbreytt fasteignasafn sem telur um 11.000 fermetra sem er að miklu leyti nýtt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila.

SMS

STÆKKUN BÓNUS Á ÍSAFIRÐI

Á fyrri hluta árs var ráðist í 300 fermetra stækkun á verslun Bónus á Ísafirði. Samhliða stækkun var verslunin tekin í gegn, uppröðun og flæði breytt, aðgengi bætt og vöruval aukið. Settar voru upp rafrænar verðmerkingar og sjálfsafgreiðslukassar og Gripið & Greitt tekið í notkun. Í framhaldi af breytingum var 25 ára afmæli verslunarinnar fagnað, en verslunin er elsta verslun Bónus á landsbyggðinni með samfelldan rekstur á sama stað.

Bónus

10 ÁRA AFMÆLI ELDUM RÉTT FAGNAÐ

Í upphafi árs hélt Eldum rétt upp á 10 ára stórafmæli fyrirtækisins en áfanganum var meðal annars fagnað með skemmtilegum vinningum fyrir heppna viðskiptavini. Viðskiptavinir Eldum rétt áttu þannig möguleika á að fá stóran ferðavinning en vinningunum var laumað af handahófi í fjóra matarpakka á meðan afmælishátíðin stóð yfir. Til viðbótar var fjöldinn allur af öðrum spennandi vinningum í boði. Afmælisvikurnar vöktu verðskuldaða athygli á meðal viðskiptavina, en eftirspurn var einstaklega sterkt á tímabilinu.

Eldum rétt afmæli

BANANAR OPNA NÝJAN VEF OG VEFVERSLUN

Á rekstrarárinu 2024/25 átti sér stað mikil vinna við uppsetningu á nýjum vef og vefverslun Banana sem markar spennandi áfanga í starfsemi fyrirtækisins. Með tilkomu vefverslunarinnar skapast aukin þægindi fyrir viðskiptavini Banana sem geta nú pantað ferska ávexti og grænmeti á aðgengilegan hátt, hvar og hvenær sem er. Mikil áhersla var lögð á líflega og litríka hönnun með góða og jákvæða upplifun viðskiptavina að leiðarljósi.

Bananar vefverslun

VEGABRÉF OG NAFNSKÍRTEINI AFHENT Í HAGKAUP SKEIFUNNI

Í október 2024 bauðst Íslendingum í fyrsta sinn að fá afhend vegabréf og nafnskírteini í Hagkaup Skeifunni, allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Um er að ræða mikla þjónustubætingu fyrir viðskiptavini Þjóðskrár sem geta nú nálgast skilríki miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, á stað með gott aðgengi og rúman opnunartíma. Allt starfsfólk Hagkaups hlaut viðeigandi þjálfun og tryggt er að sömu öryggisstöðlum sé fylgt eftir sem áður. Þjónustan er frábær viðbót við Hagkaup, og er enn einn liðurinn í að auðvelda viðskiptavinum verslunarinnar lífið.

OLÍS - ÓB APPIÐ KYNNT TIL SÖGUNNAR

Á rekstrarárinu var unnið að útgáfu á glænýju Olís - ÓB appi og var það kynnt til sögunnar í febrúar 2025. Nýja appið er til mikilla hagsbóta fyrir viðskiptavini sem fá nú betri yfirsýn yfir öll sín viðskipti á einum stað auk þess að geta framvegis borgað með símanum. Appið mun því smám saman leysa gamla góða dælulykilinn af hólmi. Í appinu má einnig finna fréttir og upplýsingar um tilboð og eldsneytiskjör, staðsetningar allra Olís og ÓB stöðva auk upplýsinga um hvaða þjónustu er að finna á hverjum stað.

VEIGAR - NÝ NETVERSLUN MEÐ ÁFENGI

Í september opnaði ný netverslun með áfengi, www.veigar.eu, sem rekin er af Hagar Wine, hollensku dótturfélagi Haga.  Hagar Wine og Hagkaup hafa gert með sér þjónustusamning um afhendingu og afgreiðslu af lager Haga Wine á Íslandi. Í vefversluninni gefst viðskiptavinum tækifæri til að kaupa áfengi á netinu og sækja í Hagkaup Skeifunni um leið og þeir kaupa aðrar vörur til heimilisins en einnig er hægt að velja um afhendingu með Dropp hringinn í kringum landið. Mjög strangar reglur gilda um sölu og framsetningu áfengis hjá netversluninni og er þannig leitast við að stuðla að ábyrgri kauphegðun.

Veigar

BÓNUS GEFUR NÝBÖKUÐUM FORELDRUM BARNABOX

Á árinu sem var að líða hóf Bónus undirbúning á verkefni sem ber heitið Barnabónus. Verkefninu er ætlað að styðja við bakið á barnafjölskyldum og létta þeim lífið á fyrstu mánuðunum eftir fæðingu. Barnabónus er veglegur upphafspakki með nauðsynlegum vörum fyrir nýbura og foreldra þeirra en vörurnar eru vandlega valdar í samvinnu við fagfólk. Verkefnið var unnið með frábærum samstarfsaðilum og sjálfboðaliðum sem hjálpuðu Bónus við að gera hugmyndina að veruleika. Gert er ráð fyrir að gefa allt að 5.000 Barnabónusbox á árinu 2025, samtals að andvirði um 150 milljónum króna.

BUILD-A-BEAR OPNAR Í HAGKAUP SMÁRALIND

Í febrúar opnaði Build-A-Bear bangsaverksmiðjan í Hagkaup í Smáralind. Build-A-Bear er einstök upplifun þar sem börn og fullorðnir fá að búa til sinn persónulega bangsa. Bangsann má síðan klæða upp en í boði er fjölbreytt úrval af skóm, fatnaði og fylgihlutum. Margir þekkja Build-A-Bear og eiga góðar minningar tengdar vörumerkinu og því er það sannarlega gaman að geta nú í fyrsta sinn opnað dyr Íslendinga að töfraheimi Build-A-Bear. Síðustu ár hefur mikil áhersla verið lögð á að bæta upplifun viðskiptavina Hagkaups enn frekar og er opnun Build-A-Bear því frábær viðbót við flóruna í einni stærstu leikfangadeild landsins.

OLÍS OPNAR FYRSTU GLANS BÍLAÞVOTTASTÖÐINA

Fyrsta Glans bílaþvottastöðin opnaði dyr sínar í Mosfellsbæ í lok rekstrarárs. Glans býður upp á hraðari bílaþvott en gengur og gerist en þvottastöðin afkastar um 18 bílum á klukkustund. Notað er heitt vatn við þvottinn sem gerir það að verkum að þvottatíminn er styttri og nota þarf minna magn af þvottaefnum. Unnið er að opnun fleiri staðsetninga en Selfoss og Gullinbrú verða næstar í röðinni á sumarmánuðum.

SAMSTARF MEÐ LATABÆ

Bónus, Hagkaup, Olís og Bananar, dótturfélög Haga, í samstarfi við Latabæ hafa ákveðið að bregðast við ákalli Landlæknis sem kallað hefur eftir því að grænmeti og ávextir verði stærra hlutfall í matarræði barna. Unnið hefur verið að lausn sem gerir grænmeti og ávexti að spennandi og auðveldum kosti en niðurstaðan er framleiðsla á íþróttanammi undir merkjum Latabæjar. Vörurnar verða framleiddar af Bönunum og seldar í verslunum Bónus, Hagkaups og Olís og er markmiðið að gera íþróttanammið að meira spennandi valkost en sælgæti eða aðra óhollustu. Umbúðirnar verða handhægar og innihalda skammta sem henta börnum vel. Auk þess er stefnt að viðburðum til að hvetja fjölskyldur til að hreyfa sig meira og þannig er vonast til að auka áhuga barna á hreyfingu og um leið gera foreldrum þeirra auðveldara með að hvetja þau til dáða.

UPPBYGGING INNVIÐA Í VÖRUHÚSUM AÐFANGA

Undanfarin tvö ár hefur átt sér stað mikil breyting og stækkun á vöruhúsum Aðfanga í Skútuvogi, en framkvæmdum er nú lokið. Vöruhúsið var stækkað um 2.700 fermetra og vinnuaðstæður þar eru nú eins og best verður á kosið, og vöruhúsið í stakk búið til að mæta aukinni eftirspurn í framtíðinni. Á árinu hófst jafnframt innleiðing á nýju vöruhúsakerfi, auk þess sem unnið var að því að bæta ásýnd helstu vörumerkja Aðfanga með uppfærðum heimasíðum.