Fara á efnissvæði
Til baka

Hagar undirrita sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa á hlutafé í Klasa ehf.

Í dag var undirrituð sátt á milli Haga hf. og Samkeppniseftirlitsins um skilyrði fyrir kaupum Haga á hlutafé í Klasa ehf.

Þann 3. desember 2021 var tilkynnt um undirritun samnings Haga hf., Regins hf. og KLS eignarhaldsfélags ehf. um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf. Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Þau skilyrði sem Hagar skuldbinda sig til að hlíta skv. sáttinni eru eftirfarandi:

  1. Tilkynningarskylda Haga til Samkeppniseftirlitsins vegna samninga um kaup eða leigu Haga á eignum undir dagvöruverslanir sem verða þróaðar og byggðar undir stjórn Klasa eða Regins.
  2. Tilkynning skal berast Samkeppniseftirlitinu innan fimm virkra daga frá því að bindandi samningur kemst á milli aðila.
  3. Högum er heimilt að óska eftir endurupptöku eða endurskoðun sáttarinnar að þremur árum liðnum frá framkvæmd samrunans.

 

Samruninn kemur til framkvæmda á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif viðskiptanna komi fram á 2. ársfjórðungi 2022/23, en áætluð áhrif vegna söluhagnaðar eigna á hagnað félagsins eftir skatta eru um 750 millj. kr.

Frekari upplýsingar um viðskiptin má finna í Kauphallartilkynningu Haga frá 3. desember sl.