Fara á efnissvæði
Til baka

Lemon opnar nýjan stað á Olís í Norðlingaholti

Veitingastaðurinn Lemon hefur opnað nýjan stað á Olís í Norðlingaholti. Í tilefni þess var viðskiptavinum boðið upp á sælkerasamloku og sólskin í glasi í hádeginu á opnunardeginum.

Lemon er skyndibitastaður sem að sérhæfir sig í hollum samlokum og ferskum djúsum. Staðurinn hefur hlotið mikilla vinsælda og eru staðirnir nú sjö talsins, fjórir staðir á höfuðborgarsvæðinu og þrír á Norðurlandi.

„Við hjá Lemon leggjum áherslu á að mæta ólíkum þörfum okkar viðskiptavina með bragðgóðum og hollum samlokum og djúsum. Við erum mjög spennt fyrir nýja staðnum á Olís í Norðlingaholti.  Þar kemur mikið af fólki enda staðsetningin tengipunktur í margar áttir. Við teljum að viðskiptavinir eigi eftir að fagna því að eiga möguleika á að grípa með sér hollar og bragðgóðar samlokur og sólskín í glasi í verkefni dagsins“ segir Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsstjóri Lemon

„Við erum afar ánægð með að fá Lemon í veitingarframboðið í Olís í Norðlingaholti. Þetta er bara byrjunin á samstarfi Lemon og Olís þar sem að við erum með áætlanir um að opna fleiri Lemon staði á Olís stöðvum á næstu mánuðum. Við leggjum áherslu á fjölbreytni í veitingum fyrir okkar viðskiptavini og eru samlokur og djúsar Lemon flott viðbót í þær veitingar sem að við erum þegar að bjóða upp á. Við teljum að viðskiptavinir okkar eigi eftir að kunna vel að meta fersku veitingarnar hjá Lemon“ segir Frosti Ólafsson framkvæmdastjóri Olís

Lemon opnun Olis Norðlingaholt