Stjórn og framkvæmdastjórn
Stjórn Haga
Árni Hauksson
Árni er formaður stjórnar. Hann er menntaður M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Stanford University, M.Sc. í vélaverkfræði frá California Institute of Technology og vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Árni starfar nú við eigin fjárfestingar. Hann var forstjóri og einn af aðaleigendum Húsasmiðjunnar hf. árin 2002-2005, fjármálastjóri sama félags frá 2000, fjármálastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. 1996-2000, framkvæmdastjóri Skyggnis hf. 1995-1996, sérfræðingur og fjármálastjóri hjá Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1993-1995 og sérfræðingur hjá Verkfræðideild Háskóla Íslands árið 1992.
Netfang: arni@hagar.is
Hallbjörn Karlsson
Hallbjörn er menntaður MBA frá INSEAD í Frakklandi, M.Sc. í vélaverkfræði frá Stanford University og B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hallbjörn starfar nú við eigin fjárfestingar. Hann var einn af aðaleigendum Húsasmiðjunnar hf. 2002-2005 og sat í stjórn þess félags. Hallbjörn starfaði í fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings hf. 2001-2002, hjá Marel Seattle Inc. 1996-1999 og Marel hf. árin 1993-1996.
Netfang: hallbjorn@hagar.is
Guðbrandur Sigurðsson
Guðbrandur er menntaður MBA frá University of Edinburgh og B.Sc. í matvælafræði frá Háskóla Íslands. Guðbrandur er forstjóri Plastprents hf. Hann var forstjóri Mjólkursamsölunnar 2005-2008 og stofnaði í kjölfarið Nýland hf. sem hefur einbeitt sér að útflutningsverkefnum á sviði matvæla og lífvirkra efna í íslensku sjávarfangi. Guðbrandur var forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf. og Brims hf. 1996-2004. Hann starfaði við framleiðslu- og viðskiptaþróun hjá SÍF og Íslenskum sjávarafurðum 1985-1996.
Netfang: gs@hagar.is
Kristin Friðgeirsdóttir
Kristín er menntuð Ph.D. í rekstrarverkfræði frá Stanford University, M.Sc. í rekstrarverkfræði frá Stanford University og C.S. í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Kristín er lektor í stjórnunar- og rekstrarfræðum við London Business School og stundar rannsóknir á verðlagningu, tekjustjórnun og áhættulíkönum tengdum rekstri fyrirtækja. Hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá Intel, AMD, Yahoo og öðrum internet- og fjármálafyrirtækjum.
Netfang: kristin@hagar.is
Erna Gísladóttir
Erna er menntuð MBA frá IESE Barcelona og B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna starfar nú við eigin fjárfestingar en aðal fjárfestingafélag hennar er EGG ehf. Erna er ræðismaður Suður-Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri B&L árin 1991-2003.
Netfang: erna@hagar.is
Framkvæmdastjórn Haga
Finnur Árnason
Finnur er forstjóri Haga. Hann er menntaður MBA frá University of Hartford og Cand.Oecon frá Háskóla Íslands. Finnur hefur verið forstjóri Haga frá árinu 2005. Hann var áður framkvæmdastjóri Hagkaups árin 2000-2005 og framkvæmdastjóri Nýkaups 1998-2000. Finnur var sölu- og markaðsstjóri Sláturfélags Suðurlands 1989-1998 og framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Góðs fólks 1987-1989.
Netfang: fa@hagar.is
Guðrún Eva Gunnarsdóttir
Guðrún Eva er fjármálastjóri Haga. Hún er menntuð B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin fjármálastjóri Haga í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskra kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvörusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005.
Netfang: geg@hagar.is
Guðmundur Marteinsson
Guðmundur er framkvæmdastjóri Bónus. Hann er menntaður vélstjóri frá Vélskóla Íslands og stúdent frá Verslunarskóla Íslands. Guðmundur hóf störf hjá Bónus árið 1992 og hefur gengið þar í öll störf. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra árið 1998.
Netfang: gummi@bonus.is
Gunnar Ingi Sigurðsson
Gunnar Ingi er framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann er menntaður B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Gunnar Ingi var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups árið 2005, en var rekstrarstjóri Hagkaups 1998-2005 og framkvæmdastjóri aðfangakveðju Bónuss 1997-1998. Hann var sölustjóri Nóa Siríus árin 1993-1997.
Netfang: gis@hagkaup.is
Kjartan Már Friðsteinsson
Kjartan Már er framkvæmdastjóri Banana. Hann er menntaður Cand,Oecon frá Háskóla Íslands. Kjartan Már hefur verið framkvæmdastjóri Banana frá árinu 1995. Hann var framkvæmdastjóri hjá Ásgeiri Sigurðssyni hf. 1983-1995 og skrifstofustjóri hjá Gunnari Eggertssyni hf. 1977-1983.
Netfang: kjartan@bananar.is
Lárus Óskarsson
Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga en hann hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðsstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988.
Netfang: larus@adfong.is
