Starfshættir lögreglunnar koma almenningi við
Hr. Haraldur JohannessenRíkislögreglustjóri
Skúlagötu 21
150 Reykjavík
Reykjavík, 20. september 2002
Ég rita yður í tilefni húsleitar er gerð var í höfuðsstöðvum umbjóðanda míns, Baugs Group hf., hinn 28. ágúst sl. vegna meintra brota tveggja fyrirsvarsmanna félagsins gegn félaginu sjálfu. Ljóst er að rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hefur haft umtalsverð áhrif á félagið sem er brotaþoli í málinu. Undirritaður hefur gagnrýnt ýmislegt varðandi rannsókn málsins og undirbúning hennar. Í því skyni að undirritaður geti glöggvað sig betur á lögmæti rannsóknarathafna lögreglu er þess hér með farið á leit við embættið að mér verði veittar tilteknar upplýsingar.
Í fyrsta lagi fer undirritaður fram á að lögregla upplýsi um hvort löggiltir endurskoðendur starfi hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Nauðsynlegt er að fá svar við þeirri spurningu þar sem fram hefur komið að misskilnings hafi gætt hjá lögreglu varðandi ýmis grundvallaratriði í aðdraganda húsleitar.
Í öðru lagi er óskað upplýsinga um það hvort, og þá hvenær, lögregla hafi kvatt til utanaðkomandi sérfræðinga sér til aðstoðar við rannsókn málsins. Er þess farið á leit við lögreglu að upplýst verði hvort sérfræðingar hafi verið kallaðir til áður en umrædd húsleit var framkvæmd eða eftir hana. Fer undirritaður fram á að staðfest verði, að á grundvelli lagaheimilda lögreglu, hafi slíkir aðilar verið valdir með hliðsjón af meginreglum stjórnsýslulaga um hæfi, þ.e.a.s. bæði um almennt og sérstakt hæfi. Er þá nánar átt við eftirfarandi:
Annars vegar hvort viðkomandi sérfræðingar væru sérhæfðir á sviði verslunarrekstrar og smásölu líkt og Baugur Group hf. starfar á. Ástæða þessa liðar fyrirspurnarinnar er sú, að þar sem mismunandi venjur og framkvæmd gilda á hinum ýmsu sviðum rekstrar, þ.á m. um samskipti milli verslana og birgja, hafa sérfræðingar sérhæft sig á tilteknum sviðum.
Hins vegar hvort lögregla hafi kannað á einhvern hátt við val á sérfræðingum að viðkomandi starfaði ekki fyrir samkeppnisaðila Baugs Group hf. eða hvort aðrar vanhæfisástæður væru fyrir hendi, sbr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 9. gr. laga nr. 18/1997, um endurskoðendur. Undirrituðum er kunnugt um að endurskoðunarskrifstofan Deloitte & Touche hf., sem mun hafa verið efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra til aðstoðar í þessu máli, starfi m.a. einnig fyrir Kaupás hf., sem er helsti samkeppnisaðili Baugs Group hf. á Íslandi. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að lögregla tók afrit af öllu bókhaldi Baugs Group hf. og ýmis önnur gögn er varða rekstur og áætlanir félagsins. Það er mat undirritaðs að lögreglu beri að hafa í huga þessi sjónarmið við framkvæmd rannsóknar sinnar og val á sérfræðingum sér til aðstoðar. Baugur Group hf. er í fullkominni óvissu um að þessa hafi verið gætt. Með þessu er undirritaður þó á engan hátt að kasta rýrð á umrætt endurskoðunarfyrirtæki eða þá sérfræðinga sem þar starfa. Í þessu sambandi er hins vegar rétt að geta þess að markmið hæfisreglna stjórnsýsluréttarins er m.a. að koma í veg fyrir að borgarar geti haft ástæðu til að ætla að stjórnvöld leysi ekki úr málum á hlutlausan hátt. Er það í samræmi við þá kennisetningu varðandi réttláta málsmeðferð, sem viðurkennd er meðal fræðimanna, að ?justice must not only be done, justice must also be seen to be done?. Samkvæmt því er ekki nægilegt að yfirvöld séu óvilhöll heldur verða borgararnir að geta séð að svo sé.
Í þriðja lagi er það mat undirritaðs að lögregla hafi í fórum sínum gögn og upplýsingar sem eru líkleg til þess að hafa áhrif á markaðsverð bréfa í Baugi Group hf. ef opinber væru, sbr. 4. tölul. 2. gr. laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti. Þar af leiðandi teljast þeir starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og aðrir þeir sem kvaddir hafa verið aðstoðar við rannsókn innherjar í skilningi 5. tölul. 2. gr. sömu laga. Baugi Group hf. ber samkvæmt 35. gr. sömu laga að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um nafn, kennitölu og heimilisfang innherja, tengsl innherja við félagið og ástæðu fyrir skráningu, svo og nöfn aðila sem eru fjárhagslega tengdir innherja. Sömu upplýsingar verður félagið einnig að veita kauphöll. Með vísan til þessa fer undirritaður f.h. Baugs Group hf. fram á það við efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra að undirrituðum verði afhentur listi með umræddum upplýsingum, sbr. 3., 4., 5. og 6. tölul. 1. mgr. 35. gr. tilvitnaðra laga. Er þess krafist að umræddur listi verði látinn undirrituðum í té strax í dag.
Virðingarfyllst,
Hreinn Loftsson hrl.
Afrit sent til:
Fr. Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra
Hr. Boga Nilssonar ríkissaksóknara
