Niðurstöður aðalfundar Baugs
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var sérstök kynning á skipulagsbreytingum hjá Baugi hf.
Aðalfundur Baugs var haldinn í dag, 30.maí 2002 í Íslensku Óperunni ( Gamla bíó)
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var sérstök kynning á skipulagsbreytingum hjá Baugi hf.
I. Skipulagsbreytingar.
Á fundinum voru lagðar fram tillögur vegna nafnbreytingu Baugs hf. í Baugur Group hf. og skipulagsbreytinga fyrirtækisins.
Baugur Group
Baugi hf. verður skipt upp í 3. sjálfstæðar einingar: Baugur ? Ísland, Bonus Stores Inc. og Baugur ? fjárfesting og þróun. Hver eining verður rekin sjálfstætt og ber ábyrgð á sínum fjárhag, (efnahags- og rekstrarreikningi) ásamt allri daglegri starfsemi. Baugur ? Ísland mun alfarið einbeita sér að rekstri verslana og tengdri starfsemi.
Baugur hf. breytist í Baugur Group hf. og verður eignarhaldsfélag. Félagið mun því ekki bera ábyrgð á daglegri starfsemi rekstrareininganna þriggja. Baugur Group birtir rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi fyrir hverja einingu og upplýsir markaðinn um stöðu fyrirtækisins og þróun verkefna.
Stjórnarformaður Baugur Group hf. er Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum forstjóri Baugs hf., og forstjóri er Tryggvi Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs hf.
Baugur ? Ísland
Undir þessa rekstrareiningu fellur allur verslanarekstur á Íslandi í mat- og sérvöru, auk reksturs í Svíþjóð vegna Topshop, Miss Selfridge, og Debenhams. Samtals rekur Baugur ? Ísland 77 verslanir í þessum tveimur löndum og áform eru um að opna 5 til viðbótar í Svíþjóð á þessu ári.
Hlutverk Baugs ? Ísland verður að veita rekstrareiningum stefnumótandi aðhald, ásamt fjárhagslegu aðhaldi og eftirliti og nýta stærðarhagkvæmni þar sem það á við.
Aukin áhersla verður lögð á arðsemi eininga, hagræðingu í rekstri og mannauðsstjórnun.
Heildarvelta Baugs ? Ísland á yfirstandandi rekstrarári er áætlaður 35,2 milljarðar kr., og nettóskuldir 5,7 milljarðar kr.
Fjöldi starfsfólks er um 1.800.
Framkvæmdastjóri Baugs ? Ísland er Jón Björnsson, sem áður gegndi starfi framkvæmdastjóra sérvörusviðs Baugs hf.
Bonus Stores Inc. - Bandaríkin
Undir þessa rekstrareiningu fellur verslanarekstur Bills Dollar Store, Bonus Dollar Stores, og nýjasta viðbótin; Bonus Supercenter en þær verslanir eru stærri og bjóða upp á meira úrval í mat- og sérvöru en Bills Dollar Store og Bonus Dollar Stores.
Á árinu verður lögð aukin áhersla á arðsemi eininga, loka óarðsömum einingum og fjárfesta í uppbyggingu og endurbótum verslana þar sem það á við.
Samtals rekur Bonus Stores Inc. 394 verslanir í suð-austurríkjum Bandaríkjanna og hjá félaginu starfa um 2000 manns.
Heildarvelta Bonus Stores Inc. er 22 milljarðar kr. og nettóskuldir 3,4 milljarðar kr.
Framkvæmdastjóri Bonus Stores Inc. er Jim Schafer.
Baugur ? fjárfesting og þróun
Baugur ? fjárfesting og þróun er ný rekstrareining sem heldur utan um eignir í félögum þar sem Baugur fer ekki með daglegan rekstur.
Verkefni Baugs ?fjárfestingar og þróunar, er að geta af sér rekstarareiningar sem renna styrkari stoðum undir meginrekstur félagsins, einkum á sviði verslunarreksturs, og skila af þeim viðunandi arðsemi.
Öll þróunarvinna samstæðunnar mun einnig eiga sér stað innan þessarar rekstrareiningar.
Helstu eignir Baugs ? fjárfestingar og þróunar eru Arcadia, SMS, Stoðir og Baugur.net. Af þeim er þó Arcadia langstærst en núverandi markaðsvirði 20% hlutar Baugs ? fjárfestingar og þróunar í Arcadia er metið á um 19, 3 milljarða króna og hefur vaxið um 4,5 milljarða frá áramótum.
Bókfært virði heildareigna Baugs ? fjárfestingar og þróunar er 12, 6 milljarðar og nettóskuldir 3,4 milljarðar.
Framkvæmdastjóri Baugs ? fjárfestingar og þróunar er Jón Scheving Thorsteinsson, sem áður gegndi starfi framkvæmdastjóra versluanar- og þjónustusviðs Baugs hf.
II. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi Baugs hf., 30. maí 2002:
1.
Aðalfundur Baugs hf. samþykkti að greiða 12% arð fyrir ársuppgjör sem miðast við 1. janúar 2001 til og með 28. febrúar 2002 eða fyrir 14 mánaða tímabil. Viðskipti með hlutabréf í félaginu verða án arðs frá og með 31. maí 2002. Hluthafar í lok dags 30. maí fá arðinn greiddan hinn 28. júní 2002.
2. Aðalfundur Baugs hf. ákvað að þóknun til stjórnarmanna verði 120 þús. kr. á mánuði til næsta aðalfundar, til annarra stjórnarmanna en þeirra sem eru í starfi hjá félaginu.
3. Fimm tillögur um breytingar á samþykktum félagins voru samþykktar á aðalfundinum:
A. Samþykkt var nafnbreyting og nafn félagsins nú Baugur Group hf.
B. Samþykkt var að breyta tilgangi félagsins og orðast grein 1.3. nú svo:
Tilgangur félagsins er verslunarrekstur, eignaumsýsla, rekstur fasteigna, fjárfestingar í hlutabréfum og verðbréfum sem og í félögum með skylda starfsemi, lánastarfsemi, kaup og sala eigna og annar skyldur rekstur.
C. Aðalfundurinn ákvað að auka hlutafé félagsins um kr. 699.862.430,- sexhundruð níutíu og níu milljónir átta hundruð sextíu og tvö þúsund fjögur hundruð og þrjátíu krónur að nafnverði, með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Rétt til jöfnunarbréfanna eiga þeir sem verða skráðir hluthafar í lok aðalfundardags. Hlutafé eftir jöfnun verður 2.395.676.412 kr. ? tveir milljarðar þrjú hundruð níutíu og fimm milljónirs sexhundruð sjötíu og sex þúsund fjögur hundruð og tólf krónur. Aukning þessi hefur ekki áhrif á arðgreiðslur fyrir uppgjörstímabilið 1. janúar 2001 til og með 28. febrúar 2002.
Jafnframt fól aðalfundurinn stjórn félagsins að skrá aukninguna strax að loknum aðalfundi, að gera viðeigandi lagfæringar á samþykktum félagsins og tilkynna hækkunina til hlutafélagaskrár.
D. Samþykkt var að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum til þess að hækka hlutafé félagsins um allt að 100.000.000 kr. ? eitt hundrað milljónir króna - að nafnverði. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Þeir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn félagsins er heimilt að nýta hlutafjárhækkunina sem endurgjald fyrir hluti í félögum með skylda starfsemi. Framangreind heimild stjórnar félagsins fellur niður 30. maí 2003 að því marki sem hún er þá enn ónotuð.
E. Aðalfundurinn samþykkti að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum til þess að hækka hlutafé félagsins um allt að 10.000.000 kr. ? tíu milljónir króna - að nafnverði. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Þeir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn félagsins er heimilt að nýta hlutafjárhækkunina til sölu hlutabréfa til starfsmanna félagsins samkvæmt kaupréttaráætlun samkvæmt samþykktum stjórnar. Framangreind heimild stjórnar félagsins fellur niður 30. maí 2003 að því marki sem hún er þá enn ónotuð.
4. Aðalfundur Baugs hf. veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu eða taka þá að veði. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup og veðsetning hluta fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera lægst 10% undir skráðu kaupgengi og hæst 10% yfir skráðu kaupgengi á Verðbréfaþingi islands þann dag sem viðskiptin áttu sér stað.
5. Í stjórn Baugs hf. voru eftirfarandi kosin sem aðalmenn:
Jón Ásgeir Jóhannesson, Tom Kristiansen, Guðfinna Bjarnadóttir, Jóhannes Jónsson og Þorgeir Baldursson. Varamenn voru kosin Kristín Jóhannesdóttir og Brynjar Hovstein.
6. Endurskoðunarfyrirtækið KPMG endurskoðun hf., Stefán Hilmarsson, löggiltur endurskoðandi, var kjörið endurskoðandi félagsins.
Í kjölfar aðalfundarins kom stjórn félagsins saman og var Jón Ásgeir Jóhannesson kjörinn formaður og Tom Kristiansen kjörinn varaformaður.
