26. apr. 2002

Listahátíð 27. apríl í BabySam

Laugardaginn 27. apríl ætlar BabySam að kynna nýja vörulistann í versluninni að Skeifunni 8, Reykjavík milli kl. 10-16.

Laugardaginn 27. apríl ætlar BabySam að kynna nýja vörulistann í versluninni að Skeifunni 8, Reykjavík milli kl. 10-16. Af því tilefni verður margt skemmtilegt og fróðlegt á boðstólum fyrir viðskiptavini á öllum aldri, tilboð á ýmsum vörum, vörukynningar, gjafir með viðskiptum og ?Sam? mætir í eigin persónu og skemmtir börnunum.

Starfsfólk BabySam býður ykkur hjartanlega velkomin að skoða vöruúrvalið og þiggja ráðleggingar. Einnig hefur verið sett upp lítið kaffi-og leikhorn þar sem viðskiptavinir geta sest niður og fengið sér kaffisopa og skoðað blöð og bækur á meðan börnin leika sér.

LEGO-samkeppnin
Í bæklingnum er að finna LEGO-samkeppni þar sem heppinn þátttakandi fær helgarferð fyrir 2 fullorðna og 2 börn í Legoland í boði Plúsferða og Lego á Íslandi. Einnig verður dreginn út í hverjum mánuði heppinn þátttakandi sem fær í vinning skemmtilegt leikfang frá Lego.

BabySam hefur einnig opnað vefsetur www.babysam.is þar sem hægt er að skoða allar vörurnar í listanum, verð á leiguvörum og það sem er á dagskrá hverju sinni.





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica