Vorútsala hjá Hagkaupum
Í dag hefst vorútsala hjá Hagkaupum og er þetta í fyrsta sinn sem hún er á þessum tíma.
Í dag hefst vorútsala hjá Hagkaupum og er þetta í fyrsta sinn sem hún er á þessum tíma.
Útsalan verður í öllum verslunum Hagkaupa og að sögn Sigríðar Gröndal, innkaupastjóra sérvöru hjá Hagkaupum, er verið að rýma fyrir nýjum sumarvörum með því að setja nýlegar vorvörur á útsöluna.
Svona útsala á miðju tímabili er þekkt víða erlendis en hefur ekki tíðkast hér á landi nema hvað Hagkaup var með vetrarútsölu í nóvember sem leið.
Sigríður segir að þar sem Hagkaup leggi áherslu á að vera með nýjar vörur vikulega sé þetta gott tækifæri að rýma fyrir sumarvörum og kjörið tækifæri fyrir viðskiptavini til að gera góð kaup á vorfatnaði fyrir sumarið. Að lágmarki verður 40% afsláttur og allt upp í 87% ofurafslátt á ýmsum vörum.
