5. mar. 2002

Debenhams á Brúðkaupssýningunni í Smáralind

Helgina 8.-10. mars verður haldin Brúðkaupssýning í Vetrargarði Smáralindar.

Helgina 8.-10. mars verður haldin Brúðkaupssýning í Vetrargarði Smáralindar. Sýningin er ætluð öllum þeim sem eru í brúðkaupshugleiðingum, þeim þegar hafa gengið í það heilaga, og þeim sem halda að þeir munu einhvern tíma gera það. Þá geta væntanlegir brúðkaupsgestir séð hvað er í boði varðandi brúðargjafir og klæðnað fyrir veislur og brúðkaup.

Debenhams verður á þessari sýningu og mun kynna vörur sínar og brúðkaupsþjónustu fyrir verðandi brúðhjón og brúðargesti. Sýningin auðveldar væntanlegum brúðhjónum að skoða það sem er í boði fyrir stóru stundina, með því að sýna allt sem til þarf á einum stað; fatnað, skart, veislumat, veitingar, skreytingar, gjafir, myndatökur, hárgreiðslu og förðun.

Einnig gerir sýningin þeim sem þegar hafa gengið í hjónaband kleift að endurupplifa stóru stundina og jafnframt kynna sér ýmsa þjónustu sem er í boði fyrir hjón.

Samhliða sýningunni er gefið út veglegt Brúðkaupsblað sem fjallar um allar hliðar brúðkaupa. Blaðið fæst einungis á Brúðkaupssýningunni Já. Að sjálfsögðu mun Brúðkaupsþátturinn Já, sem sýndur er á Skjá einum, vera á staðnum og fylgjast með því sem gerist.
Boðið er uppá brúðkaupstískusýningar, milli þess sem landsfrægir tónlistarmenn skemmta.





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica