Hagnaður Baugs hf. rúmlega tvöfaldaðist milli áranna 2000 og 2001 - Framlegð á matvörusviði lækkar um 0,5%
Hagnaður Baugs hf. á rekstrarárinu 2001 er áætlaður 1.350 milljónir króna eftir skatta, samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri sem birt var í gær. Árið áður var hagnaðurinn 591 milljón. Heildarrekstrartekjur samstæðunnar eru 42 milljarðar króna.
Hagnaður Baugs hf. á rekstrarárinu 2001 er áætlaður 1.350 milljónir króna eftir skatta, samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri sem birt var í gær. Árið áður var hagnaðurinn 591 milljón. Heildarrekstrartekjur samstæðunnar eru 42 milljarðar króna.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sagði á kynningarfundi fyrir hluthafa og fagfjárfesta í gær, að þar sem Baugur eigi í yfirtökuviðræðum við stjórn Arcadia geti félagið samkvæmt lögum í Bretlandi ekki gefið upp hvernig hagnaður skiptist á milli rekstrareininga, hvorki milli eininga innan Baugs né milli dóttur- og hlutdeildarfélaga.
Hann sagði að eins og fram hafi komið í tíu mánaða uppgjöri Baugs hafi rekstur á matvörusviði félagsins á heimamarkaði verið óhagstæður. Neikvæð gengisþróun hafi skipt mjög miklu þar, samkeppnin sé hörð og mikil fjölgun verslana og fermetra í matvörusölu, sem hafi leitt til minni framlegðar á þessu sviði. Þessi niðurstaða sé algjörlega óviðunandi en vonir standi til að matvörusvið Baugs réttist við á þessu ári. Öðru máli gegni hins vegar um sérvörusvið félagsins, sem hafi komið vel út, svo og afkoman af starfsemi félagsins erlendis.
Varðandi horfur fyrir árið 2002 sagði Jón Ásgeir að Baugur gerði ráð fyrir að rekstraraðstæður myndu batna hér á landi, meiri stöðugleiki yrði bæði í gengismálum og á vinnumarkaði. Umskiptum Bonus Stores væri lokið og félagið gæti farið að snúa sér að frekari uppbyggingu. Þá virtist ekki annað en að Arcadia ætti að geta átt gott rekstrarár framundan.
Bonus Dollar við að skila hagnaði
Jim Schafer er forstjóri Bonus Stores, sem rekur Bonus Dollar Stores og Bill's Dollar Stores. Hann hefur starfað á smásölumarkaði í fjölda ára, er m.a. fyrrum starfsmaður Walmart og veitti ráðgjöf við samruna Hagkaups og Bónus á sínum tíma.
Hann segir Bonus Dollar Stores, sem var upphafið að rekstri Baugs í Bandaríkjunum, sé nú innan við 5% af starfseminni. Meginstarfsemin snúi að Bill's og þar hafi áherslur Bonus Stores legið frá í apríl þegar þrotabú fyrirtækisins var keypt.
Hann segir Bonus Dollar Stores-verslanirnar nú orðnar 23 og þær verði brátt 24 talsins.
"Upphaflega gerðum við ráð fyrir að sú keðja færi að skila hagnaði þegar við værum komin með 25 verslanir. Þá hefðum við nægilegan þunga í innkaupunum sem gæti skilað okkur framlegð sem aftur skilar hagnaði. Við erum að ná þessu marki um þessar mundir og verslanirnar munu skila hagnaði á þessu fjárhagsári."
Bill's að ná sér á strik
"Hin keðjan, Bill's Dollar Stores, var í mjög slæmu ásigkomulagi þegar við tókum við, hafði þá til að mynda ekki fengið afhentar vörur í fimm mánuði. Á þeim tíma sem liðinn er frá því að við eignuðumst Bill's höfum við keypt miklar birgðir og verið að fylla verslanirnar og koma þeim almennilega í gang til þess að geta farið að vinna í að ná aftur til keðjunnar þeim fjölda viðskiptavina sem var áður. Keðjan missti fjölmarga viðskiptavini en við höfum náð um 75% viðskiptavinahópsins aftur. Þetta tekur tíma og verður æ erfiðara eftir því sem við nálgumst 100%."
Schafer segir helstu keppinauta Bill's vera Dollar General, sem rekur 5.000 verslanir og veltir yfir 5 milljörðum dollara, og Family Dollar, sem rekur 4.000 verslanir og veltir rúmum 4 milljörðum dollara. Bill's reki hins vegar 400 verslanir og því sé á brattann að sækja í samkeppni um viðskiptavinina.
Uppstokkun í vændum
Bill Fields situr í stjórn Bonus Stores, en hann er fyrrum forstjóri hjá Walmart. Nú rekur hann eigið fyrirtæki um dreifingu á vörum vestrænna fyrirtækja í Kína. Fields segir mikla uppstokkun í vændum á smásölumarkaði í Bandaríkjunum.
"Þessa dagana einkennist markaðurinn af því að hinir sterku eru að verða sterkari og hinir veiku veikari. Talsvert margir smásalar eiga í miklum erfiðleikum og ég tel að margir eigi eftir að leggja upp laupana á næstunni, verða gjaldþrota, eða sameinast öðrum. Til dæmis eru háværar raddir uppi um að K-Mart, sem er þriðji stærsti smásali Bandaríkjanna, sé gjaldþrota.
Afkoma einstakra geira er reyndar mismunandi. Matvælageirinn í Bandaríkjunum er mjög samkeppnishæfur og sækir enn í sig veðrið. Hins vegar eru deildaskiptar verslanir að hrökkva upp af. Í staðinn hafa komið hentugri verslanir með betra verð, s.s. Kohl-verslanirnar. Þá eiga sérverslanir í talsverðum erfiðleikum og með þeim mikla samdrætti sem orðið hefur í hagkerfinu, m.a. eftir 11. september, hafa slíkar verslanir þurft að grípa til mikillar fækkunar starfsmanna.
Þau fyrirtæki sem stóðu fyrir á sterkum grunni, voru skilvirk og með góðan hagnað, munu væntanlega standast þetta. Þar verður allt í lagi. Hins vegar eru þeir sem nýttu illa hin níu ár velmegunar. Þau fyrirtæki standa mjög höllum fæti í dag og margir munu verða gjaldþrota í kjölfarið."
Fields segir vöxt fermetrafjölda í smásölu í Bandaríkjunum hafa tvöfaldast á hverju ári á árunum 1970 til 2000, bæði miðað við tekjur og fólksfjölda. "Það voru sífellt fleiri smásalar að bætast við. Í öllum slíkum tilfellum verður á endanum leiðrétting. Fermetrafjöldinn á því eftir að dragast saman."
Hann segist þó hafa mikla trú á lágvöruverðsgeiranum í smásölu, enda sé hann þeirrar náttúru að ganga betur við skilyrði samdráttar. Hann segist sjá mikla möguleika í Bill's Dollar Stores, en fyrirtækinu hafi verið ákaflega illa stjórnað um árabil og nokkurn tíma geti tekið að rétta reksturinn við.
Um Bonus Stores segir Fields: "Ég tel að fyrirtækið eigi mjög bjarta framtíð fyrir sér enda hefði ég ekki sest í stjórn þess ef ég teldi svo ekki vera."
Hvað alþjóðamarkað varðar telur hann að það muni færast í vöxt að sterkustu smásalarnir, s.s. Tesco frá Bretlandi og Walmart frá Bandaríkjunum, hasli sér völl á nýjum markaðssvæðum. "Allir munu þeir fara inn á vaxandi markaði, t.d. Kína, sem er þriðja stærsta hagkerfi í heimi og vex mun hraðar en önnur í heiminum."
- (Úr frétt Morgunblaðsins 19.janúar)
