Hagar hf. ársuppgjör 28. febrúar 2010
Ársreikningur Haga hf.
Ársreikningur félagsins hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Ársreikningur félagsins var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins 21. apríl 2010. Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa vegna ársins 2009/10.
Lykiltölur í millj. kr. – samstæða
Lykiltölur – samstæða
-
Hagnaður ársins 2009/10 nam 44 millj. kr.
-
Rekstrartekjur ársins námu 68.278 millj. kr.
-
Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.034 millj. kr.
-
Heildareignir samstæðunnar námu 24.564 millj. kr. í lok reikningsársins.
-
Eigið fé félagsins nam 2.519 millj. kr. í lok reikningsársins.
-
Eiginfjárhlutfall félagsins var 10,3% í lok reikningsársins.
Fyrirtæki Haga eru eftirfarandi:
Bónus Debenhams
Hagkaup Ferskar kjötvörur
10-11 Noron (Zara)
Aðföng Sólhöfn
Hýsing Bananar
Útilíf
Hlutdeildarfélög eru: Max og SMS p/f
Endurskoðun
Ársreikningurinn hefur verið áritaður af endurskoðendum félagsins, sem eru KPMG.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins í síma 530 5500
