19. feb. 2010

Fréttir

Með dómi sínum í dag, 19. febrúar 2010, hafnaði héraðsdómur Reykjavíkur að taka til greina kröfu Haga hf. um að felld yrði úr gildi ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá 4. mars 2009, í máli nr. 2/2009, þess efnis að Hagar hf. væru í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir dagvöru í matvöruverslunum og hefði með þátttöku Bónus í svonefndu „mjólkurstríði“ lágvöruverslana, sem Krónan hóf á árinu 2005, brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga um undirverðlagningu. Jafnframt hafnaði héraðsdómur að taka til endurskoðunar ákvörðun áfrýjunarnefndarinnar um að Hagar skyldu greiða 315.000.000 kr. í stjórnsýslusekt vegna málsins og stendur sektarákvörðunin því óhögguð.

Hagar hf. munu áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar, m.a. af eftirfarandi ástæðum:

• Ekki liggja fyrir mörg dómafordæmi er varða undirverðlagningu og Samkeppniseftirlitið hefur ekki gefið út almennar leiðbeiningar varðandi þetta efni. Ekki er vikið beinum orðum að undirverðlagningu í 11. gr., samkeppnislaga, um atriði sem falla undir misnotkun á markaðsráðandi stöðu heldur byggt lögskýringargögnum og fræðisetningum. Þegar af þeirri ástæðu telja Hagar hf. slíka réttaróvissu ríkja um þau atriði sem fjallað er um dómi héraðsdóms að nauðsynlegt sé að hann sæti endurskoðun af hálfu æðri dóms þar sem hún hafi almennt gildi.

• Umrætt verðstríð hófst í lok febrúar 2005 og var því gerð greinargóð skil í fjölmiðlum. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hófst í byrjun júní 2006 með upplýsingabeiðni sem var svarað í byrjun ágúst 2006. Þrettán mánuðum síðar eða í lok nóvember 2007 barst andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu sem Hagar tóku afstöðu til og sendu svör 1. febrúar 2008. Það var svo eftir hádegi föstudaginn 19. desember 2008 sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um 315 milljón króna stjórnvaldssekt barst Högum, í miðri jólaverslun og næstum 4 árum eftir að verðstríðið byrjaði. Hagar eru ekki sammála því mati héraðsdóms að ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga um eðlilegan málshraða. Jafnframt telja Hagar að rannsóknarregla hafi verið brotin en undir það tekur héraðsdómur ekki og telur rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafa verið fullnægjandi. Á þessi atriði mun reyna við áfrýjun málsins.

• Hagar munu krefjast endurskoðunar á því að dómurinn fellst á að Hagar hf. hafi verið í markaðsráðandi stöðu en því hefur fyrirtækið mótmælt frá upphafi.

• Hvað sem líður framangreindum atriðum telja Hagar hf. það umhugsunarefni að sektarfjárhæð sú sem héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag staðfest að fyrirtækinu beri að greiða vegna þess að mjólkurvörur voru seldar undir kostnaðarverði sem viðbrögð við verðstríði sem samkeppnisaðili hóf og fór fram fyrir opnum tjöldum skuli vera slaga hátt upp í þær stjórnvaldssektir sem olíufélögunum var gert að greiða vegna ólögmæts verðsamráðs um árabil með tilheyrandi tjón fyrir neytendur. Hagar munu við áfrýjun málsins krefjast þess að sektarákvörðunin verði felld úr gildi eða stjórnsýslusektin lækkuð verulega.

F.h. Haga hf. – Finnur Árnason forstjóri





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica