27. nóv. 2008

Aukin þjónusta hjá Hagkaup fyrir jólin

FRÉTTATILKYNNING
Frá og með 27. nóvember mun verslun Hagkaups í Skeifunni verða opin allan sólarhringinn. Skeifan 24 býður viðskiptavinum aðgang að mesta vöruúrval landsins á þeim tíma sólarhringsins sem hentar þeim best. Viðskiptavinir hafa óskað eftir auknu aðgengi að vöruúrvali Hagkaups og því var ákveðið að bjóða þetta nýmæli fram að jólum. Ef vel  gengur verður þessari góðu nýbreytni áfram haldið á nýju ári.
Hagkaup er leiðandi á íslenskum smásölumarkaði og býður mesta úrval hérlendis í sérvöru og matvöru. Hjá fyrirtækinu starfa 850 manns í tíu verslunum um land allt sem dag hvern leggja sig alla fram um að uppfylla væntingar viðskiptavina um eina ferð, betra verð.





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica