7. nóv. 2007

Yfirlýsing um lóðaúthlutanir.

Yfirlýsing um lóðaúthlutanir undir matvöruverslanir í Reykjavík

Í ljósi umræðu um lóðaúthlutanir í Reykjavík til matvöruverslana er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram:

Frá árinu 1998 þegar Baugur varð til hefur fyrirtækið aldrei fengið úthlutað lóð í Reykjavík undir matvöruverslun, hvorki Baugur né Hagar. 

Samningar sem innifela þinglýstar kvaðir vegna lóða í Grafarvogi, m.a. við Spöng voru gerðir af borgaryfirvöldum við fyrri eigendur Hagkaups, fyrir stofnun Baugs árið 1998.  Þeir samningar og þær kvaðir sem þeim fylgja eru því eldri en fyrirtækið Baugur.

Rétt er að kjörnir fulltrúar í sveitastjórnum og hjá ríkinu opni augun fyrir þeim tilraunum og þeim aðferðum, sem m.a. keppinautar Haga nota til þess sverta fyrirtækið og starfsfólk þess og að fá kjörna fulltrúa til þess að gefa sér markaðshlutdeild.  


Finnur Árnason
Forstjóri / CEO
Hagar hf.





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica